2009

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 138/2009

18.6.2009

Úrskurður nr. 138/2009

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2009, fimmtudaginn 18. júní, er tekið fyrir mál nr. 203/2009; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Sverrir Örn Björnsson og Valdimar Guðnason. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 14. maí 2009, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2005, 2006 og 2007.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A er gefið að sök eftirfarandi:

Vanræksla á skilum á virðisaukaskattsskýrslum. Vanframtalin skattskyld velta og útskattur.

A er gefið að sök að hafa, að því er best verður séð af ásetningi, en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna virðisaukaskattsskyldrar starfsemi sinnar til skattstjórans í Reykjavík vegna allra uppgjörstímabila rekstraráranna 2005, 2006 og 2007 og vanframtelja með því skattskylda veltu og virðisaukaskatt. Samkvæmt niðurstöðu skattrannsóknarstjóra ríkisins nemur vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 18.565.943 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 4.548.642.

Sundurliðast vanframtalin skattskyld velta og virðisaukaskattur svo sem hér greinir:

Rekstrarár Uppgjörstímabil Vantalin skattskyld velta Vanframtalinn útskattur
2005 jan. – feb. 810.064 198.467
2005 mar. – apr. 880.117 215.628
2005 maí – jún. 550.461 134.861
2005 júl. – ágú. 1.420.958 348.131
2005 sept. – okt. 1.715.669 420.339
2005 nóv. – des. 1.115.799 273.371
Samtals kr.   6.493.068 1.590.797
2006 jan. – feb. 896.000 219.520
2006 mar. – apr. 984.900 241.299
2006 maí – jún. 840.471 205.915
2006 júl. – ágú. 749.000 183.505
2006 sept. – okt. 1.076.856 263.829
2006 nóv. – des. 1.086.850 266.277
Samtals kr.   5.634.077 1.380.345
2007 jan. – feb. 1.017.600 249.310
2007 mar. – apr. 1.627.849 398.822
2007 maí – jún. 458.700 112.381
2007 júl. – ágú. 1.247.400 305.612
2007 sept. – okt. 1.052.700 257.911
2007 nóv. – des. 1.034.549 253.464
Samtals kr.   6.438.798 1.577.500
Samtals bæði (sic) árin kr. 18.565.943 4.548.642  

Sú háttsemi A sem hér hefur verið lýst brýtur í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. sbr. aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Varðar framanlýst háttsemi A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 14. maí 2009, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með ábyrgðarbréfi yfirskattanefndar, dags. 20. maí 2009, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins á heimilisfang sem uppgefið var í kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins. Var bréfið endursent yfirskattanefnd með því að gjaldandi þekktist ekki á fyrrum skráðu lögheimili. Fyrir liggur að gjaldandi hefur flutt lögheimili sitt til Noregs frá og með 15. apríl 2009.

III.

Sú regla kemur fram í 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, að skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunauts ef hann vill eigi hlíta því að mál verði afgreitt af yfirskattanefnd skv. 1. mgr. ákvæðisins. Ákvæði þetta ber að skilja svo að skattrannsóknarstjóri ríkisins geti ekki vísað máli til sektarmeðferðar fyrir yfirskattanefnd nema málið hafi áður verið borið undir gjaldanda og hann hafi gefið skattrannsóknarstjóra til kynna á sannanlegan hátt að hann mæli því ekki í gegn að málið hljóti sektarmeðferð fyrir yfirskattanefnd. Þar sem afstaða gjaldanda, A, til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd liggur ekki fyrir eru ekki skilyrði til þess að fjalla um málið fyrir yfirskattanefnd og er málinu því vísað frá.

Þessi niðurstaða breytir engu um heimild skattrannsóknarstjóra ríkisins til þess að ákveða af sjálfsdáðum hvort efni séu til að vísa máli til opinberrar rannsóknar og almennrar sakamálameðferðar fyrir dómstólum.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá yfirskattanefnd.

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum