2010

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 327/2010

10.11.2010

Úrskurður nr. 327/2010

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2010, miðvikudaginn 10. nóvember, er tekið fyrir mál nr. 252/2009; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Sverrir Örn Björnsson og Valdimar Guðnason. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 29. júní 2009, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2005, 2006 og 2007.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A er gefið að sök eftirfarandi:

Vanræksla á skilum á virðisaukaskattsskýrslum. Vanframtalin skattskyld velta og útskattur.

A er gefið að sök, að því er best verður séð af ásetningi, en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum til skattstjórans í Reykjavík vegna allra uppgjörstímabila rekstrarárin 2005, 2006 og 2007 og vanframtelja með því skattskylda veltu og virðisaukaskatt. Samkvæmt niðurstöðu skattrannsóknarstjóra ríkisins nemur vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 16.700.849 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 4.091.686.

Sundurliðast vanframtalin skattskyld velta og virðisaukaskattur svo sem hér greinir:

Rekstrarár Uppgjörstímabil Vanframtalin skattskyld velta Vanframtalinn útskattur
2005 jan.– feb. 715.000 175.175
2005 mars – apríl 650.000 159.250
2005 maí – júní 1.070.125 262.180
2005 júlí - ágúst 1.048.124 256.790
2005 sept. – okt. 975.025 238.881
2005 nóv. – des. 1.025.550 251.258
Samtals kr.   5.483.824 1.343.534
2006 jan.– feb. 883.650 216.494
2006 mars - apríl 886.250 217.130
2006 maí – júní 627.900 153.835
2006 júlí – ágúst 1.012.050 247.950
2006 sept. – okt. 1.005.100 246.247
2006 nóv. – des. 1.039.600 254.699
Samtals kr.   5.454.550 1.336.355
2007 jan.– feb. 947.000 232.014
2007 mars - apríl 984.900 241.300
2007 maí – júní 886.900 217.288
2007 júlí – ágúst 859.950 210.686
2007 sept. – okt. 1.111.075 272.212
2007 nóv. – des. 972.650 238.297
Samtals kr.   5.762.475 1.411.797
Samtals öll árin kr.   16.700.849 4.091.686

Sú háttsemi A sem hér hefur verið lýst brýtur í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. sbr. aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Varðar framanlýst háttsemi A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 29. júní 2009, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með bréfi yfirskattanefndar, dags. 1. júlí 2009, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins eða tilkynna sérstaklega ef hann vildi ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiddi mál hans og yrði málið þá endursent skattrannsóknarstjóra ríkisins sem tæki ákvörðun um hvort því yrði vísað til opinberrar rannsóknar, sbr. 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Var bréf þetta birt gjaldanda eftir ákvæðum b-liðar 1. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, í framhaldi af því að hann vitjaði ekki ábyrgðarbréfs nefndarinnar, dags. 1. júlí 2009, um sama efni. Engar athugasemdir hafa borist frá gjaldanda.

III.

1. Með bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 29. júní 2009, er gerð sú krafa að gjaldanda, A, verði gerð sekt samkvæmt þargreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Gjaldandi hefur átt þess kost að koma að vörnum fyrir yfirskattanefnd í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins, en engar athugasemdir hafa borist. Þar sem gjaldandi hefur ekki gert athugasemdir við meðferð máls þessa fyrir yfirskattanefnd verður að líta svo á að hann mæli því ekki í gegn að það sæti sektarmeðferð fyrir nefndinni.

2. Sektarkrafa skattrannsóknarstjóra ríkisins í máli þessu er byggð á niðurstöðum rannsóknar embættisins á bókhaldi og skattskilum gjaldanda vegna rekstraráranna 2005, 2006 og 2007, sbr. skýrslu um rannsóknina, dags. 20. október 2008. Rannsókn þessi hófst formlega hinn 8. ágúst 2008 og beindist að bókhaldi og virðisaukaskattsskilum gjaldanda vegna sjálfstæðrar starfsemi hans við trésmíðar. Var rannsóknin einkum byggð á upplýsingum sem fram komu við skýrslutöku af gjaldanda hinn 4. september 2008, svo og á sölureikningum gjaldanda og upplýsingum úr upplýsingakerfi ríkisskattstjóra. Með bréfi, dags. 1. október 2008, sendi skattrannsóknarstjóri gjaldanda skýrslu um rannsóknina, sem dagsett var sama dag, og gaf honum kost á að tjá sig um efni hennar. Engar athugasemdir voru gerðar af hálfu gjaldanda og var lokaskýrsla skattrannsóknarstjóra ríkisins efnislega samhljóða hinni fyrri að viðbættum kafla um lok rannsóknarinnar.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 20. október 2008, voru helstu niðurstöður rannsóknarinnar dregnar saman með svofelldum hætti:

„Niðurstöður rannsóknar á bókhaldi og virðisaukaskattsskilum skattaðila fyrir rekstrarárin 2005, 2006 og 2007 eru:

·1   Virðisaukaskattsskýrslum hefur ekki verið skilað fyrir uppgjörstímabil rekstraráranna 2005, 2006 og 2007.

·2   Fært bókhald hefur ekki verið afhent.

·3   Skattskyld velta er vantalin.

·4   Útskattur er vantalinn.

·5   Skattaðili stofnaði ekki til innskattshæfra rekstrargjalda.“

Þá gerði skattrannsóknarstjóri ríkisins tölulega grein fyrir niðurstöðum rannsóknarinnar í töflu í niðurlagi skýrslu sinnar. Þar kom fram að skattskyld velta gjaldanda væri vantalin um 5.483.824 kr. rekstrarárið 2005, 5.454.550 kr. rekstrarárið 2006 og 5.762.475 kr. rekstrarárið 2007 eða samtals 16.700.849 kr. öll árin og vantalinn útskattur því samtals 4.091.686 kr. greind ár.

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins var mál gjaldanda sent ríkisskattstjóra til meðferðar, sbr. 5. mgr. 39. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. bréf skattrannsóknarstjóra, dags. 21. október 2008. Á grundvelli rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins og í framhaldi af bréfi til gjaldanda, dags. 21. nóvember 2008, sem gjaldandi svaraði ekki, endurákvarðaði ríkisskattstjóri með úrskurði, dags. 19. desember 2008, virðisaukaskatt gjaldanda árin 2005, 2006 og 2007. Samkvæmt úrskurðinum var skattskyld velta gjaldanda ákvörðuð samtals 5.483.824 kr. uppgjörstímabilin janúar-febrúar til og með nóvember-desember 2005, 5.454.550 kr. uppgjörstímabilin janúar-febrúar til og með nóvember-desember 2006 og 5.762.475 kr. uppgjörstímabilin janúar-febrúar til og með nóvember-desember 2007 og kom fram að þær fjárhæðir væru í samræmi við niðurstöður skattrannsóknarstjóra ríkisins. Þá kom fram að gjaldandi hefði ekki stofnað til innskattshæfra rekstrargjalda og yrði virðisaukaskattur til greiðslu því 1.343.537 kr. árið 2005, 1.336.355 kr. árið 2006 og 1.411.800 kr. árið 2007 auk álags samkvæmt 1. og 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988. Gjaldandi nýtti sér ekki heimilaðar málskotsleiðir vegna þessa úrskurðar ríkisskattstjóra.

3. Fram kemur í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 20. október 2008, að gjaldandi hafi ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabila á árunum 2005, 2006 og 2007. Þá hafi fært bókhald gjaldanda ekki verið afhent. Gjaldandi hafi afhent sölureikninga sína frá árunum 2005, 2006 og 2007 svo og hafi sölureikningar fengist afhentir frá X ehf. Hafi gjaldandi notað fjögur sölureikningshefti með 50 sölureikningseyðublöðum í hverju hefti. Fram kemur að engan reikning vanti í fyrirliggjandi númeraraðir.

Niðurstöður skattrannsóknarstjóra ríkisins um fjárhæð skattskyldrar veltu gjaldanda árin 2005, 2006 og 2007 byggja á umræddum sölureikningum gjaldanda greind ár, samtals að fjárhæð 6.827.358 kr. árið 2005, 6.790.905 kr. árið 2006 og 7.174.272 kr. árið 2007. Samkvæmt því er niðurstaða skattrannsóknarstjóra um þennan þátt sú að skattskyld velta sé vantalin um 5.483.824 kr. árið 2005, 5.454.550 kr. árið 2006 og 5.762.475 kr. árið 2007 og útskattur um 1.343.534 kr. fyrsta árið, 1.336.355 kr. annað árið og 1.411.797 kr. þriðja árið.

Í kafla um rannsókn á innskatti gjaldanda kemur fram að gjaldandi hafi staðfest við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra að hann hafi ekki stofnað til innskattshæfra rekstrargjalda vegna sjálfstæðrar starfsemi sinnar.

Við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 4. september 2008 kom fram af hálfu gjaldanda að hann hefði stundað sjálfstæða starfsemi sem fólgin hefði verið í alls kyns smíðavinnu. Hann hefði komið bókhaldsgögnum til bókara en sagðist ekki muna vegna hvaða rekstrarára það hefði verið. Aðspurður um ástæðu þess að virðisaukaskattsskýrslum var ekki skilað til skattyfirvalda sagði gjaldandi eigin trassaskap vera um að kenna. Við skýrslutökuna voru ljósrit af sölureikningum gjaldanda árin 2005, 2006 og 2007 lögð fyrir hann og staðfesti gjaldandi að hann hefði gefið sölureikninga þessa út og fengið þá greidda. Greindi gjaldandi frá því að innheimtur virðisaukaskattur hefði farið í eigin framfærslu og að hann hefði ekki stofnað til innskattshæfra rekstrargjalda vegna sjálfstæðrar starfsemi sinnar.

4. Gjaldandi hefur sem fyrr segir ekki gert athugasemdir í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins og við skýrslutöku, sem fram fór hjá skattrannsóknarstjóra vegna rannsóknar málsins, kom fram viðurkenning gjaldanda á því að hann hefði ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum og innheimtum virðisaukaskatti á árunum 2005, 2006 og 2007. Í máli því, sem hér er til meðferðar, er um að tefla kröfugerð um ákvörðun sektar á hendur gjaldanda samkvæmt þar tilgreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sem gera ráð fyrir því að sektarákvörðun sé bundin þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin. Verður því að taka afstöðu til þess hvort skattrannsóknarstjóri ríkisins hafi með skattrannsókn sinni sýnt fram á hverju skattfjárhæð, sem undan var dregin, hafi að minnsta kosti numið. Allan vafa í því sambandi verður að meta gjaldanda í hag, sbr. grundvallarreglu 108. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, sbr. áður 45. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála.

Eins og rakið er að framan eru tölulegar niðurstöður samkvæmt rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins að því er varðar skattskylda veltu gjaldanda árin 2005, 2006 og 2007 byggðar á útgefnum sölureikningum gjaldanda. Sölureikningar þessir eru að fjárhæð 6.827.358 kr. árið 2005, 6.790.905 kr. árið 2006 og 7.174.272 kr. árið 2007. Á þessum grundvelli er í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins gerð grein fyrir meintri vantalinni skattskyldri veltu að fjárhæð 5.483.824 kr. árið 2005, 5.454.550 kr. árið 2006 og 5.762.475 kr. árið 2007. Af hálfu gjaldanda er viðurkennt að tekjur hans hafi numið þeim fjárhæðum sem sölureikningar þessir bera með sér, sbr. framburð gjaldanda við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 4. september 2008. Verður að skilja framburð gjaldanda þannig að hann líti svo á að í öllum tilvikum sé um að ræða tekjur af sjálfstæðri starfsemi, svo sem byggt er á í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins án þess að athugasemdir hafi komið fram af hálfu gjaldanda. Samkvæmt þessu og að virtum gögnum málsins að öðru leyti þykir ekkert komið fram sem gefur tilefni til annars en að miða við þær fjárhæðir skattskyldrar veltu sem greinir í niðurstöðum skattrannsóknarstjóra ríkisins. Af hálfu gjaldanda hefur ekkert komið fram um tilefni til frádráttar innskatts. Verður því byggt á niðurstöðum rannsóknarskýrslu um þann þátt málsins.

Fullsannað þykir samkvæmt því sem að framan er rakið og að öðru leyti með stoð í gögnum málsins, m.a. framburði gjaldanda við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins, að gjaldandi, sem skyldur var til þess að standa skil á virðisaukaskatti, sbr. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, hafi á saknæman hátt vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum öll uppgjörstímabil áranna 2005, 2006 og 2007 og þannig vanrækt að gera grein fyrir virðisaukaskatti til greiðslu samtals að fjárhæð 4.091.686 kr. umrædd uppgjörstímabil, sbr. sundurliðun í kröfubréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins. Varðar þetta gjaldanda sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995.

Ákvarða ber gjaldanda, A, sekt samkvæmt framangreindum ákvæðum 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, vegna vanrækslu á skilum virðisaukaskatts og virðisaukaskattsskýrslna sem að framan greinir. Samkvæmt breytingum á refsiákvæðum skattalaga, sem gerðar voru með lögum nr. 42/1995 og tóku gildi 9. mars 1995, skal sekt aldrei vera lægri en sem nemur tvöfaldri þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin, þó að teknu tilliti til álags. Líta ber til þess að gjaldandi gekkst greiðlega við brotum sínum og að nokkur dráttur hefur orðið á meðferð málsins án þess að gjaldanda verði um kennt. Að þessu virtu og að teknu tilliti til álags samkvæmt 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988 þykir sekt gjaldanda hæfilega ákveðin 7.700.000 kr. til ríkissjóðs.

Úrskurðarorð:

Gjaldandi, A, greiði sekt að fjárhæð 7.700.000 kr. til ríkissjóðs.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum