2011

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 209/2011

29.6.2011

Úrskurður nr. 209/2011

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2011, miðvikudaginn 29. júní, er tekið fyrir mál nr. 114/2011; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Sverrir Örn Björnsson og Kristinn Gestsson. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 18. nóvember 2010, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2004 til og með 2008.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A er gefið að sök eftirfarandi:

Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur. Vanræksla á afhendingu virðisaukaskattsskýrslna á lögmæltum tíma.

A er gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni, sem fólst í járnsmíði, vegna uppgjörstímabilanna maí – júní til og með nóvember – desember rekstrarárið 2004, janúar – febrúar til og með nóvember – desember rekstrarárið 2005, janúar – febrúar til og með nóvember – desember rekstrarárið 2006, janúar – febrúar til og með nóvember – desember rekstrarárið 2007 og janúar – febrúar til og með nóvember – desember rekstrarárið 2008. Þá er A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs, á lögmæltum tíma, skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila.

Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur til innheimtumanns ríkissjóðs vegna framangreindra uppgjörstímabila nemur samtals kr. 3.830.247. Fjárhæðin sundurliðast svo sem hér greinir:

Rekstrarár Uppgjörstímabil Vangoldinn virðisaukaskattur til innheimtumanns ríkissjóðs kr.
2004 maí – júní 159.151
2004 júlí –  ágúst 159.174
2004 september – október 148.147
2004 nóvember – desember 78.988
Samtals kr.   545.460
2005 janúar – febrúar 64.160
2005 mars – apríl 64.160
2005 maí – júní 64.160
2005 júlí – ágúst 64.160
2005 september – október 64.160
2005 nóvember – desember 64.160
Samtals kr.   384.960
2006 janúar – febrúar 52.750
2006 mars – apríl 136.341
2006 maí – júní 168.093
2006 júlí – ágúst 199.088
2006 september – október 140.765
2006 nóvember – desember 223.710
Samtals kr.   920.747
2007 janúar – febrúar 54.096
2007 mars – apríl 122.561
2007 maí – júní 117.352
2007 júlí – ágúst 178.278
2007 september – október 143.854
2007 nóvember – desember 256.569
Samtals kr.   872.710
2008 janúar – febrúar 61.096
2008 mars – apríl 466.277
2008 maí – júní 235.825
2008 júlí – ágúst 125.097
2008 september – október 194.408
2008 nóvember – desember 23.667
Samtals kr.   1.106.370
Samtals öll árin   3.830.247

Er það mat skattrannsóknarstjóra ríkisins, byggt á gögnum málsins, að þetta hafi A gert á saknæman hátt, að því er frekast verður séð af ásetningi, eða í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi.

Telst þessi háttsemi A brjóta í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., samanber aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. og 2. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Framanlýst háttsemi A varðar hann sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sektum í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 29. mars 2011, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með ábyrgðarbréfi yfirskattanefndar, dags. 31. mars 2011, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Var bréfið endursent yfirskattanefnd með því að þess hefði ekki verið vitjað. Reynt var að koma fram birtingu fyrir gjaldanda, A, eftir ákvæðum b-liðar 1. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, með bréfi yfirskattanefndar, dags. 18. maí 2011, en birting tókst ekki.

III.

Sú regla kemur fram í 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, að skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunauts ef hann vill eigi hlíta því að mál verði afgreitt af yfirskattanefnd samkvæmt framangreindum ákvæðum. Ákvæði þessi ber að skilja svo að skattrannsóknarstjóri ríkisins geti ekki vísað máli til sektarmeðferðar fyrir yfirskattanefnd nema málið hafi áður verið borið undir gjaldanda og hann hafi gefið skattrannsóknarstjóra til kynna á sannanlegan hátt að hann mæli því ekki í gegn að málið hljóti sektarmeðferð fyrir yfirskattanefnd. Þar sem afstaða gjaldanda, A, til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd liggur ekki fyrir eru ekki skilyrði til þess að fjalla um málið fyrir yfirskattanefnd og er málinu því vísað frá.

Þessi niðurstaða breytir engu um heimild skattrannsóknarstjóra ríkisins til þess að ákveða af sjálfsdáðum hvort efni séu til að vísa máli til opinberrar rannsóknar og almennrar sakamálameðferðar fyrir dómstólum.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá yfirskattanefnd.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum