2011

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 33/2011

16.2.2011

Úrskurður nr. 33/2011

 

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2011, miðvikudaginn 16. febrúar, er tekið fyrir mál nr. 327/2010; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Sverrir Örn Björnsson og Valdimar Guðnason. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 18. nóvember 2010, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2005, 2006 og 2007.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A er gefið að sök eftirfarandi:

Vanræksla á skilum á virðisaukaskattsskýrslum. Skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum. Vanframtalin skattskyld velta og útskattur.

A er gefið að sök að hafa, að því er best verður séð af ásetningi, en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna virðisaukaskattsskyldrar starfsemi sinnar til skattstjórans í Reykjavík vegna uppgjörstímabilanna júlí–ágúst til og með nóvember–desember rekstrarárið 2005, janúar–febrúar til og með nóvember–desember rekstrarárið 2006 og janúar–febrúar til og með nóvember–desember rekstrarárið 2007. Þá stóð A skattstjóranum í Reykjavík, skil á efnislega rangri virðisaukaskattsskýrslu vegna uppgjörstímabilsins janúar–febrúar rekstrarárið 2005. Með framangreindri háttsemi sinni vanframtaldi A skattskylda veltu og útskatt vegna uppgjörstímabilanna janúar–febrúar, september–október og nóvember–desember rekstrarárið 2005, janúar–febrúar til og með nóvember–desember rekstrarárið 2006, janúar–febrúar, mars–apríl, maí–júní, júlí–ágúst og nóvember–desember rekstrarárið 2007. Samkvæmt niðurstöðu skattrannsóknarstjóra ríkisins nemur vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 4.933.996 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 1.208.829.  

Sundurliðast vanframtalin skattskyld velta og virðisaukaskattur svo sem hér greinir:

 

Rekstrarár

Uppgjörs-tímabil Vantalin skattskyld velta Vanframtalinn útskattur
2005 jan. – feb. 294.287 72.100
2005 sept. – okt. 80.321 19.679
2005 nóv. – des. 440.302 107.874
Samtals kr.   814.910 199.653
2006 jan. – feb. 157.279 38.533
2006 mar. – apr. 463.940 113.665
2006 maí – jún. 308.000 75.460
2006 júl. – ágú. 333.000 81.585
2006 sept. – okt. 360.000 88.200
2006 nóv. – des. 329.071 80.623
Samtals kr.   1.951.290 478.066
2007 jan. – feb. 192.500 47.162
2007 mar. – apr. 154.000 37.730
2007 maí – jún. 853.998 209.230
2007 júl. – ágú. 842.800 206.486
2007 nóv. – des. 124.498 30.502
Samtals kr.   2.167.796 531.110
Samtals öll árin kr.   4.933.996 1.208.829

Sú háttsemi A sem hér hefur verið lýst brýtur í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. sbr. aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Varðar framanlýst háttsemi A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 18. nóvember 2010, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með ábyrgðarbréfi yfirskattanefndar, dags. 23. nóvember 2010, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Var bréfið endursent yfirskattanefnd með því að þess hefði ekki verið vitjað. Reynt var að koma fram birtingu fyrir gjaldanda, A, eftir ákvæðum b-liðar 1. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, með bréfi yfirskattanefndar, dags. 7. janúar 2011, en birting tókst ekki.

III.

Sú regla kemur fram í 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, að skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunauts ef hann vill eigi hlíta því að mál verði afgreitt af yfirskattanefnd samkvæmt framangreindum ákvæðum. Ákvæði þessi ber að skilja svo að skattrannsóknarstjóri ríkisins geti ekki vísað máli til sektarmeðferðar fyrir yfirskattanefnd nema málið hafi áður verið borið undir gjaldanda og hann hafi gefið skattrannsóknarstjóra til kynna á sannanlegan hátt að hann mæli því ekki í gegn að málið hljóti sektarmeðferð fyrir yfirskattanefnd. Þar sem afstaða gjaldanda, A, til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd liggur ekki fyrir eru ekki skilyrði til þess að fjalla um málið fyrir yfirskattanefnd og er málinu því vísað frá.

Þessi niðurstaða breytir engu um heimild skattrannsóknarstjóra ríkisins til þess að ákveða af sjálfsdáðum hvort efni séu til að vísa máli til opinberrar rannsóknar og almennrar sakamálameðferðar fyrir dómstólum.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá yfirskattanefnd.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum