Úrskurður yfirskattanefndar nr. 171/2011
Úrskurður nr. 171/2011
ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR
Ár 2011, miðvikudaginn 15. júní, er tekið fyrir mál nr. 144/2011; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Anna Dóra Helgadóttir og Valdimar Guðnason. Upp er kveðinn svofelldur
ú r s k u r ð u r :
I.
Með bréfi, dags. 14. apríl 2011, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2007, 2008 og 2009.
Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:
„A, sem stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og prókúruhafa X ehf., (nú afskráð), er gefið að sök eftirfarandi:
1. Vangoldin afdregin staðgreiðsla opinberra gjalda launamanna. Vanræksla á afhendingu skilagreina á lögmæltum tíma.
A er gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf. vegna greiðslutímabilanna desember rekstrarárið 2007, janúar til og með desember rekstrarárið 2008 og janúar og febrúar rekstrarárið 2009. Þá er A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna desember rekstrarárið 2007, janúar, febrúar, október, nóvember og desember rekstrarárið 2008 og janúar og febrúar rekstrarárið 2009, á lögmæltum tíma. Vangoldin afdregin skilaskyld staðgreiðsla opinberra gjalda X ehf. (nú afskráð), vegna framangreindra greiðslutímabila nemur samtals kr. 1.674.610, að teknu tilliti til afdreginnar staðgreiðslu af launum fyrrum fyrirsvarsmanns skattaðila. Fjárhæðin sundurliðast svo sem hér greinir:
Rekstrarár | Greiðslu-tímabil | Afdregin staðgreiðsla | Afdregin staðgreiðsla fyrirsvarsmanns | Vangoldin skilaskyld staðgreiðsla kr. |
2007 | desember | 256.599 | 111.873 | 144.726 |
Samtals kr. | 256.599 | 111.873 | 144.726 | |
2008 | janúar | 64.438 | 37.978 | 26.460 |
2008 | febrúar | 67.709 | 37.978 | 29.731 |
2008 | mars | 67.709 | 37.978 | 29.731 |
2008 | apríl | 59.186 | 37.978 | 21.208 |
2008 | maí | 228.900 | 37.978 | 190.922 |
2008 | júní | 423.939 | 109.989 | 313.950 |
2008 | júlí | 333.863 | 109.989 | 223.874 |
2008 | ágúst | 160.555 | 109.989 | 50.566 |
2008 | september | 174.407 | 37.978 | 136.429 |
2008 | október | 325.940 | 37.978 | 287.962 |
2008 | nóvember | 248.616 | 37.978 | 210.638 |
2008 | desember | 45.093 | 37.978 | 7.115 |
Samtals kr. | 2.200.355 | 671.769 | 1.528.586 | |
2009 | janúar | 33.439 | 32.790 | 649 |
2009 | febrúar | 33.439 | 32.790 | 649 |
Samtals kr. | 66.878 | 65.580 | 1.298 | |
Samtals öll árin | 2.523.832 | 849.222 | 1.674.610 |
Það er mat skattrannsóknarstjóra ríkisins, byggt á gögnum málsins, að þetta hafi A gert á saknæman hátt, að því er frekast verður séð af ásetningi eða í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi.
Telst þessi háttsemi A brjóta í bága við ákvæði 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. aðalreglur 1.-3. gr., 1. tl. 5. gr., 1. mgr. 7. gr. og 1. og 3. mgr. 8. gr. þeirra laga.
Framangreind háttsemi varðar A sekt samkvæmt 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum.
2. Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur. Vanræksla á afhendingu virðisaukaskattsskýrslna á lögmæltum tíma.
A er gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf. vegna uppgjörstímabilanna september–október og nóvember–desember rekstrarárið 2007, janúar–febrúar til og með nóvember–desember rekstrarárið 2008 og janúar–febrúar og mars–apríl rekstrarárið 2009. Þá er A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs, á lögmæltum tíma, skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila. Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur til innheimtumanns ríkissjóðs vegna framangreindra uppgjörstímabila nemur samtals kr. 7.436.476. Fjárhæðin sundurliðast svo sem hér greinir:
Rekstrarár | Uppgjörs-tímabil | Vangoldinn virðisaukaskattur til innheimtumanns ríkissjóðs kr. |
2007 | sept. – okt. | 2.211.263 |
2007 | nóv. – des. | 1.013.512 |
Samtals kr. | 3.224.775 | |
2008 | jan. – feb. | 81.441 |
2008 | mars – apríl | 664.471 |
2008 | maí – júní | 79.457 |
2008 | júlí – ágúst | 626.032 |
2008 | sept. – okt. | 980.647 |
2008 | nóv. – des. | 966.799 |
Samtals kr. | 3.398.847 | |
2009 | jan. – feb. | 525.709 |
2009 | mars – apríl | 287.145 |
Samtals kr. | 812.854 | |
Samtals öll árin kr. | 7.436.476 |
Það er mat skattrannsóknarstjóra ríkisins, byggt á gögnum málsins, að þetta hafi A gert á saknæman hátt, að því er frekast verður séð af ásetningi eða í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi.
Telst þessi háttsemi A brjóta í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., samanber aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. og 2. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Framangreind háttsemi varðar A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, með áorðnum breytingum.
Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“
Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 14. apríl 2011, sem fylgdi kröfugerðinni.
II.
Með ábyrgðarbréfi yfirskattanefndar á síðasta skráð heimilisfang gjaldanda á Íslandi, dags. 15. apríl 2011, var gjaldanda, A, veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Var bréfið endursent yfirskattanefnd með því að gjaldandi væri fluttur. Er það í samræmi við skráningu í þjóðskrá.
III.
Sú regla kemur fram í 4. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, og samsvarandi ákvæði í 4. mgr. 31. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, að skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunauts ef hann vill eigi hlíta því að mál verði afgreitt af yfirskattanefnd samkvæmt framangreindum ákvæðum. Ákvæði þessi ber að skilja svo að skattrannsóknarstjóri ríkisins geti ekki vísað máli til sektarmeðferðar fyrir yfirskattanefnd nema málið hafi áður verið borið undir gjaldanda og hann hafi gefið skattrannsóknarstjóra til kynna á sannanlegan hátt að hann mæli því ekki í gegn að málið hljóti sektarmeðferð fyrir yfirskattanefnd. Þar sem afstaða gjaldanda, A, til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd liggur ekki fyrir eru ekki skilyrði til þess að fjalla um málið fyrir yfirskattanefnd og er málinu því vísað frá.
Þessi niðurstaða breytir engu um heimild skattrannsóknarstjóra ríkisins til þess að ákveða af sjálfsdáðum hvort efni séu til að vísa máli til opinberrar rannsóknar og almennrar sakamálameðferðar fyrir dómstólum.
Úrskurðarorð:
Máli þessu er vísað frá yfirskattanefnd.