2011

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 172/2011

15.6.2011

Úrskurður nr. 172/2011

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2011, miðvikudaginn 15. júní, er tekið fyrir mál nr. 83/2011; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Anna Dóra Helgadóttir og Valdimar Guðnason. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 17. mars 2011, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, og lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, framin vegna rekstraráranna 2005, 2006 og 2007.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A er gefið að sök eftirfarandi:

Skil á efnislega röngum skattframtölum. Vanframtaldar launatekjur. Vanframtaldar rekstrartekjur.

A er gefið að sök að hafa, að því er best verður séð af ásetningi, en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, staðið skattstjóranum í Reykjavík skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2006 til og með 2008, vegna rekstraráranna 2005 til og með 2007, með því að vanrækja að gera grein fyrir launatekjum sínum sem til eru komnar vegna starfa hennar fyrir X ehf. og rekstrartekjum sínum sem til eru komnar vegna starfa hennar fyrir Z ehf. og Y ehf.

Framangreind háttsemi A leiddi til ákvörðunar lægri tekjuskatts- og útsvarsstofna hennar en vera bar gjaldárin 2006 til og með 2008, vegna rekstraráranna 2005 til og með 2007 og þar með til ákvörðunar lægri tekjuskatts og útsvars, svo sem hér segir:

Reiknaður tekjuskattur og útsvar

 

Rekstrarár

Vanframtalinn tekjuskatts- og útsvarsstofn

 

Tekjuskattur

 

Útsvar

2005 2.163.140  Vanframtaldar launatekjur kr. 425.540 + vanframtaldar rekstrartekjur kr. 1.737.600 = 2.163.140 535.377  2.163.140 * 24,75% = 535.377 281.857  2.163.140 * 13,03% = 281.857
2006 2.269.771  Vanframtaldar launatekjur kr. 363.171 + vanframtaldar rekstrartekjur kr. 1.906.600 = 2.269.771 539.071  2.269.771 * 23,75% = 539.071 295.751  2.269.771 * 13,03% = 295.751
2007 610.061  Vanframtaldar rekstrartekjur kr. 610.061 138.789  610.061 * 22,75% = 138.789 79.491 610.061 * 13,03% = 79.491
Samtals kr. 5.042.972 1.213.237 657.099

Sú háttsemi A sem lýst hefur verið hér að framan brýtur í bága við ákvæði 90. gr., sbr. A. og B. lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 22. gr. og 19. gr. og 1. mgr. 21. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Varðar framanlýst háttsemi A sekt samkvæmt 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Við ákvörðun skattstofna vegna rekstraráranna 2005, 2006 og 2007 hefur A verið gert að sæta álagningu skatts á álag á vanframtalinn tekjuskattsstofn samkvæmt 108. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með áorðnum breytingum, kr. 452.365, er komi til frádráttar við ákvörðun sektarfjárhæðar.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 17. mars 2011, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með ábyrgðarbréfi yfirskattanefndar, dags. 22. mars 2011, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Var bréfið endursent yfirskattanefnd með því að þess hefði ekki verið vitjað. Reynt var að koma fram birtingu fyrir gjaldanda, A, eftir ákvæðum b-liðar 1. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, með bréfi yfirskattanefndar, dags. 28. apríl 2011, en birting tókst ekki.

III.

Sú regla kemur fram í 4. mgr. 110. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, að skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunauts ef hann vill eigi hlíta því að mál verði afgreitt af yfirskattanefnd samkvæmt framangreindum ákvæðum. Ákvæði þessi ber að skilja svo að skattrannsóknarstjóri ríkisins geti ekki vísað máli til sektarmeðferðar fyrir yfirskattanefnd nema málið hafi áður verið borið undir gjaldanda og hann hafi gefið skattrannsóknarstjóra til kynna á sannanlegan hátt að hann mæli því ekki í gegn að málið hljóti sektarmeðferð fyrir yfirskattanefnd. Þar sem afstaða gjaldanda, A, til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd liggur ekki fyrir eru ekki skilyrði til þess að fjalla um málið fyrir yfirskattanefnd og er málinu því vísað frá.

Þessi niðurstaða breytir engu um heimild skattrannsóknarstjóra ríkisins til þess að ákveða af sjálfsdáðum hvort efni séu til að vísa máli til opinberrar rannsóknar og almennrar sakamálameðferðar fyrir dómstólum.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá yfirskattanefnd.

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum