2012

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 568/2012

14.11.2012

Úrskurður nr. 568/2012

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2012, miðvikudaginn 14. nóvember, er tekið fyrir mál nr. 223/2012; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Anna Dóra Helgadóttir og Sverrir Örn Björnsson. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 5. júlí 2012, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2008, 2009 og 2010.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A er gefið að sök eftirfarandi:

Vanræksla á skilum á virðisaukaskattsskýrslum. Vanframtalin skattskyld velta og útskattur.

A er gefið að sök að hafa vanrækt, að því er best verður séð af ásetningi en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, að standa skattyfirvöldum skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna allra uppgjörstímabila rekstraráranna 2008, 2009 og 2010 og að vanframtelja þannig skattskylda veltu og virðisaukaskatt vegna sjálfstæðrar starfsemi sinnar við húsamálun vegna uppgjörstímabilanna frá og með janúar–febrúar 2008 til og með nóvember–desember 2010. Samkvæmt rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins nemur vanframtalin virðisaukaskattsskyld velta samtals kr. 20.737.019 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 5.124.520.

Sundurliðast vanframtalin skattskyld velta og virðisaukaskattur svo sem hér greinir:

Rekstrarár Uppgjörstímabil Vanframtalin skattskyld velta kr. Vanframtalinn útskattur kr.
2008 janúar – febrúar 1.148.499 281.382
2008 mars – apríl 1.175.200 287.924
2008 maí – júní 1.733.000 424.585
2008 júlí – ágúst 1.177.400 288.463
2008 september – október 1.011.400 247.793
2008 nóvember – desember 1.470.400 360.248
Samtals kr.   7.715.899 1.890.395
2009 janúar – febrúar 1.116.000 273.420
2009 mars – apríl 837.600 205.212
2009 maí – júní 1.014.200 248.479
2009 júlí – ágúst 1.541.200 377.594
2009 september – október 581.928 142.572
2009 nóvember - desember 1.376.104 337.146
Samtals kr.   6.467.032 1.584.423
2010 janúar – febrúar 863.052 211.448
2010 mars – apríl 1.295.984 317.516
2010 maí – júní 1.200.853 306.217
2010 júlí – ágúst 1.778.800 453.594
2010 september – október 1.415.399 360.927
2010 nóvember – desember 0 0
Samtals kr.   6.554.088 1.649.702
Samtals öll árin kr.   20.737.019 5.124.520

Sú háttsemi A sem hér hefur verið lýst brýtur í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. aðalreglur 1. gr. og 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. og 2. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Umrædd háttsemi varðar A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Við endurákvörðun á virðisaukaskatti vegna rekstraráranna 2008, 2009 og 2010 hefur A verið gert að sæta álagi á vangreiddan virðisaukaskatt, kr. 140.963, er komi til frádráttar við ákvörðun sektarfjárhæðar.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 5. júlí 2012, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með bréfi yfirskattanefndar, dags. 6. júlí 2012, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins eða tilkynna sérstaklega ef hann vildi ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiddi mál hans og yrði málið þá endursent skattrannsóknarstjóra ríkisins sem tæki ákvörðun um hvort því yrði vísað til opinberrar rannsóknar, sbr. 4. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Engar athugasemdir hafa borist frá gjaldanda.

III.

1. Með bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 5. júlí 2012, er gerð sú krafa að gjaldanda, A, verði gerð sekt samkvæmt þargreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Gjaldandi hefur átt þess kost að koma að vörnum fyrir yfirskattanefnd í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins, en engar athugasemdir hafa borist. Þar sem gjaldandi hefur ekki gert athugasemdir við meðferð máls þessa fyrir yfirskattanefnd verður að líta svo á að hann mæli því ekki í gegn að það sæti sektarmeðferð fyrir nefndinni.

2. Sektarkrafa skattrannsóknarstjóra ríkisins í máli þessu er byggð á niðurstöðum rannsóknar embættisins á bókhaldi og skattskilum gjaldanda vegna rekstraráranna 2008, 2009 og 2010, sbr. skýrslu um rannsóknina, dags. 15. desember 2011, þar sem fram kom að á rannsóknartímabilinu hefði gjaldandi starfað sjálfstætt við húsamálun. Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins hófst formlega hinn 11. október 2011 og beindist að bókhaldi og virðisaukaskattsskilum gjaldanda. Var rannsóknin einkum byggð á upplýsingum sem fram komu við skýrslutökur af gjaldanda 20. október 2011, sölureikningum gjaldanda og upplýsingum úr upplýsingakerfum ríkisskattstjóra. Með bréfi, dags. 25. nóvember 2011, sendi skattrannsóknarstjóri gjaldanda skýrslu um rannsóknina sem þá lá fyrir, dags. 18. nóvember 2011, og gaf honum kost á að tjá sig um efni hennar. Af hálfu gjaldanda voru engar athugasemdir gerðar og tók skattrannsóknarstjóri ríkisins í framhaldi af þessu saman nýja skýrslu um rannsóknina, dags. 15. desember 2011, sem var efnislega samhljóða hinni fyrri að viðbættum kafla um lok rannsóknarinnar.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 15. desember 2011, voru helstu niðurstöður rannsóknarinnar dregnar saman með svofelldum hætti:

„Niðurstöður rannsóknar á bókhaldi og skattsskilum skattaðila eru:

·1  Virðisaukaskattsskýrslum hefur ekki verið skilað.

·2  Bókhaldsgögnum hefur ekki verið haldið til haga.

·3  Bókhald hefur ekki verið fært.

·4  Skattskyld velta og útskattur eru vantalin.

·5  Gögn um innskattsbær rekstrargjöld hafa ekki verið afhent.“

Þá gerði skattrannsóknarstjóri ríkisins tölulega grein fyrir niðurstöðum rannsóknarinnar í töflu í niðurlagi skýrslu sinnar. Þar kom fram að skattskyld velta gjaldanda væri vantalin um 7.715.899 kr. rekstrarárið 2008, um 6.467.032 kr. rekstrarárið 2009 og um 6.554.088 kr. rekstrarárið 2010. Þá væri útskattur vantalinn um samtals 5.124.520 kr. greind ár.

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins var mál gjaldanda sent ríkisskattstjóra til meðferðar, sbr. 5. mgr. 39. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. bréf skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 16. desember 2011. Á grundvelli rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins og í framhaldi af bréfi til gjaldanda, dags. 1. febrúar 2012, sem gjaldandi svaraði ekki, endurákvarðaði ríkisskattstjóri með úrskurði, dags. 14. mars 2012, virðisaukaskatt gjaldanda árin 2008, 2009 og 2010. Samkvæmt úrskurðinum var skattskyld velta ákvörðuð 7.715.899 kr. rekstrarárið 2008, 6.478.856 kr. rekstrarárið 2009 og 6.536.884 kr. rekstrarárið 2010. Í úrskurðinum kom fram að þær fjárhæðir væru í samræmi við niðurstöður skattrannsóknarstjóra ríkisins að öðru leyti en því að eftir nánari athugun ríkisskattstjóra á sölureikningum gjaldanda hefði verið ákveðið að afreikna virðisaukaskatt af heildarfjárhæð sölureikninga miðað við þá virðisaukaskattsprósentu sem hefði verið í gildi á hverju uppgjörstímabili fyrir sig. Í samræmi við þetta var virðisaukaskattur ákvarðaður 1.890.395 kr. árið 2008, 1.587.320 kr. árið 2009 og 1.666.906 kr. árið 2010 auk álags samkvæmt 1. og 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988. Gjaldandi nýtti sér ekki heimilaðar málskotsleiðir vegna þessa úrskurðar ríkisskattstjóra.

3. Fram kemur í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 15. desember 2011, að gjaldandi hafi ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabila á árunum 2008, 2009 og 2010. Er í þessu sambandi rakinn sá framburður gjaldanda við skýrslutöku 20. október 2011 að hann hefði byrjað að sinna skattskilunum illa og ekki komist aftur á rétta braut. Þá kemur fram að gjaldandi hafi ekki fært eða látið færa bókhald vegna starfsemi sinnar. Fyrirliggjandi séu sölureikningar gjaldanda frá rannsóknartímabilinu með númeraröðunum 20-50 og 1-49. Sjö sölureikninga vanti til þess að númeraröð sölureikninga gjaldanda sé samfelld, en skattrannsóknarstjóri ríkisins taldi ekki forsendur til þess að leggja mat á ætlaðan undandrátt tekna af þeim sökum.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins er gerð grein fyrir rannsókn á skattskyldri veltu og útskatti gjaldanda. Við skýrslutökur 20. október 2011 voru útgefnir sölureikningar gjaldanda rekstrarárin 2008, 2009 og 2010 lagðir fyrir hann og staðfesti gjaldandi að hann hefði gefið þá út og að þeir hefðu allir fengist greiddir. Niðurstöður í skýrslunni um fjárhæð skattskyldrar veltu gjaldanda á árunum 2008 til og með 2010 eru byggðar á fyrirliggjandi sölureikningum gjaldanda. Samkvæmt þeim hafi skattskyld velta gjaldanda numið 7.715.899 kr. rekstrarárið 2008 (útskattur 1.890.395 kr.), 6.467.032 kr. rekstrarárið 2009 (útskattur 1.584.423 kr.) og 6.554.088 kr. rekstrarárið 2010 (útskattur 1.649.702 kr.).

Í kafla um rannsókn á innskatti gjaldanda kemur fram að gjaldandi hafi greint frá því við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 20. október 2011 að hann hefði haft einhvern kostnað af sjálfstæðri starfsemi sinni og að hann gæti afhent skattrannsóknarstjóra yfirlit yfir úttektir hjá X hf. Engin gögn hefðu borist skattrannsóknarstjóra ríkisins.

4. Gjaldandi hefur sem fyrr segir ekki gert athugasemdir í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins og við skýrslutökur, sem fram fóru hjá skattrannsóknarstjóra vegna rannsóknar málsins, kom fram viðurkenning gjaldanda á því að hann hefði ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum og innheimtum virðisaukaskatti árin 2008, 2009 og 2010. Í máli því, sem hér er til meðferðar, er um að tefla kröfugerð um ákvörðun sektar á hendur gjaldanda samkvæmt þar tilgreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sem gera ráð fyrir því að sektarákvörðun sé bundin þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin. Verður því að taka afstöðu til þess hvort skattrannsóknarstjóri ríkisins hafi með skattrannsókn sinni sýnt fram á hverju skattfjárhæð, sem undan var dregin, hafi að minnsta kosti numið. Allan vafa í því sambandi verður að meta gjaldanda í hag, sbr. grundvallarreglu 108. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála.

Eins og rakið er að framan eru tölulegar niðurstöður samkvæmt rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á skattskilum gjaldanda vegna áranna 2008, 2009 og 2010 byggðar á útgefnum sölureikningum gjaldanda sem hann afhenti skattrannsóknarstjóra vegna rannsóknar málsins. Greindir sölureikningar eru að fjárhæð 9.606.294 kr. rekstrarárið 2008, 8.051.455 kr. rekstrarárið 2009 og 8.203.790 kr. rekstrarárið 2010. Reiknaðist skattskyld velta gjaldanda í samræmi við framangreint 7.715.899 kr. rekstrarárið 2008, 6.467.032 kr. rekstrarárið 2009 og 6.554.088 kr. rekstrarárið 2010 og útskattur 1.890.395 kr. árið 2008, 1.584.423 kr. árið 2009 og 1.649.702 kr. árið 2010. Eru þetta þær fjárhæðir sem tilgreindar eru sem tölulegar niðurstöður rannsóknarinnar um vantalda skattskylda veltu og virðisaukaskatt (útskatt). Umræddir sölureikningar voru lagðir fyrir gjaldanda við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 20. október 2011 og staðfesti gjaldandi að hafa gefið sölureikningana út og að þeir hefðu fengist greiddir. Samkvæmt þessu og að virtum gögnum málsins þykir ekkert komið fram sem gefur tilefni til annars en að miða við þær fjárhæðir innheimts virðisaukaskatts sem greinir í niðurstöðum skattrannsóknarstjóra ríkisins. Af hálfu gjaldanda hefur ekkert komið fram um tilefni til frádráttar innskatts. Verður því byggt á niðurstöðum rannsóknarskýrslu um þann þátt málsins.

Fullsannað þykir samkvæmt því sem að framan er rakið og að öðru leyti með stoð í gögnum málsins, m.a. framburði gjaldanda við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins, að gjaldandi, sem skyldur var til þess að standa skil á virðisaukaskatti, sbr. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, hafi á saknæman hátt vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum öll uppgjörstímabil áranna 2008, 2009 og 2010 og þannig vanrækt að gera grein fyrir virðisaukaskatti til greiðslu samtals að fjárhæð 5.124.520 kr. umrædd uppgjörstímabil, sbr. sundurliðun í kröfubréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins. Varðar þetta gjaldanda sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995.

Ákvarða ber gjaldanda, A, sekt samkvæmt framangreindum ákvæðum 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, vegna vanrækslu á skilum virðisaukaskatts og virðisaukaskattsskýrslna sem að framan greinir. Samkvæmt breytingum á refsiákvæðum skattalaga, sem gerðar voru með lögum nr. 42/1995 og tóku gildi 9. mars 1995, skal sekt aldrei vera lægri en sem nemur tvöfaldri þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin, þó að teknu tilliti til álags. Líta ber til þess að gjaldandi gekkst greiðlega við brotum sínum. Að þessu virtu og að teknu tilliti til álags samkvæmt 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988 þykir sekt gjaldanda hæfilega ákveðin 9.700.000 kr. til ríkissjóðs.

Úrskurðarorð:

A, greiði sekt að fjárhæð 9.700.000 kr. til ríkissjóðs.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum