2012

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 390/2012

11.6.2012

Úrskurður nr. 390/2012 

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2012, mánudaginn 11. júní, er tekið fyrir mál nr. 160/2011; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], og B, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Anna Dóra Helgadóttir og Sverrir Örn Björnsson. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 28. apríl 2011, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], og B, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstrarársins og 2009.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A, sem stjórnarformanni og prókúruhafa og B sem meðstjórnanda, framkvæmdastjóra og prókúruhafa X ehf., (nú þrotabú), er gefið að sök eftirfarandi:

1. Vangoldin afdregin staðgreiðsla opinberra gjalda launamanna. Vanræksla á afhendingu skilagreina á lögmæltum tíma.

A og B er gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf. vegna greiðslutímabilanna apríl til og með desember rekstrarárið 2009. Þá er þeim gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda, vegna greiðslutímabilanna apríl og september rekstrarárið 2009, á lögmæltum tíma. Vangoldin afdregin skilaskyld staðgreiðsla opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna framangreindra greiðslutímabila, nemur samtals kr. 3.822.632 að teknu tilliti til afdreginnar staðgreiðslu af launum fyrrum fyrirsvarsmanna skattaðila. Fjárhæðin sundurliðast svo sem hér greinir:

Rekstrarár Greiðslutímabil Afdregin staðgreiðsla Afdregin staðgr. fyrirsvarsmanna Vangoldin skilaskyld staðgreiðsla kr.
2009 apríl 455.878 0 455.878
2009 maí 483.900 0 483.900
2009 júní 457.634 28.790 428.844
2009 júlí 519.708 97.167 422.541
2009 ágúst 479.922 102.672 377.250
2009 september 339.988 7.805 332.183
2009 október 473.354 86.710 386.644
2009 nóvember 653.058 122.166 530.892
2009 desember 491.210 86.710 404.500
Samtals kr.   4.354.652 532.020 3.822.632

 Það er mat skattrannsóknarstjóra ríkisins, byggt á gögnum málsins, að þetta hafi A og B gert á saknæman hátt, að því er frekast verður séð af ásetningi eða í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi.

Telst þessi háttsemi A og B brjóta í bága við ákvæði 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. aðalreglur 1.-3. gr., 1. tl. 5. gr., 1. mgr. 7. gr. og 1. og 3. mgr. 8. gr. þeirra laga.

Framangreind háttsemi varðar A og B sekt samkvæmt 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum.

2. Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur. Vanræksla á afhendingu virðisaukaskattsskýrslna á lögmæltum tíma.

A og B er gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf. vegna uppgjörstímabilanna mars–apríl til og með nóvember–desember rekstrarárið 2009. Þá er þeim gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstíma-bilanna mars–apríl og maí–júní rekstrarárið 2009, á lögmæltum tíma. Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur til innheimtumanns ríkissjóðs vegna framangreindra uppgjörstímabila nemur samtals kr. 3.958.087. Fjárhæðin sundurliðast svo sem hér greinir:

Rekstrarár  Uppgjörstímabil Vangoldinn virðisaukaskattur til innheimtumanns ríkissjóðs kr.
2009 mars – apríl 676.868
2009 maí – júní 624.379
2009 júlí – ágúst 372.677
2009 sept. – okt. 832.384
2009 nóv. – des. 1.451.961
Samtals kr.   3.958.087

Það er mat skattrannsóknarstjóra ríkisins, byggt á gögnum málsins, að þetta hafi A og B gert á saknæman hátt, að því er frekast verður séð af ásetningi eða í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi.

Telst þessi háttsemi A og B brjóta í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. og 2. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Framangreind háttsemi varðar A og B sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Þess er krafist að A og B verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 28. apríl 2011, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með ábyrgðarbréfum yfirskattanefndar, dags. 29. apríl 2011, var gjaldendum veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Bréf til gjaldanda, B, var endursent yfirskattanefnd með því að þess hefði ekki verið vitjað. Reynt var að koma fram birtingu fyrir gjaldanda eftir ákvæðum b-liðar 1. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, en birting tókst ekki.

Engar athugasemdir hafa borist frá gjaldanda, A.

III.

Sú regla kemur fram í 4. mgr. 31. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og samsvarandi ákvæði 4. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, að skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunauts ef hann vill eigi hlíta því að mál verði afgreitt af yfirskattanefnd samkvæmt framangreindum ákvæðum. Ákvæði þessi ber að skilja svo að skattrannsóknarstjóri ríkisins geti ekki vísað máli til sektarmeðferðar fyrir yfirskattanefnd nema málið hafi áður verið borið undir gjaldanda og hann hafi gefið skattrannsóknarstjóra til kynna á sannanlegan hátt að hann mæli því ekki í gegn að málið hljóti sektarmeðferð fyrir yfirskattanefnd. Þar sem afstaða gjaldanda, B, til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd liggur ekki fyrir eru ekki skilyrði þess að fjalla um málið að því er hann varðar. Þá þykir ljóst að málsúrslit að því er varðar gjaldanda, A, hljóta að ráðast að verulegu leyti af niðurstöðu gagnvart gjaldanda, B. Að þessu athuguðu þykir málið liggja þannig fyrir að óhjákvæmilegt sé að vísa því frá yfirskattanefnd í heild sinni.

Þessi niðurstaða breytir engu um heimild skattrannsóknarstjóra ríkisins til þess að ákveða af sjálfsdáðum hvort efni séu til að vísa máli til opinberrar rannsóknar og almennrar sakamálameðferðar fyrir dómstólum.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá yfirskattanefnd.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum