2012

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 393/2012

11.6.2012

Úrskurður nr. 393/2012                                                                   

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR 

Ár 2012, mánudaginn 11. júní, er tekið fyrir mál nr. 159/2011; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Anna Dóra Helgadóttir og Sverrir Örn Björnsson. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r : 

I.

Með bréfi, dags. 28. apríl 2011, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, beggja með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2006 og 2007.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A er gefið að sök eftirfarandi:

1. Vangoldin afdregin staðgreiðsla opinberra gjalda launamanna.

A er gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna skattaðila vegna greiðslutímabilanna nóvember og desember rekstrarárið 2006 og febrúar, mars, maí, júní, júlí, ágúst, september, október og nóvember rekstrarárið 2007. Vangoldin afdregin skilaskyld staðgreiðsla opinberra gjalda launamanna skattaðila vegna framangreindra greiðslutímabila, nemur samtals kr. 710.093. Fjárhæðin sundurliðast svo sem hér greinir:

Rekstrarár Greiðslu-tímabil Vangoldin skilaskyld staðgreiðsla kr.
2006 nóvember 73.528
2006 desember 68.564
Samtals kr.   142.092
2007 febrúar 70.606
2007 mars 57.162
2007 maí 97.934
2007 júní 31.241
2007 júlí 70.435
2007 ágúst 98.217
2007 september 48.446
2007 október 64.798
2007 nóvember 29.162
Samtals kr.   568.001
Samtals bæði árin   710.093

 Það er mat skattrannsóknarstjóra ríkisins, byggt á gögnum málsins, að þetta hafi A gert á saknæman hátt, að því er frekast verður séð af ásetningi eða í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi.

Telst þessi háttsemi A brjóta í bága við ákvæði 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. aðalreglur 1.-3. gr., 1. tl. 5. gr., 1. mgr. 7. gr. og 1. og 3. mgr. 8. gr. þeirra laga.

Framangreind háttsemi varðar A sekt samkvæmt 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum.

2. Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur. Vanræksla á afhendingu virðisaukaskattsskýrslna á lögmæltum tíma.

A er gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í sjálfstæðri starfsemi hans við rekstur á vídeóleigu, vegna uppgjörstímabilanna september–október og nóvember–desember rekstrarárið 2006 og janúar–febrúar til og með nóvember–desember rekstrarárið 2007. Þá er honum gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna nóvember–desember rekstrarárið 2006 og janúar–febrúar til og með nóvember–desember rekstrarárið 2007, á lögmæltum tíma. Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur til innheimtumanns ríkissjóðs vegna framangreindra uppgjörstímabila nemur samtals kr. 4.233.966. Fjárhæðin sundurliðast svo sem hér greinir:

Rekstrarár Uppgjörstímabil Vangoldinn virðisaukaskattur til innheimtumanns ríkissjóðs kr.
2006 sept. – okt. 471.070
2006 nóv. – des. 558.221
Samtals kr.   1.029.291
2007 jan. – feb. 583.888
2007 mars – apríl 583.796
2007 maí – júní 583.332
2007 júlí – ágúst 581.185
2007 sept. – okt. 581.458
2007 nóv. – des. 291.016
Samtals kr.   3.204.675
Samtals bæði árin   4.233.966

 Er það mat skattrannsóknarstjóra ríkisins, byggt á gögnum málsins, að þetta hafi A gert á saknæman hátt, að því er frekast verður séð af ásetningi eða í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi.

Telst þessi háttsemi A brjóta í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. og 2. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum. 

Varðar framanlýst háttsemi A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint. “

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 28. apríl 2011, sem fylgdi kröfugerðinni. 

II.

Með bréfi yfirskattanefndar, dags. 7. júní 2011, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins eða tilkynna sérstaklega ef hann vildi ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiddi mál hans og yrði málið þá endursent skattrannsóknarstjóra ríkisins sem tæki ákvörðun um hvort því yrði vísað til opinberrar rannsóknar, sbr. 4. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Bréf þetta var birt gjaldanda eftir ákvæðum b-liðar 1. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, í framhaldi af því að hann vitjaði ekki ábyrgðarbréfs nefndarinnar, dags. 29. apríl 2011, um sama efni. Engar athugasemdir hafa borist frá gjaldanda.

III.

Með bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 28. apríl 2011, er gerð sú krafa að gjaldanda, A, verði gerð sekt samkvæmt þargreindum ákvæðum 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með því að hann hafi í sjálfstæðum rekstri sínum vanrækt að standa skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda tiltekin greiðslutímabil árin 2006 og 2007 og vanrækt skil á virðisaukaskatti þau uppgjörstímabil árin 2006 og 2007 sem greinir í bréfinu. Gjaldandi hefur átt þess kost að koma að vörnum fyrir yfirskattanefnd í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins, en engar athugasemdir hafa borist. Þar sem gjaldandi hefur ekki gert athugasemdir við meðferð máls þessa fyrir yfirskattanefnd verður að líta svo á að hann mæli því ekki í gegn að það sæti sektarmeðferð fyrir nefndinni.

Skattrannsóknarstjóri ríkisins hóf hinn 2. október 2009 rannsókn á skattskilum gjaldanda er beindist að skilum á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda og innheimtum virðisaukaskatti rekstrarárin 2006 og 2007. Vegna rannsóknarinnar kom gjaldandi til skýrslutöku hjá embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins 28. júní 2010. Með bréfi, dags. 5. október 2010, sendi skattrannsóknarstjóri gjaldanda skýrslu um rannsóknina sem þá lá fyrir, dags. 4. október 2010, og gaf honum kost á að tjá sig um efni hennar. Af hálfu gjaldanda voru engar athugasemdir gerðar og tók skattrannsóknarstjóri ríkisins í framhaldi af þessu saman nýja skýrslu um rannsóknina, dags. 21. október 2010, sem var efnislega samhljóða hinni fyrri að viðbættum kafla um lok rannsóknarinnar.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 21. október 2010, segir að rannsókn á skattskilum gjaldanda hafi einkum verið byggð á upplýsingum sem fram hafi komið við fyrrgreinda skýrslutöku, staðgreiðsluskilagreinum gjaldanda ásamt sundurliðunum með þeim, virðisaukaskattsskýrslu, leiðréttingarskýrslum virðisaukaskatts, svo og upplýsingum úr tekjubókhaldi ríkissjóðs, sbr. fylgiskjöl með skýrslunni, en þar er um að ræða yfirlit um greiðslur gjaldanda vegna staðgreiðslu opinberra gjalda, virðisaukaskatts og opinberra gjalda. 

Fram kemur í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins að rannsókn embættisins á staðgreiðsluskilum gjaldanda hafi falist í því að bera fjárhæðir afdreginnar staðgreiðslu samkvæmt staðgreiðsluskilagreinum ásamt sundurliðunum saman við greiðslur hans til innheimtumanns ríkissjóðs. Í skýrslunni er gerð grein fyrir þeirri niðurstöðu rannsóknarinnar að gjaldandi hafi ekki staðið skil innan lögboðins frests á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda greiðslutímabilin nóvember og desember 2006 og febrúar, mars, maí, júní, júlí, ágúst, september, október og nóvember 2007, samtals að fjárhæð 710.093 kr. Fram kemur í skýrslunni að greiddar hafi verið 42.378 kr. inn á höfuðstól staðgreiðsluskuldar vegna þeirra tímabila sem rannsóknin taki til.

Rannsókn á virðisaukaskattsskilum gjaldanda var samkvæmt skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins fólgin í því að bera fjárhæð innheimts virðisaukaskatts samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum, þ.m.t. leiðréttingarskýrslum virðisaukaskatts, saman við greiðslur gjaldanda til innheimtumanns. Í skýrslunni er rakin sú niðurstaða rannsóknarinnar að gjaldandi hafi ekki staðið skil innan lögboðins frests á innheimtum virðisaukaskatti uppgjörstímabilin september-október og nóvember-desember 2006 og janúar-febrúar til og með nóvember-desember 2007, samtals að fjárhæð 4.233.966 kr. Fram kemur að greiddar hafi verið 392.375 kr. inn á höfuðstól virðisaukaskatts vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila.

Við skýrslutöku, sem fram fór hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 28. júní 2010, kom fram af hálfu gjaldanda að starfsemi hans hefði verið fólgin í rekstri vídeóleigu. Gjaldandi kannaðist við að skilagreinar staðgreiðslu, sem bornar voru undir hann, væru vegna rekstrar síns og kom fram að tilgreind bókhaldsstofa hefði annast gerð þeirra og byggt á útgreiddum launum sem bókhaldsstofan hefði séð um að reikna út fyrir hann. Gjaldandi kannaðist jafnframt við virðisaukaskattsskýrslu og leiðréttingarskýrslur virðisaukaskatts, sem bornar voru undir hann, og kvað hann umrædda bókhaldsstofu hafa annast gerð þeirra og byggt á reikningum frá gjaldanda. Taldi gjaldandi að gögnin gæfu rétta mynd af rekstrinum. Gjaldanda var kynnt að samkvæmt gögnum málsins hefði staðgreiðsla opinberra gjalda að fjárhæð 710.093 kr. umrædd greiðslutímabil staðgreiðslu árin 2006 og 2007 ekki verið greidd á lögmæltum tíma og að virðisaukaskattur að fjárhæð 4.233.966 kr. umrædd uppgjörstímabil á árunum 2006 og 2007 hefði ekki verið greiddur á lögmæltum tíma. Af hálfu gjaldanda voru ekki gerðar athugasemdir við þessar fjárhæðir. Fram kom af hálfu gjaldanda að virðisaukaskattinum hafi ekki verið skilað á lögmæltum tíma vegna trassaskapar. Kvað gjaldandi staðgreiðslu og innheimtan virðisaukaskatt hafa farið í reksturinn. Aðspurður greindi gjaldandi frá því að laun hafi verið greidd að fullu þrátt fyrir að staðgreiðslu hefði ekki verið skilað. Gjaldandi kvaðst ekki hafa óskað eftir því við innheimtumann að greiðslum yrði ráðstafað með sérstökum hætti.

Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, er refsivert ef skattskyldur maður afhendir eigi á lögmæltum tíma virðisaukaskattsskýrslu eða virðisaukaskatt sem hann hefur innheimt eða honum borið að innheimta. Í 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995, er með samsvarandi hætti lýst refsivert ef launagreiðandi innir ekki af hendi þær greiðslur vegna launamanna sem hann hefur haldið eftir eða honum borið að halda eftir. Samkvæmt fortakslausum ákvæðum nefndra laga og með stoð í dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands, sbr. m.a. dóma Hæstaréttar 27. febrúar 1997 (H 1997:789), 25. september 1997 (H 1997:2446), 14. janúar 1999 (H 1999:79), 18. febrúar 1999 (H 1999:544 og 550), 10. júní 1999 (H 1999:2645) og 30. mars 2000 (H 2000:1422), geta skattskyldir aðilar unnið til refsingar með því einu að láta ógert að skila umræddum gjöldum í ríkissjóð á tilskildum tíma, enda sé huglægum refsiskilyrðum fullnægt.

Til grundvallar niðurstöðu skattrannsóknarstjóra ríkisins um fjárhæð vangreiddrar staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatts gjaldanda árin 2006 og 2007 liggja staðgreiðsluskilagreinar og virðisaukaskattsskýrslur sem gjaldandi hefur staðfest að varði sjálfstæðan rekstur sinn, sbr. skýrslutöku af gjaldanda 28. júní 2010, þar sem einnig kom fram það álit gjaldanda að gögnin gæfu rétta mynd af rekstrinum. Verður samkvæmt þessu byggt á því að staðgreiðsla opinberra gjalda og virðisaukaskattur, sem gjaldanda bar að standa skil á, hafi numið þeim fjárhæðum sem greinir í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, enda þykir ekkert hafa komið fram sem gefur tilefni til annars. Sektarkrafa skattrannsóknarstjóra í máli þessu er byggð á niðurstöðum í skýrslu embættisins.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins og greinargerð með kröfugerð embættisins til yfirskattanefndar er gerð grein fyrir greiðslum gjaldanda til innheimtumanns vegna staðgreiðslu, virðisaukaskatts og opinberra gjalda frá því að skuldir sem um ræðir í skýrslu skattrannsóknarstjóra vegna skilaskyldrar staðgreiðslu og virðisaukaskatts byrjuðu að myndast 5. desember 2006. Fram kemur að á tímabilinu 5. desember 2006 til og með 5. apríl 2011 voru alls greiddar til innheimtumanns ríkissjóðs 261.348 kr. vegna skilaskyldrar staðgreiðslu og 1.214.440 kr. vegna virðisaukaskatts gjaldanda. Af framangreindri fjárhæð var 221.679 kr. ráðstafað inn á höfuðstól staðgreiðslu og 702.912 kr. inn á höfuðstól virðisaukaskatts. Þar er að hluta um að ræða greiðslur vegna tímabila sem mál þetta varðar, nánar tiltekið staðgreiðslu að fjárhæð samtals 42.378 kr. vegna nóvember 2006 og virðisaukaskatts að fjárhæð 392.375 kr. vegna uppgjörstímabilsins september-október 2006. Eins og mál þetta er lagt fyrir af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins þykir rétt að þessar fjárhæðir, sem gjaldandi stóð samkvæmt framangreindu skil á áður en mál hans var sent yfirskattanefnd til meðferðar, komi til frádráttar fjárhæð vangreiddrar staðgreiðslu og vangreidds virðisaukaskatts samkvæmt kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins, enda er það í samræmi við það sem tíðkast hefur við meðferð hliðstæðra mála fyrir yfirskattanefnd. Verður því miðað við vangreidda staðgreiðslu að fjárhæð 667.715 kr. og vangreiddan virðisaukaskatt að fjárhæð 3.841.591 kr. í máli þessu.

Sá hluti greiðslna gjaldanda á umræddu tímabili, sem innheimtumaður ríkissjóðs hefur samkvæmt yfirliti skattrannsóknarstjóra ríkisins ráðstafað til greiðslu dráttarvaxta, álags og kostnaðar vegna staðgreiðslu, nam 39.669 kr., en hliðstæðar greiðslur vegna virðisaukaskatts voru að fjárhæð 511.528 kr. Þá kemur fram í gögnum málsins að greiðslur til innheimtumanns ríkissjóðs vegna opinberra gjalda gjaldanda, þ.m.t. tryggingagjalds, á þeim tíma sem hér um ræðir, námu 1.490.152 kr. og var innborgunum að hluta varið til greiðslu dráttarvaxta og kostnaðar. Aðrar greiðslur gjaldanda til innheimtumanns en vegna höfuðstóls staðgreiðslu og virðisaukaskatts námu því 2.041.349 kr.

Með dómi Hæstaréttar Íslands 2. október 2003 (H 2003:3178), sem varðar hliðstætt mál, var því hafnað að greiðslur, sem innheimtumaður hefur ráðstafað upp í álag, dráttarvexti og kostnað, geti haft áhrif á sakarmat og komið með beinum hætti til frádráttar skattskuld sem viðurlagaákvörðun tekur til. Ekki verður talið að breyting með lögum nr. 134/2005 á refsiákvæðum laga nr. 45/1987 og nr. 50/1988 haggi þessari dómaframkvæmd. Með breytingalögum þessum er hins vegar skýrt kveðið á um það að greiðslur skattaðila á verulegum hluta skattfjárhæðar geti að uppfylltum ákveðnum skilyrðum leitt til þess að ákvæði um lágmark sektarrefsingar eigi ekki við. Samkvæmt dómum Hæstaréttar Íslands 30. mars 2006 í málunum nr. 428/2005 og 469/2005 ber að taka í þessu sambandi tillit til innborgana sem ráðstafað hefur verið til greiðslu álags vegna vangreiddrar staðgreiðslu opinberra gjalda starfsmanna og vangreidds virðisaukaskatts, svo og skuli fara á sama hátt með greiðslur vegna staðgreiðslu opinberra gjalda þess fyrirsvarsmanns sem refsiábyrgð sætir. Ekki verður annað séð en að líta megi með hliðstæðum hætti til greiðslna viðkomandi skattaðila sem innheimtumaður hefur ráðstafað upp í dráttarvexti og kostnað, og eftir atvikum til greiðslu á opinberum gjöldum, enda er það í samræmi við úrskurðaframkvæmd fyrir gildistöku laga nr. 134/2005, sbr. og fyrrgreindan dóm Hæstaréttar frá árinu 2003 og aðra dóma í hliðstæðum málum, m.a. H 2000:2387. Eins og mál þetta liggur fyrir þykir því mega taka tillit til fyrrgreindra greiðslna gjaldanda að fjárhæð samtals 2.041.349 kr. Við mat á þýðingu þeirra fyrir sektarákvörðun þykir rétt að skipta þeim hluta innborgana, sem ráðstafað var til greiðslu opinberra gjalda gjaldanda, í hlutfalli við fjárhæðir vangoldinnar staðgreiðslu og virðisaukaskatts sem um ræðir í málinu. Innborganir vegna staðgreiðslu opinberra gjalda teljast þá nema 260.323 kr. og innborganir vegna virðisaukaskatts 1.781.026 kr.

Samkvæmt því sem að framan er rakið og gögnum málsins að öðru leyti var afdregin staðgreiðsla opinberra gjalda vegna launamanna gjaldanda greiðslutímabilin nóvember og desember 2006 og febrúar, mars, maí, júní, júlí, ágúst, september, október og nóvember 2007, samtals að fjárhæð 667.715 kr., ekki greidd til innheimtumanns ríkissjóðs á tilskildum tíma, sbr. 1. og 2. mgr. 20. gr. laga nr. 45/1987. Einnig var virðisaukaskattur að fjárhæð 3.841.591 kr. uppgjörstímabilin september-október og nóvember-desember 2006 og janúar-febrúar til og með nóvember-desember 2007 ekki greiddur innheimtumanni ríkissjóðs á tilskildum tíma, sbr. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988. Tilteknar innborganir voru inntar af hendi vegna staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatts á tímabilinu 5. desember 2006 til og með 5. apríl 2011, sbr. að framan, sem þó breytir ekki því að greiðslur fóru fram eftir eindaga umræddra gjalda. Vegna þeirra skýringa gjaldanda að fjárskortur hafi valdið þeim vanskilum á staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatti sem í málinu greinir skal tekið fram að ekki telst tæk varnarástæða að fé hafi ekki verið til í rekstri gjaldanda til að standa skil á umræddum gjöldum, sbr. m.a. fyrrnefndan dóm Hæstaréttar Íslands frá 30. mars 2000 (H 2000:1422).

Með vísan til þess sem rakið hefur verið telst fullnægt þeim huglægu refsiskilyrðum sem fram koma í 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 42/1995. Ber að ákvarða gjaldanda sekt samkvæmt þessum lagaákvæðum vegna vanrækslu á skilum staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatts sem að framan greinir.

Eins og lög nr. 45/1987 og lög nr. 50/1988 hljóða eftir breytingar, sem á þeim voru gerðar með lögum nr. 42/1995, skal sekt aldrei vera lægri en sem nemur tvöfaldri þeirri skattfjárhæð sem vanrækt var greiðsla á, þó að teknu tilliti til álags. Samkvæmt breytingu á greindum lögum með lögum nr. 134/2005 eiga fésektarákvæði þessi þó ekki við hafi brot einskorðast við að standa ekki skil á réttilega tilgreindri staðgreiðslu eða virðisaukaskatti samkvæmt skilagrein staðgreiðslu eða virðisaukaskattsskýrslu, enda hafi verið gerð skil á verulegum hluta skattfjárhæðar eða málsbætur eru miklar. Í tilviki gjaldanda er til þess að líta að skilagreinar staðgreiðslu og virðisaukaskattsskýrslur, þ.m.t. leiðréttingarskýrslur virðisaukaskatts, liggja fyrir vegna allra tímabila staðgreiðslu og virðisaukaskatts sem málið varðar og eru fjárhæðir í málinu byggðar á þeim. Sem fyrr segir verður lagt til grundvallar að greiðslur til innheimtumanns ríkissjóðs, sem hér beri að líta til, hafi numið 260.323 kr. vegna staðgreiðslu og 1.781.026 kr. vegna virðisaukaskatts. Fyrrnefnda fjárhæðin svarar til vangreiddrar staðgreiðslu vegna fyrstu fjögurra tímabila staðgreiðslu sem sektarkrafa skattrannsóknarstjóra ríkisins tekur til og verulegs hluta fjárhæðar fimmta tímabilsins. Greiðslur vegna virðisaukaskatts svara til vangreidds virðisaukaskatts gjaldanda fyrstu þrjú uppgjörstímabil virðisaukaskatts sem málið varðar og verulegs hluta fjárhæðar fjórða tímabilsins. Samkvæmt þessu og í samræmi við dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands, sbr. fyrrgreinda dóma frá 30. mars 2006, verður því talið að sú undantekning frá fésektarlágmarki, sem mælt er fyrir um í lögum nr. 134/2005, taki til staðgreiðslu opinberra gjalda að fjárhæð 325.416 kr. greiðslutímabilin nóvember og desember 2006 og febrúar, mars og maí 2007 og virðisaukaskatts að fjárhæð 1.804.600 kr. uppgjörstímabilin september-október og nóvember-desember 2006 og janúar-febrúar og mars-apríl 2007. Ekki liggur annað fyrir en að vangreiðsla á staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatti vegna annarra tímabila hafi fyrst og fremst stafað af erfiðleikum í rekstri gjaldanda. Hins vegar varðar mál þetta vanskil á staðgreiðslu og virðisaukaskatti að ekki óverulegri fjárhæð og vegna alllangs tímabils. Að þessu virtu og með vísan til greindrar dómaframkvæmdar verður því ekki talið að skilyrði um miklar málsbætur, sbr. ákvæði laga nr. 134/2005, eigi hér við. Því teljast lágmarksákvæði 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 og 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 gilda um vanskil á staðgreiðslu opinberra gjalda að fjárhæð 342.299 kr. og virðisaukaskatti að fjárhæð 2.036.991 kr.

Samkvæmt framansögðu og að teknu tilliti til álags samkvæmt 1. tölul. 2. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987 og 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988 þykir sekt gjaldanda hæfilega ákveðin  4.700.000 kr. til ríkissjóðs.

Úrskurðarorð:

Gjaldandi, A, greiði sekt að fjárhæð 4.700.000 kr. til ríkissjóðs.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum