2013

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 51/2013

20.2.2013

Úrskurður nr. 51/2013

 

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2013, miðvikudaginn 20. febrúar, er tekið fyrir mál nr. 337/2012; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], og X ehf., kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Anna Dóra Helgadóttir og Sverrir Örn Björnsson. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 8. nóvember 2012, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], og X ehf., kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstrarársins 2010.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A, sem stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og prókúruhafa X ehf., er gefið að sök eftirfarandi:

Vanræksla á skilum á virðisaukaskattsskýrslum. Vanframtalin skattskyld velta og útskattur. Mögulegur innskattur.

A er gefið að sök að hafa, að því er best verður séð af ásetningi, en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna virðisaukaskattsskyldrar starfsemi X ehf. til ríkisskattstjóra vegna allra uppgjörstímabila rekstrarárið 2010 og vanframtelja með því skattskylda veltu og virðisaukaskatt. Samkvæmt niðurstöðu skattrannsóknarstjóra ríkisins nemur vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 19.111.529 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 4.873.440. Mögulegur innskattur nemur samtals kr. 1.885.137.

Sundurliðast vanframtalin skattskyld velta og virðisaukaskattur svo sem hér greinir:

         Rekstrarár Uppgjörstímabil Vantalin skattskyld velta Vanframtalinn útskattur Mögulegur innskattur
         
2010 jan. - feb. 2.906.017 741.035 230.450
2010 mars - apríl 1.890.502 482.078 427.788
2010 maí - júní 4.287.879 1.093.409 297.255
2010 júlí - ágúst 3.221.750 821.546 243.288
2010 sept. - okt. 3.664.377 934.416 240.911
2010 nóv. - des. 3.141.004 800.956 445.445
Samtals kr.   19.111.529 4.873.440 1.885.137

Sú háttsemi A sem hér hefur verið lýst brýtur í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. sbr. aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum. 

Varðar framanlýst háttsemi A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum. Þá varðar brot þessi X ehf., sekt skv. 8. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Við endurákvörðun á virðisaukaskatti vegna umræddra uppgjörstímabila hefur skattaðila verið gert að sæta álagi á vangreiddan virðisaukaskatt skv. framangreindu á grundvelli 27. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, kr. 298.830 er komi til frádráttar við ákvörðun sektarfjárhæðar.

Þess er krafist að A og X ehf. verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 8. nóvember 2012, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með ábyrgðarbréfum yfirskattanefndar, dags. 13. nóvember 2012, var gjaldendum veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Bréfin voru endursend yfirskattanefnd þar sem þeirra var ekki vitjað. Reynt var að koma fram birtingu fyrir gjaldanda, A, eftir ákvæðum b-liðar 1. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, en birting tókst ekki.

III.

Sú regla kemur fram í 4. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, að skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunauts ef hann vill eigi hlíta því að mál verði afgreitt af yfirskattanefnd samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins. Ákvæði þetta ber að skilja svo að skattrannsóknarstjóri ríkisins geti ekki vísað máli til sektarmeðferðar fyrir yfirskattanefnd nema málið hafi áður verið borið undir gjaldanda og hann hafi gefið skattrannsóknarstjóra til kynna á sannanlegan hátt að hann mæli því ekki í gegn að málið hljóti sektarmeðferð fyrir yfirskattanefnd. Þar sem afstaða gjaldenda, X ehf. og A, til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd liggur ekki fyrir eru ekki skilyrði til þess að fjalla um málið fyrir yfirskattanefnd og er málinu því vísað frá.

Þessi niðurstaða breytir engu um heimild skattrannsóknarstjóra ríkisins til þess að ákveða af sjálfsdáðum hvort efni séu til að vísa máli til opinberrar rannsóknar og almennrar sakamálameðferðar fyrir dómstólum.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá yfirskattanefnd.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum