2013

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 145/2013

24.4.2013

Úrskurður nr. 145/2013

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2013, miðvikudaginn 24. apríl, er tekið fyrir mál nr. 361/2012; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Anna Dóra Helgadóttir og Sverrir Örn Björnsson. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 29. nóvember 2012, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2009 og 2010.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A sem fyrrum stjórnarmanni, framkvæmdarstjóra og prókúruhafa X ehf. (nú afskráð) er gefið að sök eftirfarandi:

Vanræksla á skilum á virðisaukaskattsskýrslum. Vanframtalin skattskyld velta og útskattur. Mögulegur innskattur.

A er gefið að sök, að því er best verður séð af ásetningi, en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum til skattyfirvalda vegna allra uppgjörstímabila rekstrarárin 2009 og 2010 og vanframtelja með því skattskylda veltu og virðisaukaskatt í rekstri X ehf. Samkvæmt rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins nemur vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 31.955.882 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 8.001.572. Mögulegur innskattur nemur samtals kr. 3.383.134.

Sundurliðast vanframtalin skattskyld velta og virðisaukaskattur svo sem hér greinir:

    Vanframtalin skattskyld velta Vanframtalinn útskattur Vanframtalinn innskattur
Rekstrarár Uppgjörstímabil      
2009 jan.– feb. 2.520.920  617.626     137.968
2009 mars – apríl 2.036.586  498.964     137.683
2009 maí – júní 2.658.942 651.441     128.849
2009 júlí – ágúst 3.689.817 904.005     354.143
2009 sept. – okt. 1.567.278 383.983     193.351
2009 nóv. – des. 2.244.177 549.823     205.418
Samtals kr.   14.717.720 3.605.842 1.157.412
2010 jan.– feb. 810.273 206.619 304.647
2010 mars – apríl 1.689.304 430.772 243.218
2010 maí – júní 840.512 214.330 173.597
2010 júlí – ágúst 1.753.970 447.262 144.031
2010 sept. – okt. 1.491.308 380.284 320.107
2010 nóv. – des. 10.652.795 2.716.463 1.040.122
Samtals kr.   17.238.162 4.395.730 2.225.722
Samtals bæði árin kr. 31.955.882 8.001.572 3.383.134  

Sú háttsemi A sem hér hefur verið lýst brýtur í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. sbr. aðalreglur 1. gr., 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Varðar framanlýst háttsemi A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Við endurákvörðun á virðisaukaskatti vegna umræddra uppgjörstímabila hefur skattaðila verið gert að sæta álagi á vangreiddan virðisaukaskatt skv. framangreindu á grundvelli 27. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, kr. 471.647 er komi til frádráttar við ákvörðun sektarfjárhæðar.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 29. nóvember 2012, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með bréfi yfirskattanefndar, dags. 4. desember 2012, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins eða tilkynna sérstaklega ef hann vildi ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiddi mál hans og yrði málið þá endursent skattrannsóknarstjóra ríkisins sem tæki ákvörðun um hvort því yrði vísað til opinberrar rannsóknar, sbr. 4. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Engar athugasemdir hafa borist frá gjaldanda.

III.

1. Með bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 29. nóvember 2012, er gerð sú krafa að gjaldanda, A, verði gerð sekt samkvæmt þargreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, vegna meintra brota hans á skattalögum í rekstri X ehf. Gjaldandi hefur átt þess kost að koma að vörnum fyrir yfirskattanefnd í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins, en engar athugasemdir hafa borist. Þar sem gjaldandi hefur ekki gert athugasemdir við meðferð máls þessa fyrir yfirskattanefnd verður að líta svo á að hann mæli því ekki í gegn að það sæti sektarmeðferð fyrir nefndinni.

2. Sektarkrafa skattrannsóknarstjóra ríkisins í máli þessu er byggð á niðurstöðum rannsóknar embættisins á bókhaldi og skattskilum X ehf. vegna rekstraráranna 2009 og 2010, sbr. skýrslu um rannsóknina, dags. 27. desember 2011. Rannsókn þessi hófst formlega hinn 19. október 2011 og beindist aðallega að virðisaukaskattsskilum félagsins á rannsóknartímabilinu. Var rannsóknin einkum byggð á upplýsingum sem fram komu við skýrslutöku af gjaldanda 17. nóvember 2011, bókhaldsgögnum X ehf. og upplýsingum úr upplýsingakerfum ríkisskattstjóra. Með bréfi, dags. 8. desember 2011, sendi skattrannsóknarstjóri gjaldanda skýrslu um rannsóknina, dags. 7. desember 2011, og gaf honum kost á að tjá sig um efni hennar áður en ákvörðun yrði tekin um framhald málsins. Engar athugasemdir voru gerðar af hálfu gjaldanda og var lokaskýrsla skattrannsóknarstjóra ríkisins efnislega samhljóða hinni fyrri að viðbættum kafla um lok rannsóknarinnar.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 27. desember 2011, voru helstu niðurstöður rannsóknarinnar teknar saman með svofelldum hætti:

„Niðurstöður rannsóknar á bókhaldi og virðisaukaskattsskilum skattaðila vegna rekstrartímabilsins janúar 2009 til og með desember 2010 eru:

·1   Virðisaukaskattsskýrslum fyrir öll uppgjörstímabil rekstraráranna 2009 og 2010 hefur ekki verið skilað.

·2   Bókhald hefur ekki verið fært.

·3   Skattskyld velta og útskattur eru vantalin.

·4   Mögulegur innskattur er vantalinn.“

Þá gerði skattrannsóknarstjóri ríkisins tölulega grein fyrir niðurstöðum rannsóknarinnar í töflu í niðurlagi skýrslu sinnar. Þar kom fram að skattskyld velta X ehf. væri vantalin um 14.717.720 kr. rekstrarárið 2009 og 17.238.162 kr. rekstrarárið 2010, eða samtals 31.955.882 kr., og útskattur um 3.605.842 kr. fyrra árið og 4.395.730 kr. seinna árið, eða samtals 8.001.572 kr. Þá næmi mögulegur innskattur 1.157.412 kr. rekstrarárið 2009 og 2.225.722 kr. rekstrarárið 2010, eða samtals 3.383.134 kr.

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins var mál X ehf. sent ríkisskattstjóra til meðferðar, sbr. 5. mgr. 39. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. bréf skattrannsóknarstjóra, dags. 29. desember 2011. Á grundvelli rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins og í framhaldi af bréfi til X ehf., dags. 26. apríl 2012, sem ekki var svarað, endurákvarðaði ríkisskattstjóri með úrskurði, dags. 18. júní 2012, virðisaukaskatt X ehf. árin 2009 og 2010. Samkvæmt úrskurðinum var skattskyld velta X ehf. ákvörðuð 14.717.720 kr. rekstrarárið 2009 og 17.238.162 kr. rekstrarárið 2010 og hækkaði skattskyld velta um samtals 17.704.819 kr. frá skattskyldri veltu samkvæmt áætlun ríkisskattstjóra. Útskattur X ehf. varð samkvæmt þessu samtals 8.001.572 kr. og hækkaði um 4.438.808 kr. frá áætlun ríkisskattstjóra. Jafnframt ákvarðaði ríkisskattstjóri innskatt að fjárhæð samtals 3.383.134 kr. Ríkisskattstjóri bætti álagi samkvæmt 1. og 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988 við hækkun virðisaukaskatts. Af hálfu X ehf. voru heimilaðar málskotsleiðir vegna þessa úrskurðar ríkisskattstjóra ekki nýttar.

3. Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 27. desember 2011, kemur fram að gjaldandi, A, var stjórnarmaður, framkvæmdarstjóri og prókúruhafi X ehf. á því tímabili sem rannsóknin tók til. Skráður tilgangur félagsins var verktakastarfsemi, jarðvinna, rekstur vörubifreiða svo og rekstur fasteigna, lánastarfsemi og skyldur rekstur. Að því er varðar skattskilagögn og bókhald félagsins kemur fram að virðisaukaskattsskýrslum fyrir öll uppgjörstímabil rekstraráranna 2009 og 2010 hafi ekki verið skilað og að bókhald hafi ekki verið fært. Er í þessu sambandi rakinn sá framburður gjaldanda við skýrslutöku 17. nóvember 2011 að ástæða þess að virðisaukaskattsskýrslum var ekki skilað hafi verið sú að gjaldandi hefði ekki sent gögn til endurskoðandans og að allur peningur hefði farið í að greiða skuldir. Þá hefði kunnáttuleysi gjaldanda valdið því að bókhald var ekki fært. Tekið er fram í skýrslunni að gjaldandi hafi afhent skattrannsóknarstjóra ríkisins gögn um rekstrarútgjöld vegna áranna 2009 og 2010 þann 24. október 2011 og sölureikninga vegna sömu ára dagana 25. og 28. október 2011.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins er gerð grein fyrir rannsókn á skattskyldri veltu og útskatti X ehf. Í skýrslunni er tekið fram að fyrirliggjandi séu sölureikningar X ehf. með númeraröðinni 392-507. Reikninga nr. 451, 453, 456, 458-460 og 466-475 vanti til að númeraröð sölureikninga teljist samfelld. Við rannsókn á bankareikningi X ehf. hafi ekki komið í ljós innborganir vegna annarra virðisaukaskattsskyldra viðskipta en fram komi á sölureikningum félagsins. Af þeirri ástæðu taldi skattrannsóknarstjóri ríkisins ekki tilefni til að leggja mat á ætlaðan undandrátt vegna vöntunar sölureikninga.

Við fyrrgreinda skýrslutöku voru útgefnir sölureikningar X ehf. rekstrarárin 2009 og 2010 lagðir fyrir gjaldanda og staðfesti gjaldandi að hann hefði gefið þá út og að þeir hafi allir fengist greiddir. Niðurstöður í skýrslunni um fjárhæð skattskyldrar veltu gjaldanda á árunum 2009 og 2010 eru byggðar á fyrirliggjandi sölureikningum gjaldanda. Samkvæmt þeim hafi skattskyld velta gjaldanda numið 14.717.720 kr. rekstrarárið 2009 (útskattur 3.605.842 kr.) og 17.238.162 kr. rekstrarárið 2010 (útskattur 4.395.730 kr.). Samkvæmt framansögðu hafi skattskyld velta því verið vantalin um samtals 31.955.882 kr. og útskattur um samtals 8.001.572 kr. umrædd ár.

Í kafla um rannsókn á rekstrargjöldum og innskatti kemur fram að samkvæmt gögnum sem gjaldandi hafi afhent vegna rannsóknar málsins nemi mögulegur innskattur X ehf. 1.157.412 kr. rekstrarárið 2009 og 2.225.722 kr. rekstrarárið 2010, eða samtals 3.383.134 kr. Við skýrslutöku var gjaldandi spurður hvort um frekari rekstrargjöld væri að ræða vegna þessara rekstrarára og kvaðst gjaldandi halda að svo væri ekki. Engin frekari gögn bárust um mögulegan innskatt.

4. Fyrir liggur að gjaldandi, A, var stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi X ehf. á þeim tíma sem málið varðar og bar ábyrgð á því að skil væru gerð á virðisaukaskattsskýrslum félagsins og virðisaukaskatti í samræmi við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er því réttilega beint að gjaldanda í samræmi við ákvæði 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 með áorðnum breytingum samkvæmt 3. gr. laga nr. 42/1995.

Gjaldandi hefur sem fyrr segir ekki gert athugasemdir í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins og við skýrslutöku, sem fram fór hjá skattrannsóknarstjóra vegna rannsóknar málsins, kom fram viðurkenning gjaldanda á því að hann hefði ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum X ehf. og innheimtum virðisaukaskatti vegna seldrar þjónustu félagsins umrædd uppgjörstímabil árin 2009 og 2010. Í máli því, sem hér er til meðferðar, er um að tefla kröfugerð um ákvörðun sektar á hendur gjaldanda samkvæmt þar tilgreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sem gera ráð fyrir því að sektarákvörðun sé bundin þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin. Verður því að taka afstöðu til þess hvort skattrannsóknarstjóri ríkisins hafi með skattrannsókn sinni sýnt fram á hverju skattfjárhæð, sem undan var dregin, hafi að minnsta kosti numið. Allan vafa í því sambandi verður að meta gjaldanda í hag, sbr. grundvallarreglu 108. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála.

Eins og fram er komið eru tölulegar niðurstöður samkvæmt rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á skattskilum X ehf. vegna rekstraráranna 2009 og 2010 byggðar á útgefnum sölureikningum félagsins sem gjaldandi afhenti við rannsókn málsins auk þess sem byggt var á gögnum um innborganir á bankareikning félagsins. Á þessum grundvelli er í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins gerð grein fyrir meintri vantalinni skattskyldri veltu félagsins að fjárhæð 14.717.720 kr. rekstrarárið 2009 og 17.238.162 kr. rekstrarárið 2010, eða samtals 31.955.882 kr. Af hálfu gjaldanda, A, er viðurkennt að tekjur félagsins hafi numið þeim fjárhæðum sem sölureikningar þessir bera með sér, sbr. framburð gjaldanda við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 17. nóvember 2011. Samkvæmt þessu og að virtum gögnum málsins þykir ekkert komið fram sem gefur tilefni til annars en að miða við fjárhæð skattskyldrar veltu og innheimts virðisaukaskatts samkvæmt skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Af hálfu gjaldanda hefur ekkert komið fram um tilefni til frekari frádráttar innskatts en að framan greinir. Verður því byggt á niðurstöðum rannsóknarskýrslu um þann þátt málsins.

5. Samkvæmt framansögðu telst hafa verið leitt í ljós með rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins að gjaldandi, A, hafi með saknæmum hætti vanrækt skyldur sínar til að sjá um að gerð væru skil á virðisaukaskattsskýrslum og virðisaukaskatti X ehf. í samræmi við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, öll uppgjörstímabil virðisaukaskatts árin 2009 og 2010. Telst vangreiddur virðisaukaskattur umrædd uppgjörstímabil nema 4.618.438 kr. að teknu tilliti til innskatts. Af þessum sökum ber að ákvarða gjaldanda, A, sekt samkvæmt 6. mgr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995.

Eins og lög nr. 50/1988 hljóða eftir breytingar, sem á þeim voru gerðar með lögum nr. 42/1995, skal sekt aldrei vera lægri en sem nemur tvöfaldri þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin eða vanrækt var greiðsla á, þó að teknu tilliti til álags. Samkvæmt þessu, málsatvikum að öðru leyti og að teknu tilliti til álags samkvæmt 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988 þykir sekt gjaldanda hæfilega ákveðin 9.000.000 kr. til ríkissjóðs.

Úrskurðarorð:

Gjaldandi, A, greiði sekt að fjárhæð 9.000.000 kr. til ríkissjóðs.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum