2013

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 151/2013

24.4.2013

Úrskurður nr. 151/2013

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2013, miðvikudaginn 24. apríl, er tekið fyrir mál nr. 311/2012; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Anna Dóra Helgadóttir og Sverrir Örn Björnsson. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 25. október 2012, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2009 og 2010.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A er gefið að sök eftirfarandi:

Vanræksla á skilum á virðisaukaskattsskýrslum. Vanframtalin skattskyld velta og útskattur.

A er gefið að sök að hafa vanrækt, að því er best verður séð af ásetningi en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, að standa skattstjóranum í Reykjavík skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna allra uppgjörstímabila rekstraráranna 2009 og 2010 og að vanframtelja þannig skattskylda veltu og virðisaukaskatt, sem og að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti vegna sjálfstæðrar starfsemi sinnar við handflökun vegna uppgjörstímabilanna frá og með janúar–febrúar 2009 til og með nóvember–desember 2010. Samkvæmt rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins nemur vanframtalin virðisaukaskattsskyld velta samtals kr. 15.480.519 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 3.877.761.

Sundurliðast vanframtalin skattskyld velta og virðisaukaskattur svo sem hér greinir:

Rekstrarár Uppgjörstímabil Vanframtalin skattskyld velta kr. Vanframtalinn útskattur kr.
2009 janúar – febrúar 524.713 128.544
2009 mars – apríl 1.048.699 256.930
2009 maí  - júní 1.014.205 248.481
2009 júlí - ágúst 1.473.719 361.061
2009 september -október 1.636.808 401.018
2009 nóvember - desember 1.278.384 313.203
Samtals kr.   6.976.528 1.709.247
2010 janúar - febrúar 707.088 180.308
2010 mars – apríl 1.863.333 475.150
2010 maí  - júní 1.391.955 354.949
2010 júlí - ágúst 1.900.875 484.723
2010 september -október 1.326.843 338.345
2010 nóvember - desember 1.313.893 335.043
Samtals kr.   8.503.987 2.168.518
Samtals bæði árin kr.   15.480.519 3.877.761

Sú háttsemi A sem hér hefur verið lýst brýtur í bága við ákvæði 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. aðalreglur 1. gr. og 2. gr., 1. tl. 1. mgr. 3. gr., 1. mgr. 11. gr., 1. og 2. mgr. 13. gr., 1. mgr. 14. gr. og 19. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Umrædd háttsemi varðar A sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Við endurákvörðun á virðisaukaskatti vegna umræddra uppgjörstímabila rekstraráranna 2009 og 2010 hefur A verið gert að sæta álagi á vangreiddan virðisaukaskatt á grundvelli 27. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, samtals kr. 387.777, er komi til frádráttar við ákvörðun sektar.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 25. október 2012, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með bréfi yfirskattanefndar, dags. 30. október 2012, sem var birt gjaldanda eftir ákvæðum b-liðar 1. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins eða tilkynna sérstaklega ef hann vildi ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiddi mál hans og yrði málið þá endursent skattrannsóknarstjóra ríkisins sem tæki ákvörðun um hvort því yrði vísað til opinberrar rannsóknar, sbr. 4. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Engar athugasemdir hafa borist frá gjaldanda.

III.

1. Með bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 25. október 2012, er gerð sú krafa að gjaldanda, A, verði gerð sekt samkvæmt þargreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Gjaldandi hefur átt þess kost að koma að vörnum fyrir yfirskattanefnd í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins, en engar athugasemdir hafa borist. Þar sem gjaldandi hefur ekki gert athugasemdir við meðferð máls þessa fyrir yfirskattanefnd verður að líta svo á að hann mæli því ekki í gegn að það sæti sektarmeðferð fyrir nefndinni.

2. Sektarkrafa skattrannsóknarstjóra ríkisins í máli þessu er byggð á niðurstöðum rannsóknar embættisins á bókhaldi og skattskilum gjaldanda vegna rekstraráranna 2009 og 2010, sbr. skýrslu um rannsóknina, dags. 27. desember 2011, þar sem fram kom að á rannsóknartímabilinu hefði gjaldandi starfað sjálfstætt við handflökun. Rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins hófst formlega hinn 14. október 2011 og beindist aðallega að virðisaukaskattsskilum gjaldanda. Vegna rannsóknarinnar voru teknar skýrslur af gjaldanda hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins dagana 18. og 25. nóvember 2011 auk þess sem skýrslur voru teknar af B hinn 24. nóvember 2011 og C hinn 23. nóvember 2011. Var rannsóknin byggð á upplýsingum sem komu fram við skýrslutökur þessar, auk þess sem byggt var á sölureikningum gjaldanda og upplýsingum úr upplýsingakerfum ríkisskattstjóra. Með bréfi, dags. 9. desember 2011, sendi skattrannsóknarstjóri gjaldanda skýrslu um rannsóknina, dags. 8. desember 2011, og gaf honum kost á að tjá sig um efni hennar. Athugasemdir voru ekki gerðar af hálfu gjaldanda. Í framhaldi af þessu tók skattrannsóknarstjóri ríkisins saman nýja skýrslu um rannsóknina, dags. 27. desember 2011, sem var efnislega samhljóða hinni fyrri að viðbættum kafla um lok rannsóknarinnar.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 27. desember 2011, voru helstu niðurstöður rannsóknarinnar dregnar saman með svofelldum hætti:

„Niðurstöður rannsóknar á bókhaldi og skattsskilum skattaðila eru:

·1   Ekki hafa verið staðin skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna allra uppgjörstímabila rekstraráranna 2009 og 2010.

·2   Bókhald hefur ekki verið fært.

·3   Varðveislu bókhaldsgagna var ábótavant.

·4   Skattskyld velta og útskattur eru vantalin.

·5   Gögn um innskattsbær rekstrargjöld hafa ekki verið afhent.“

Þá gerði skattrannsóknarstjóri ríkisins tölulega grein fyrir niðurstöðum rannsóknarinnar í töflu í niðurlagi skýrslu sinnar. Þar kom fram að skattskyld velta gjaldanda væri vantalin um 6.976.528 kr. rekstrarárið 2009 og um 8.503.991 kr. rekstrarárið 2010. Þá væri útskattur vantalinn um samtals 3.877.761 kr. greind ár.

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins var mál gjaldanda sent ríkisskattstjóra til meðferðar, sbr. 5. mgr. 39. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. bréf skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 29. desember 2011. Á grundvelli rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins og í framhaldi af bréfi til gjaldanda, dags. 14. mars 2012, sem gjaldandi svaraði ekki, endurákvarðaði ríkisskattstjóri með úrskurði, dags. 7. júní 2012, virðisaukaskatt gjaldanda árin 2009 og 2010. Samkvæmt úrskurðinum var skattskyld velta ákvörðuð 6.976.528 kr. rekstrarárið 2009 og 8.503.989 kr. rekstrarárið 2010. Samkvæmt framangreindu varð virðisaukaskattur til greiðslu 1.709.249 kr. árið 2009 og 2.168.517 kr. árið 2010 auk álags samkvæmt 1. og 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988. Gjaldandi nýtti sér ekki heimilaðar málskotsleiðir vegna þessa úrskurðar ríkisskattstjóra.

3. Fram kemur í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 27. desember 2011, að gjaldandi hafi ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabila á árunum 2009 og 2010. Er í þessu sambandi rakinn sá framburður gjaldanda við skýrslutöku 18. nóvember 2011 að hann hefði ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna spilafíknar og að hann hafi eytt öllu í spilakassa. Þá kemur fram að gjaldandi hafi ekki fært eða látið færa bókhald vegna starfsemi sinnar. Einnig er rakið að við rannsóknina hafi legið fyrir sölureikningar gjaldanda með númeraröðunum 1-8 og 8-50 en á afriti eins sölureiknings hafi ekki verið hægt að sjá númer sölureikningsins. Þá vanti 17 sölureikninga til þess að númeraröð sölureikninga gjaldanda sé samfelld.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins er gerð grein fyrir rannsókn á skattskyldri veltu og útskatti gjaldanda. Við skýrslutöku 18. nóvember 2011 voru útgefnir sölureikningar gjaldanda að fjárhæð samtals 16.658.280 kr., þar af skattskyld velta 13.320.483 kr. og útskattur 3.337.797 kr., rekstrarárin 2009 og 2010 lagðir fyrir hann og staðfesti gjaldandi að hann hefði gefið þá út og að þeir hafi allir fengist greiddir. Þá er í skýrslunni sérstaklega gerð grein fyrir viðskiptum gjaldanda við C og rakið að við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 23. nóvember 2011 hafi C sagt að gjaldandi hefði unnið sem undirverktaki fyrir sig á rannsóknartímabilinu. Aðspurður hafi C sagst hafa greitt gjaldanda samkvæmt reikningum hans um 700.000 kr. á mánuði alla mánuði áranna 2009 og 2010, eða samtals um 16.800.000 kr. Því næst er rakið að B framkvæmdastjóri X ehf., hafi staðfest við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 24. nóvember 2011 að gjaldandi hafi unnið fyrir C í verktöku við handflökun. Sagðist B telja að miðað við vinnuframlag teldi hann að gjaldandi hefði fengið að lágmarki um 30-40% af greiðslum C á mánuði, en hann teldi þó að gjaldandi hefði ekki unnið fyrir C þá mánuði sem hann vann beint fyrir X ehf., þ.e. í mars og apríl 2009 og júní 2010. Þá hafi hann orðið vitni að því þegar gjaldandi og C voru að gera upp sín á milli og hafi hann séð A skrifa reikning. Er tekið fram í skýrslunni að framburður gjaldanda við skýrslutöku stangist á við framburð C og B. Við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins hinn 25. nóvember 2011 kvaðst gjaldandi kannast við að hafa unnið fyrir C í níu mánuði hvort ár og að hafa fengið greiddar um 100-200.000 kr. á mánuði fyrir. Hefði gjaldandi gefið út einn reikning á mánuði vegna vinnunnar og fengið greitt í reiðufé. Engir reikningar fengust afhentir vegna viðskipta gjaldanda og C við rannsókn málsins. Var það niðurstaða skattrannsóknarstjóra ríkisins að gjaldandi hefði fengið greiddar 150.000 kr. á mánuði í níu mánuði hvort ár vegna vinnu sinnar fyrir C. Skattskyld velta samkvæmt því næmi 1.084.338 kr. rekstrarárið 2009 og 1.075.698 kr. rekstrarárið 2010 og útskattur 265.662 kr. fyrra árið og 274.302 kr. seinna árið. Tók skattrannsóknarstjóri ríkisins fram að í ljósi þeirra upplýsinga að gjaldandi hefði gefið út einn sölureikning á mánuði í níu mánuði hvort ár þætti ekki ástæða til að áætla tekjur vegna vöntunar sölureikninga.

Samkvæmt framansögðu var það niðurstaða rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins að skattskyld velta gjaldanda hefði verið vantalin um 6.976.528 kr. rekstrarárið 2009 og 8.503.991 kr. rekstrarárið 2010.

Í kafla um rannsókn á innskatti gjaldanda er greint frá því að engin gögn hafi komið fram um mögulegan innskatt gjaldanda. Er vísað til þeirra skýringa gjaldanda við skýrslutöku að hann hefði orðið fyrir mjög litlum kostnaði á rannsóknartímabilinu og að gjaldagögn hans hefðu eyðilagst í vatnstjóni ásamt öðrum bókhaldsgögnum hans. Hann gæti því ekki lagt fram nein kostnaðargögn.

4. Gjaldandi hefur sem fyrr segir ekki gert athugasemdir í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins og við skýrslutökur, sem fram fóru hjá skattrannsóknarstjóra vegna rannsóknar málsins, kom fram viðurkenning gjaldanda á því að hann hefði ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum og innheimtum virðisaukaskatti árin 2009 og 2010. Í máli því, sem hér er til meðferðar, er um að tefla kröfugerð um ákvörðun sektar á hendur gjaldanda samkvæmt þar tilgreindum ákvæðum 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sem gera ráð fyrir því að sektarákvörðun sé bundin þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin. Verður því að taka afstöðu til þess hvort skattrannsóknarstjóri ríkisins hafi með skattrannsókn sinni sýnt fram á hverju skattfjárhæð, sem undan var dregin, hafi að minnsta kosti numið. Allan vafa í því sambandi verður að meta gjaldanda í hag, sbr. grundvallarreglu 108. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála.

Eins og rakið er að framan eru tölulegar niðurstöður samkvæmt rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á skattskilum gjaldanda vegna áranna 2009 og 2010 byggðar á útgefnum sölureikningum gjaldanda og upplýsingum sem fram komu við skýrslutökur af gjaldanda, C og B. Greindir sölureikningar eru að fjárhæð 7.335.775 kr. rekstrarárið 2009 og 9.322.505 kr. rekstrarárið 2010, og reiknaðist skattskyld velta gjaldanda í samræmi við það 5.892.190 kr. (útskattur 1.443.585 kr.) fyrra árið og 7.428.293 kr. (útskattur 1.894.212 kr.) síðara árið. Umræddir sölureikningar voru lagðir fyrir gjaldanda við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 18. nóvember 2011 og staðfesti gjaldandi að hafa gefið sölureikningana út og að þeir hefðu fengist greiddir. Þá var það niðurstaða skattrannsóknarstjóra ríkisins að gjaldandi hefði haft 150.000 kr. í tekjur á mánuði í níu mánuði á ári hvort áranna 2009 og 2010 vegna vinnu hans fyrir C. Byggði sú niðurstaða einkum á framburði gjaldanda við skýrslutöku hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins þar sem gjaldandi sagðist hafa haft um 100–200.000 kr. í tekjur á mánuði vegna vinnu sinnar fyrir C. Jafnframt var stuðst við framburði C og B, sem staðfestu að gjaldandi hefði unnið fyrir C á rannsóknartímabilinu, þótt þeir teldu að gjaldandi hefði fengið greiddar hærri fjárhæðir en hann vildi sjálfur kannast við. Eins og fram er komið hefur gjaldandi ekki gert athugasemdir í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Samkvæmt þessu og að virtum gögnum málsins þykir ekkert komið fram sem gefur tilefni til annars en að miða við niðurstöður í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins um fjárhæð skattskyldrar veltu og útskatts gjaldanda. Af hálfu gjaldanda hefur ekkert komið fram um tilefni til frádráttar innskatts. Verður því einnig byggt á niðurstöðum rannsóknarskýrslu um þann þátt málsins.

Fullsannað þykir samkvæmt því sem að framan er rakið og að öðru leyti með stoð í gögnum málsins, m.a. framburði gjaldanda við skýrslutökur hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins, að gjaldandi, sem skyldur var til þess að standa skil á virðisaukaskatti, sbr. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, hafi á saknæman hátt vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum öll uppgjörstímabil áranna 2009 og 2010 og þannig vanrækt að gera grein fyrir virðisaukaskatti til greiðslu samtals að fjárhæð 3.877.761 kr. umrædd uppgjörstímabil, sbr. sundurliðun í kröfubréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins. Varðar þetta gjaldanda sekt samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995.

Ákvarða ber gjaldanda, A, sekt samkvæmt framangreindum ákvæðum 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, vegna vanrækslu á skilum virðisaukaskatts og virðisaukaskattsskýrslna sem að framan greinir. Samkvæmt breytingum á refsiákvæðum skattalaga, sem gerðar voru með lögum nr. 42/1995 og tóku gildi 9. mars 1995, skal sekt aldrei vera lægri en sem nemur tvöfaldri þeirri skattfjárhæð sem undan var dregin, þó að teknu tilliti til álags. Líta ber til þess að gjaldandi gekkst greiðlega við brotum sínum. Að þessu virtu og að teknu tilliti til álags samkvæmt 2. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988 þykir sekt gjaldanda hæfilega ákveðin 7.500.000 kr. til ríkissjóðs.

Úrskurðarorð:

Gjaldandi, A, greiði sekt að fjárhæð 7.500.000 kr. til ríkissjóðs.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum