2014

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 320/2014

31.12.2014

Úrskurður nr. 320/2014

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2014, miðvikudaginn 31. desember, er tekið fyrir mál nr. 221/2014; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A, kt. [...], og B, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Anna Dóra Helgadóttir og Kristinn Gestsson. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 3. júlí 2014, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], og B, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2011 og 2012.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A, sem stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og prókúruhafa frá 5. janúar 2011 til og með 26. desember 2012 og eftir þann tíma sem daglegum stjórnanda X hf., (nú afskráð), og B sem stjórnarformanni, daglegum stjórnanda og prókúruhafa X hf., er gefið að sök eftirfarandi:

Vangoldin afdregin staðgreiðsla opinberra gjalda launamanna.

A og B er gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X hf. vegna greiðslutímabilanna nóvember og desember rekstrarárið 2011 og janúar til og með desember rekstarárið 2012. Vangoldin afdregin skilaskyld staðgreiðsla opinberra gjalda launamanna X hf., vegna framangreindra greiðslutímabila, nemur samtals kr. 17.562.109, að teknu tilliti til afdreginnar staðgreiðslu af launum fyrrum fyrirsvarsmanna skattaðila og vangreiddra launa. Fjárhæðin sundurliðast svo sem hér greinir:

Rekstrarár Greiðslu-tímabil Vangoldin staðgreiðsla skv. rannsókn Vangreidd laun Afdregin staðgr. fyrrum fyrirsvarsmanna Vangoldin skilaskyld staðgreiðsla kr.
2011 nóvember 2.127.546 229.155 521.840 1.376.551
2011 desember 1.877.213 0 465.236 1.411.977
Samtals kr   4.004.759 229.155 987.076 2.788.528
2012 janúar 2.919.959 0 1.104.828 1.815.131
2012 febrúar 1.996.147 0 479.624 1.516.523
2012 mars 1.770.760 0 479.624 1.291.136
2012 apríl 1.778.108 0 479.624 1.298.484
2012 maí 1.893.965 0 504.306 1.389.659
2012 júní 1.778.155 0 479.624 1.298.531
2012 júlí 1.778.255 0 479.624 1.298.631
2012 ágúst 1.710.822 0 479.624 1.231.198
2012 september 1.778.310 0 479.624 1.298.686
2012 október 1.787.020 134.716 479.624 1.172.680
2012 nóvember 1.887.478 194.060 530.496 1.162.922
2012 desember 1.589.444 1.109.820 479.624 0
Samtals kr   22.668.423 1.438.596 6.456.246 14.773.581
Samtals bæði árin kr. 26.673.182 1.667.751 7.443.322 17.562.109  

Það er mat skattrannsóknarstjóra ríkisins, byggt á gögnum málsins, að þetta hafi A og B gert á saknæman hátt, að því er frekast verður séð af ásetningi eða í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi.

Telst þessi háttsemi A og B brjóta í bága við ákvæði 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. aðalreglur 1.-3. gr., 1. tl. 5. gr., 1. mgr. 7. gr. og 1. og 3. mgr. 8. gr. þeirra laga.

Framangreind háttsemi varðar A og B sekt samkvæmt 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum.

Þess er krafist að A og B verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 3. júlí 2014, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með bréfi yfirskattanefndar, dags. 8. júlí 2014, var gjaldendum veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins eða tilkynna sérstaklega ef þeir vildu ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiddi mál þeirra og yrði málið þá endursent skattrannsóknarstjóra ríkisins sem tæki ákvörðun um hvort því yrði vísað til opinberrar rannsóknar, sbr. 4. mgr. 31. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda. Engar athugasemdir hafa borist frá gjaldendum.

III.

Með bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 3. júlí 2014, er gerð sú krafa að gjaldendum, A og B, verði gerð sekt samkvæmt þargreindum ákvæðum 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með því að þeir hafi sem fyrirsvarsmenn X ehf. (nú afskráð), vanrækt að standa skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna félagsins tiltekin greiðslutímabil árin 2011 og 2012. Gjaldendur hafa átt þess kost að koma að vörnum fyrir yfirskattanefnd í tilefni af sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins, en engar athugasemdir hafa borist. Þar sem gjaldendur hafa ekki gert athugasemdir við meðferð máls þessa fyrir yfirskattanefnd verður að líta svo á að þeir mæli því ekki í gegn að það sæti sektarmeðferð fyrir nefndinni.

Skattrannsóknarstjóri ríkisins hóf hinn 8. janúar 2014 rannsókn á skattskilum X ehf. er beindist að skilum félagsins á staðgreiðslu opinberra gjalda vegna launamanna félagsins árin 2011, 2012 og 2013. Skráður tilgangur X ehf. á þessu tímabili var að þróa og selja búnað til eldsneytissparnaðar í vélum, fjárfestingar, umsýsla fasteigna og lausafjár og „ýmislegt annað er tengist rekstri félagsins“ svo sem það var orðað. Samkvæmt gögnum málsins var bú X ehf. tekið til gjaldþrotaskipta hinn 6. júní 2013 og lauk skiptum 12. desember 2013. Var félagið afskráð 26. mars 2014. Vegna rannsóknarinnar voru teknar skýrslur af gjaldendum hjá embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins, sbr. skýrslutöku af gjaldanda, A, hinn 15. janúar 2014 og skýrslutöku af gjaldanda B hinn 20. janúar 2014, en skýrsla var einnig tekin af C hinn 15. janúar 2014 vegna málsins. Með bréfum, dags. 30. janúar 2014, sendi skattrannsóknarstjóri gjaldendum, C og skiptastjóra þrotabús skattaðila skýrslu um rannsóknina sem þá lá fyrir, dags. sama dag, og gaf þeim kost á að tjá sig um efni hennar. Athugasemdir voru ekki gerðar af hálfu þessara aðila. Í framhaldi af þessu tók skattrannsóknarstjóri ríkisins saman nýja skýrslu um rannsóknina, dags. 17. febrúar 2014, sem var efnislega samhljóða hinni fyrri að viðbættum kafla um lok rannsóknarinnar.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, dags. 17. febrúar 2014, segir að rannsókn á skattskilum X ehf. hafi einkum verið byggð á upplýsingum sem fram hafi komið við fyrrgreindar skýrslutökur, staðgreiðsluskilagreinum X ehf. ásamt sundurliðunum með þeim, kröfulýsingum launamanna, upplýsingum úr fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og tekjubókhaldi ríkissjóðs, sbr. fylgiskjöl með skýrslunni, en þar er um að ræða yfirlit um greiðslur X ehf. vegna staðgreiðslu opinberra gjalda, virðisaukaskatts og opinberra gjalda.

Fram kemur í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins að rannsókn embættisins á staðgreiðsluskilum X ehf. hafi falist í því að bera fjárhæðir afdreginnar staðgreiðslu samkvæmt staðgreiðsluskilagreinum félagsins saman við greiðslur þess til innheimtumanns ríkissjóðs. Í skýrslunni er gerð grein fyrir þeirri niðurstöðu rannsóknarinnar að fyrrum fyrirsvarsmenn X ehf. hafi ekki staðið skil innan lögboðins frests á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda vegna launamanna félagsins greiðslutímabilin nóvember og desember 2011, janúar til og með desember 2012 og janúar til og með apríl 2013, samtals að fjárhæð 25.005.431 kr. að teknu tilliti til reiknaðrar staðgreiðslu að fjárhæð 5.141.807 kr. af vangreiddum launum hjá félaginu. Fram kemur að afdregin staðgreiðsla af launum fyrirsvarsmanna X ehf., A, B og C, hafi verið samtals 8.347.815 kr. á sama tímabili.

Gjaldandi, A, staðfesti við skýrslutöku, sem fram fór hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins 15. janúar 2014, að hann hefði verið framkvæmdastjóri X ehf. og stýrt daglegum rekstri og fjármálum þess ásamt gjaldanda, B. Sagði gjaldandi að frá og með nóvember 2012 hafi engin laun verið greidd. Hefði verið ljóst í hvað stefndi og hefði félagið síðan farið í þrot á vormánuðum 2013. Kvaðst gjaldandi hafa skráð sig úr stjórn félagsins hinn 26. desember 2012, en ekki ætla að vísa þessu á B eftir þann tíma, þeir hefðu verið saman í því að gefa „líkinu hjartastuð“ eins og það var orðað. Sagði gjaldandi að C hefði ekkert komið nálægt rekstrinum. Gjaldandi sagðist gera ráð fyrir að skilagreinar staðgreiðslu, sem bornar voru undir hann, væru vegna X ehf. og sagði tilgreindan aðila hafa útbúið staðgreiðsluskilagreinarnar og byggt þær á launabókhaldinu. Taldi gjaldandi að skilagreinar X ehf. gæfu rétta mynd af rekstri félagsins. Gjaldanda var kynnt að samkvæmt gögnum málsins hefði staðgreiðsla opinberra gjalda að fjárhæð 30.147.238 kr. vegna launamanna X ehf. umrædd greiðslutímabil staðgreiðslu árin 2011, 2012 og 2013 ekki verið greidd á lögmæltum tíma og gerði gjaldandi ekki aðrar athugasemdir við þá fjárhæð en að hann hefði kosið að hún væri lægri. Fram kom af hálfu gjaldanda að staðgreiðslunni hefði ekki verið skilað þar sem enginn peningur hefði verið til. Þeir hefðu greitt starfsmönnum, en sjóðsþurrðin hefði verið algjör. Kvaðst gjaldandi ekki muna eftir því að hafa óskað eftir því við innheimtumann ríkissjóðs að greiðslum vegna skattskulda yrði ráðstafað með tilteknum hætti, en fyrirsvarsmenn félagsins hefðu alltaf verið hjá sýslumanninum í Hafnarfirði að reyna að semja eitthvað.

Við skýrslutöku af gjaldanda, B, sem fram fór 20. janúar 2014, kom fram að hann hefði verið starfandi stjórnarformaður X ehf. allt fram að því að bú félagsins hefði verið tekið gjaldþrotaskipta vorið 2013. Kvaðst gjaldandi hafa annast daglegan rekstur og fjármál félagsins ásamt gjaldanda, B. Gjaldandi kannaðist við að skilagreinar staðgreiðslu, sem bornar voru undir hann við skýrslutökuna, væru vegna X ehf., og sagði tilgreindan aðila hafa útbúið skilagreinarnar og væntanlega byggt þær á launaseðlum. Kvaðst gjaldandi telja skilagreinarnar gefa rétta mynd af launagreiðslum skattaðila fram að 1. desember 2012, en frá þeim tíma hefðu engin laun verið greidd þrátt fyrir að skilagreinum hefði verið skilað. Taldi gjaldandi launamenn hafa sótt rétt sinn til Ábyrgðarsjóðs launa og ættu gögn varðandi vangreidd laun að liggja þar. Gjaldanda var kynnt að samkvæmt gögnum málsins hefði staðgreiðsla opinberra gjalda að fjárhæð 30.147.238 kr. vegna launamanna X ehf. umrædd greiðslutímabil staðgreiðslu árin 2011, 2012 og 2013 ekki verið greidd á lögmæltum tíma og sagðist gjaldandi telja að skuldin myndi lækka vegna vangreiddra launa frá og með desember 2012, kannski um tvær milljónir á mánuði. Sagði gjaldandi að staðgreiðslu hefði ekki verið skilað vegna þess að peningarnir hefðu ekki verið til. Gjaldandi kvaðst ekki hafa óskað eftir því við innheimtumann ríkissjóðs að greiðslum vegna skattskulda yrði ráðstafað með tilteknum hætti.

Við skýrslutöku af C kom í meginatriðum fram að daglegur rekstur skattaðila hefði verið í höndum gjaldenda, A og B.

Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995, er refsivert ef launagreiðandi innir ekki af hendi þær greiðslur vegna launamanna sem hann hefur haldið eftir eða honum borið að halda eftir. Samkvæmt fortakslausum ákvæðum nefndra laga og með stoð í dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands, sbr. m.a. dóma Hæstaréttar 27. febrúar 1997 (H 1997:789), 25. september 1997 (H 1997:2446), 14. janúar 1999 (H 1999:79), 18. febrúar 1999 (H 1999:544 og 550), 10. júní 1999 (H 1999:2645) og 30. mars 2000 (H 2000:1422), geta fyrirsvarsmenn lögaðila unnið til refsingar með því einu að láta ógert að skila umræddum gjöldum í ríkissjóð á tilskildum tíma, enda sé huglægum refsiskilyrðum fullnægt.

Gjaldendur, A og B, voru báðir fyrirsvarsmenn X ehf. á þeim tíma sem málið varðar. Var A skráður framkvæmdastjóri félagsins og stjórnarmaður og B var skráður stjórnarmaður, en gjaldendur höfðu báðir prókúruumboð fyrir félagið. Við skýrslutökur af gjaldendum kom fram að þeir hefðu báðir annast daglegan rekstur og fjármál félagsins. Verður samkvæmt framansögðu að telja að báðir gjaldendur, A og B, hafi sem fyrirsvarsmenn X ehf. borið ábyrgð á skilum staðgreiðslu opinberra gjalda félagsins. Sektarkröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er því réttilega beint að báðum gjaldendum.

Til grundvallar niðurstöðu skattrannsóknarstjóra ríkisins um fjárhæð vangreiddrar staðgreiðslu opinberra gjalda X ehf. umrædd greiðslutímabil árin 2011 og 2012 liggja staðgreiðsluskilagreinar, sem gjaldendur, A og B, hafa staðfest að varði rekstur einkahlutafélagsins, sbr. skýrslutökur af gjaldendum 15. janúar 2014 og 20. janúar 2014, þar sem einnig kom fram það álit gjaldanda, A, að gögnin gæfu rétta mynd af rekstrinum, en gjaldandi, B, gerði fyrirvara um að skuld kynni að lækka eitthvað vegna vangreiddra launa frá og með desember 2012. Tekið skal fram að í kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins er ekki gerð krafa um sekt vegna desember 2012 og greiðslutímabila staðgreiðslu á árinu 2013. Verður samkvæmt þessu byggt á því að staðgreiðsla opinberra gjalda, sem gjaldendum bar að standa skil á vegna X ehf. greiðslutímabilin nóvember og desember 2011 og janúar til og með nóvember 2012, hafi numið þeim fjárhæðum sem greinir í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins, enda þykir ekkert hafa komið fram sem gefur tilefni til annars. Sektarkrafa skattrannsóknarstjóra í máli þessu er byggð á niðurstöðum í skýrslu embættisins að öðru leyti en því að ekki er gerð krafa um ákvörðun sektar vegna greiðslutímabilanna desember 2012 og janúar til og með apríl 2013, sem fyrr segir, og vangreiddra launa að fjárhæð 1.667.751 kr. og vangreiddrar staðgreiðslu að fjárhæð 7.443.322 kr. af launum fyrirsvarsmanna einkahlutafélagsins.

Í skýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins og greinargerð með kröfugerð embættisins til yfirskattanefndar er gerð grein fyrir greiðslum X ehf. til innheimtumanns vegna staðgreiðslu, virðisaukaskatts og opinberra gjalda frá því að skuldir sem um ræðir í máli þessu vegna staðgreiðslu opinberra gjalda byrjuðu að myndast 16. desember 2011. Fram kemur að á tímabilinu 16. desember 2011 til og með 3. júlí 2014 námu greiðslur vegna höfuðstóls staðgreiðslu opinberra gjalda 20.108.635 kr. Þar af var 2.287.270 kr. ráðstafað inn á höfuðstól staðgreiðslu vegna greiðslutímabilsins janúar 2012 sem er meðal þeirra tímabila sem rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins tók til. Eins og mál þetta er lagt fyrir af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins þykir rétt að þessi fjárhæð, sem skil voru gerð á samkvæmt framangreindu áður en mál þetta var sent yfirskattanefnd til meðferðar, komi til frádráttar fjárhæð vangreiddrar staðgreiðslu samkvæmt kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins, enda er það í samræmi við það sem tíðkast hefur við meðferð hliðstæðra mála fyrir yfirskattanefnd. Verður því miðað við vangreidda staðgreiðslu að fjárhæð 15.274.839 kr. í máli þessu.

Sá hluti greiðslna X ehf. á umræddu tímabili, sem innheimtumaður ríkissjóðs hefur ráðstafað til greiðslu dráttarvaxta, álags og kostnaðar, nemur 4.581.412 kr. vegna staðgreiðslu, en greiðslur vegna virðisaukaskatts voru óverulegar. Þá kemur fram í gögnum málsins að greiðslur til innheimtumanns ríkissjóðs vegna opinberra gjalda X ehf., þ.m.t. tryggingagjalds, á þeim tíma sem hér um ræðir, námu 9.243.105 kr. og var innborgunum að hluta varið til greiðslu dráttarvaxta og kostnaðar. Aðrar greiðslur til innheimtumanns en vegna höfuðstóls staðgreiðslu og virðisaukaskatts námu því samtals 13.824.517 kr.

Með dómi Hæstaréttar Íslands 2. október 2003 (H 2003:3178), sem varðar hliðstætt mál, var því hafnað að greiðslur, sem innheimtumaður hefur ráðstafað upp í álag, dráttarvexti og kostnað, geti haft áhrif á sakarmat og komið með beinum hætti til frádráttar skattskuld sem viðurlagaákvörðun tekur til. Ekki verður talið að breyting með lögum nr. 134/2005 á refsiákvæðum laga nr. 45/1987 haggi þessari dómaframkvæmd. Með breytingalögum þessum er hins vegar skýrt kveðið á um það að greiðslur skattaðila á verulegum hluta skattfjárhæðar geti að uppfylltum ákveðnum skilyrðum leitt til þess að ákvæði um lágmark sektarrefsingar eigi ekki við. Samkvæmt dómum Hæstaréttar Íslands 30. mars 2006 í málunum nr. 428/2005 og 469/2005 ber að taka í þessu sambandi tillit til innborgana sem ráðstafað hefur verið til greiðslu álags vegna vangreiddrar staðgreiðslu opinberra gjalda starfsmanna og vangreidds virðisaukaskatts, svo og skuli fara á sama hátt með greiðslur vegna staðgreiðslu opinberra gjalda þess fyrirsvarsmanns sem refsiábyrgð sætir. Ekki verður annað séð en að líta megi með hliðstæðum hætti til greiðslna viðkomandi skattaðila sem innheimtumaður hefur ráðstafað upp í dráttarvexti og kostnað, og eftir atvikum til greiðslu á opinberum gjöldum, enda er það í samræmi við úrskurðaframkvæmd fyrir gildistöku laga nr. 134/2005, sbr. og fyrrgreindan dóm Hæstaréttar frá árinu 2003 og aðra dóma í hliðstæðum málum, m.a. H 2000:2387. Eins og mál þetta liggur fyrir þykir því mega taka tillit til fyrrgreindra greiðslna X ehf. að fjárhæð 13.824.517 kr.

Samkvæmt því sem að framan er rakið og gögnum málsins að öðru leyti var afdregin staðgreiðsla opinberra gjalda vegna launamanna X ehf. greiðslutímabilin nóvember og desember 2011 og janúar til og með nóvember 2012, samtals að fjárhæð 15.274.839 kr., ekki greidd til innheimtumanns ríkissjóðs á tilskildum tíma, sbr. 1. og 2. mgr. 20. gr. laga nr. 45/1987. Vegna skýringa gjaldenda um að erfiðleikar í rekstri X ehf. hafi valdið vanskilum á staðgreiðslu opinberra gjalda skal tekið fram að ekki telst tæk varnarástæða að fé hafi ekki verið til í rekstri félagsins til að standa skil á umræddum gjöldum, sbr. m.a. fyrrnefndan dóm Hæstaréttar Íslands frá 30. mars 2000 (H 2000:1422).

Með vísan til þess sem rakið hefur verið telst fullnægt þeim huglægu refsiskilyrðum sem fram koma í 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995. Ber að ákvarða gjaldendum, A og B, sekt samkvæmt þessum lagaákvæðum vegna vanrækslu á skilum staðgreiðslu opinberra gjalda í rekstri X ehf. fyrrgreind greiðslutímabil árin 2011 og 2012.

Eins og lög nr. 45/1987 hljóða eftir breytingar, sem á þeim voru gerðar með lögum nr. 42/1995, skal sekt aldrei vera lægri en sem nemur tvöfaldri þeirri skattfjárhæð sem vanrækt var greiðsla á, þó að teknu tilliti til álags. Samkvæmt breytingu á greindum lögum með lögum nr. 134/2005 eiga fésektarákvæði þessi þó ekki við hafi brot einskorðast við að standa ekki skil á réttilega tilgreindri staðgreiðslu samkvæmt skilagrein staðgreiðslu, enda hafi verið gerð skil á verulegum hluta skattfjárhæðar eða málsbætur eru miklar.

Í tilviki gjaldenda er til þess að líta að skilagreinar staðgreiðslu liggja fyrir vegna allra tímabila staðgreiðslu sem málið varðar og eru fjárhæðir í málinu byggðar á þeim. Sem fyrr segir verður lagt til grundvallar að greiðslur til innheimtumanns ríkissjóðs, sem hér beri að líta til, hafi numið 13.824.517 kr. Að teknu tilliti til innborgunar á höfuðstól svarar greind fjárhæð til vangreiddrar staðgreiðslu vegna fyrstu ellefu greiðslutímabila staðgreiðslu sem sektarkrafa skattrannsóknarstjóra tekur til og verulegs hluta tólfta tímabilsins. Samkvæmt þessu og í samræmi við dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands, sbr. fyrrgreinda dóma frá 30. mars 2006, verður því talið að sú undantekning frá fésektarlágmarki, sem mælt er fyrir um í lögum nr. 134/2005, taki til vanskila á staðgreiðslu opinberra gjalda umrædd greiðslutímabil að fjárhæð samtals 14.111.917 kr. Ekki liggur annað fyrir en að vangreiðsla á staðgreiðslu opinberra gjalda vegna annarra tímabila hafi fyrst og fremst stafað af erfiðleikum í rekstri X ehf. og ekkert er komið fram um að gjaldendur hafi persónulega notið nokkurs hags af brotinu. Hins vegar varðar mál þetta vanskil á staðgreiðslu að ekki óverulegri fjárhæð og vegna alllangs tímabils. Að þessu virtu og með vísan til greindrar dómaframkvæmdar verður því ekki talið að skilyrði um miklar málsbætur, sbr. ákvæði laga nr. 134/2005, eigi hér við. Því teljast lágmarksákvæði í 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 gilda um vanskil staðgreiðslu að fjárhæð 1.162.922 kr.

Þegar höfð eru í huga lagarök, sem búa að baki framangreindum ákvæðum um lágmarks- og margfeldissektir, með tilliti til háttsemi gjaldenda og afleiðinga hennar, þykir rétt að ákveða sektarfjárhæð í máli þessu heildstætt en með tiltekinni skiptingu milli gjaldenda. Samkvæmt framansögðu og að teknu tilliti til álags samkvæmt 1. tölul. 2. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987 þykir sekt gjaldenda hæfilega ákveðin 3.600.000 kr. til ríkissjóðs sem skiptist þannig milli þeirra að gjaldandi, A, greiði sekt að fjárhæð 1.800.000 kr. og gjaldandi, B, greiði sekt að fjárhæð 1.800.000 kr.

Úrskurðarorð:

Gjaldandi, A, greiði sekt að fjárhæð 1.800.000 kr. til ríkissjóðs. Gjaldandi, B, greiði sekt að fjárhæð 1.800.000 kr. til ríkissjóðs.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum