Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 3/2022 um sátt (felld úr gildi)

13.4.2022

Uppfært 20.9.2023 - Með ákvörðun 7/2023 var neðangreind sáttargerð felld úr gildi.

Samkomulag um sátt vegna brota SB bókhalds slf. á ákvæðum laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og laga nr. 64/2019, um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna.

Þann 13. apríl 2022 gerðu ríkisskattstjóri og SB bókhald slf. (hér eftir málsaðili) með sér samkomulag um að ljúka með sátt máli vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og laga nr. 64/2019, um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna.

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

Málsaðili viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018 og laga nr. 64/2019:

  • Hafa ekki framkvæmt áreiðanleikakönnun í samræmi við 8. og 10. gr. pþl. og teljast þau brot varða við 3. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Hafa ekki aflað upplýsinga um raunverulegan eiganda í samræmi við e. lið 10. gr. pþl. og teljast þau brot varða við 4. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Hafa ekki sannað deili á viðskiptamönnum í samræmi við a. lið 1. mgr. 10. gr. pþl. og teljast þau brot varða við 4. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Hafa ekki metið hvort viðskiptamenn sæti alþjóðlegum þvingunaraðgerðum í samræmi við 3. mgr. 7. gr. frystingarlaga og teljast þau brot varða við 1. og 2. tl. 1. mgr. 20. gr. frystingarlaga.
  • Hafa ekki séð til þess að starfsmenn þeirra hljóti sérstaka þjálfun og þekkingu á ákvæðum peningaþvættislaga í samræmi við 33. gr. pþl. og teljast þau brot varða við 19. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Hafa ekki innleitt stefnur, reglur og verkferla sem stuðla að samræmdum starfsaðferðum og góðri framkvæmd peningaþvættislaganna og teljast þau brot varða við 20. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.

Málsaðili fellst á að greiða sekt að fjárhæð 1.500.000 krónur.

Þá fellst málsaðili á að framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við kröfur ríkisskattstjóra.

Málavextir og málsástæður og lagarök

Í september 2020 óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 2. mgr. 38. gr. pþl. og 2. mgr. 16. gr. frystingarlaga.

Málsaðili varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.

Í desember 2021 boðaði ríkisskattstjóri til vettvangsathugunar sem fór fram þann 14. desember 2021 á starfsstöð málsaðila.

Við framkvæmd vettvangsathugunar varð ljóst að málsaðila var ekki að fullu kunnugt um skyldur sínar samkvæmt peningaþvættislögum og frystingarlögum. Gerði ríkisskattstjóri því athugasemdir við heildarframkvæmd félagsins í aðgerðum sínum samkvæmt peningaþvættislögum og frystingarlögum. Telst framangreint alvarlegt brot sem varðar stjórnvaldssekt í samræmi við 46. gr. pþl. og 20. gr. frystingarlaga.

Sektarfjárhæð

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt reglunum er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.

Samkvæmt 2. mgr. 46. gr. pþl. og 1. mgr. 20. gr. frystingarlaga skal, við ákvörðun stjórnvaldssekta tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða.

Við mat á sektarfjárhæð telur ríkisskattstjóri að sú staðreynd að málsaðili hafi ekki, frá gildistöku laganna, starfað í samræmi við ákvæði peningaþvættislaga og frystingarlaga, leiða til þess að brot telst alvarlegt. Þá er einnig litið til fjárhagsstöðu félagsins m.v. ársreikninga fyrir árin 2020 og 2019. Ríkisskattstjóri tekur tillit til samstarfsvilja félagsins og telst það félaginu til bóta. Einnig er litið til þess að málsaðili er auðkenndur í birtingu ákvörðunar á vef ríkisskattstjóra. Telst sektarfjárhæð, að öllu framangreindu virtu, hæfilega ákveðin 3.000.000 krónur. Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nemur fjárhæð sáttar 50% af boðaðri sektarfjárhæð, eða 1.500.000 krónur.

Réttaráhrif

Samkomulag þetta er gert á grundvelli 47. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, 21. gr. laga nr. 64/2019, um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Samkomulagið er bindandi fyrir málsaðila og ríkisskattstjóra þegar báðir aðilar hafa samþykkt og staðfest efni þess með undirskrift sinni. Málsaðili telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið, sbr. nánar viðauka I við samkomulag þetta.

Málsaðili brýtur gegn samkomulaginu ef hann greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka I við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að málsaðili teljist hafa brotið gegn sátt þessari. Verði málsaðili uppvís að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum nr. 64/2019, um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög.

Ríkisskattstjóri sendir málsaðila tvö eintök af sáttargerð. Málsaðili skal undir­rita og senda bæði eintökin til ríkisskattstjóra innan 15 daga frá móttöku þeirra. Ríkis­skatt­stjóri undirritar því næst bæði eintök sáttargerðarinnar og sendir málsaðila annað eintakið ásamt kröfu þar sem veittur er 30 daga greiðslufrestur, sbr. 5. mgr. 4. gr. reglna nr. 1132/2020 um sáttargerðir samkvæmt pþl.. 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum