Ákvörðun 6/2026 um niðurfellingu sáttar og beitingu stjórnvaldssektar
Þann 15. september 2026 ákvað ríkisskattstjóri að leggja stjórnvaldssekt á Bílasölu Akureyrar ehf. (hér eftir félagið), kt. 531294-2469, vegna brota gegn ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir oftast pþl.) og vegna brota gegn ákvæðum laga nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna (hér eftir oftast þfl.). Með ákvörðuninni var jafnframt felld úr gildi sáttargerð á milli ríkisskattstjóra og félagsins, dags. 31. maí 2023, sbr. ákvörðun ríkisskattstjóra nr. 5/2023.
Með sáttargerð aðila viðurkenndi félagið að hafa brotið gegn ákvæðum laga nr. 140/2018 og þágildandi laga nr. 64/2019 og samþykkti að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 1.500.000 kr. Samhliða sáttargerðinni lagði ríkisskattstjóri fyrir félagið að framkvæma nánar tilgreindar úrbætur í samræmi við úrbótakröfu sem var ófrávíkjanlegur hluti sáttargerðar.
Ákvörðun ríkisskattstjóra byggist á því að félagið hafði ekki starfað í samræmi við ákvæði laganna og ekki framkvæmt fullnægjandi úrbætur í samræmi við úrbótakröfu embættisins. Félagið hafði því ekki uppfyllt skilyrði sáttargerðar þess við ríkisskattstjóra. Ákvörðun ríkisskattstjóra tók bæði til brota sem fjallað var um í sátt ríkisskattstjóra og félagsins og til þeirra brota sem embættið varð áskynja um við úttekt á úrbótakröfu félagsins.
Félagið telst hafa brotið gegn ákvæðum laganna með því að:
- Hafa ekki framkvæmt áreiðanleikakönnun í samræmi við 8. gr. pþl., sem taldist brot gegn 3. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl., sbr. nú 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl., og er það fyrra brot úr sátt ríkisskattstjóra og félagsins sem og nýtt brot.
- Fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda var ekki aflað í samræmi við e-lið 1. mgr. 10. gr. pþl., sem taldist brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl., sbr. nú 5. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl., og er það fyrra brot úr sátt ríkisskattstjóra og félagsins sem og nýtt brot.
- Ekki var framkvæmd athugun með fullnægjandi hætti á því hvort viðskiptamenn og raunverulegir eigendur væru í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla samkvæmt 1. mgr. 17. gr. pþl., sem taldist brot gegn 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl., sbr. nú 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl., og er það fyrra brot úr sátt ríkisskattstjóra og félagsins sem og nýtt brot.
- Hafa ekki framkvæmt aukna áreiðanleikakönnun með fullnægjandi hætti á viðskiptamanni í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla í samræmi við 13. og 17. gr. pþl., sem telst brot gegn 8. og 12. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana, þ. á m. könnun á stjórnmálalegum tengslum viðskiptamanna, sbr. 1. mgr. 17. gr. pþl., voru ekki varðveitt í samræmi við a-lið 1. mgr. 28. gr. pþl., sem taldist brot gegn 16. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl., sbr. nú 17. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl., og er það fyrra brot úr sátt ríkisskattstjóra og félagsins.
- Ferlar og aðferðir til að meta hvort viðskiptamenn séu á listum yfir þvingunaraðgerðir voru ekki til staðar í samræmi við 2. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019, sbr. nú 2. mgr. 13. gr. þfl., sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., og er það fyrra brot úr sátt ríkisskattstjóra og félagsins.
- Hafa ekki skimað viðskiptamenn og raunverulega eigendur gagnvart listum yfir þvingunaraðgerðir í samræmi við 3. mgr. 13. gr. þfl., sbr. áður 2. mgr. 7. gr. laga nr. 64/2019, sem telst brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 30. gr. þfl., sbr. áður 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 64/2019, og er það fyrra brot úr sátt ríkisskattstjóra og félagsins sem og nýtt brot.
Með ákvörðun embættisins lagði ríkisskattstjóri stjórnvaldssekt á félagið að fjárhæð 3.200.000 kr. Við greiðslu þeirrar sektar kom til frádráttar sú fjárhæð sem félagið hafði þegar greitt á grundvelli sáttar samkvæmt ákvörðun ríkisskattstjóra nr. 5/2023.
Málavextir, málsástæður og lagarök
Með vísan til n-liðar 1. mgr. 2. gr. pþl. falla fasteignasölur, bifreiðaumboð, fasteigna-, fyrirtækja-, skipa- og bifreiðasalar og fasteignafélög, hvort sem starfsemi snýst um beina leigu eða sölu þessara félaga á fasteignum, undir gildissvið laganna.
Samkvæmt 12. tölul. 1. mgr. 3. gr. þfl. er tilkynningarskyldur aðili samkvæmt lögunum skilgreindur sem aðili sem fellur undir 2. gr. pþl.
Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með því að tilkynningarskyldir aðilar sem falla undir l–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl. fari að ákvæðum laganna og reglum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra, sbr. 2. mgr. 38. gr. pþl. Þá hefur ríkisskattstjóri eftirlit með því að sömu tilkynningarskyldir aðilar fari að ákvæðum 10. og 13. gr. þfl., sbr. 2. mgr. 26. gr. laganna.
Aðdragandi ákvörðunar ríkisskattstjóra er að eftir vettvangsathugun á starfsstöð félagsins var því tilkynnt að embættið hygðist leggja á félagið stjórnvaldssekt að fjárhæð 3.000.000. vegna brota gegn ákvæðum laga nr. 140/2018 og þágildandi laga nr. 64/2019. Í framhaldi þess var með ákvörðun ríkisskattstjóra, dags. 31. maí 2023, gerð sátt á milli ríkisskattstjóra og félagsins, sbr. ákvörðun embættisins nr. 5/2023. Í sáttinni fólst að félagið viðurkenndi að hafa brotið gegn eftirfarandi lagaákvæðum með því að:
- Áreiðanleikakannanir voru ekki framkvæmdar á viðskiptamönnum fyrr en í lok októbermánaðar 2022 og þá ekki að fullu framkvæmdar í samræmi við 8. og 10. gr. pþl., sem taldist brot gegn 3. og 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Fullnægjandi upplýsinga um raunverulegan eiganda var ekki aflað í samræmi við 10. gr. pþl., sem telst brot gegn 4. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Stjórnmálaleg tengsl viðskiptamanna voru ekki könnuð samkvæmt 1. mgr. 17. gr. pþl., sem taldist brot gegn 11. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
- Ferlar og aðferðir til að meta hvort viðskiptamenn séu á listum yfir þvingunaraðgerðir voru ekki til staðar í samræmi við 2. mgr. 7. gr. frystingarlaga, sem taldist brot gegn 2. tölul. 1. mgr. 20. gr. frystingarlaga.
- Afrit af gögnum og upplýsingum vegna áreiðanleikakannana, þ. á m. könnun á stjórnmálalegum tengslum viðskiptamanna, sbr. 1. mgr. 17. gr. pþl., voru ekki varðveitt í samræmi við a-lið 1. mgr. 28. gr. pþl., sem taldist brot gegn 16. tölul. 1. mgr. 46. gr. pþl.
Með sáttargerðinni samþykkti félagið að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 1.500.000 kr., þ.e. sem nam 50% af fyrirhugaðri ætlaðri sektarfjárhæð sem félaginu hafði verið tilkynnt um.
Með viðauka við sátt ríkisskattstjóra og félagsins, dags. 31. maí 2023, setti ríkisskattstjóri fram kröfur um úrbætur af hálfu félagsins. Viðaukinn taldist vera ófrávíkjanlegur hluti af sátt aðila. Fram kom að ríkisskattstjóri færi fram á að félagið færi að ákvæðum laganna. Lagt var fyrir félagið að áreiðanleikakanna alla viðskiptamenn félagsins, þar með talda fyrirsvarsmenn lögaðila í samræmi við ákvæði 8. og 10. gr. pþl. Einnig lagði ríkisskattstjóri fyrir félagið á grundvelli 18. gr. þágildandi laga nr. 64/2019 að útbúa og starfa í samræmi við skriflegan verkferil sbr. 1. og 3. mgr 7. gr. laganna. Þá kom fram að ef fullnægjandi úrbætur væru ekki gerðar innan tilgreinds frests myndi ríkisskattstjóri beita auknum viðurlögum í samræmi við ákvæði laga nr. 140/2018 og þágildandi laga nr. 64/2019.
Úttekt ríkisskattstjóra á úrbótakröfu fór fram með gagnaöflun þar sem ríkisskattstjóri kannaði framkvæmd áreiðanleikakannana af hálfu félagsins í ákveðnum viðskiptum.
Við úttekt ríkisskattstjóra varð ekki annað séð en að félagið hefði ekki framkvæmt fullnægjandi úrbætur í samræmi við úrbótakröfu embættisins. Félagið hafði ekki framkvæmt áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum sínum með fullnægjandi hætti í samræmi við ákvæði 8. gr., 10. gr., 13. gr. og 17. gr. pþl. og ekki skimað alla viðskiptamenn og raunverulega eigendur gagnvart listum yfir alþjóðlegar þvingunaraðgerðir í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í 3. mgr. 13. gr. þfl.
Einnig kom fram við skoðun á úttekt á úrbótakröfu að áhættumat félagsins hefði ekki verið uppfært í samræmi við uppfærslur á áhættumati ríkislögreglustjóra og ekki lá fyrir skrifleg og rökstödd afstaða félagsins hvort tilefni væri til að uppfæra áhættumat sitt.
Með bréfi ríkisskattsstjóra var félaginu tilkynnt að ekki yrði annað séð en að félagið hefði ekki framkvæmt fullnægjandi úrbætur í samræmi við úrbótakröfu þess og því ekki uppfyllt skilyrði sáttargerðar félagsins við ríkisskattsstjóra, sbr. ákvörðun embættisins nr. 5/2023. Ríkisskattstjóri hygðist því fella úr gildi sáttagerð embættisins við félagið og leggja á félagið stjórnvaldssekt vegna þeirra brota sem fjallað var um í sáttargerðinni og vegna þeirra brota sem embættið varð áskynja um við úttekt á úrbótakröfu félagsins.
Ákvörðun
Ríkisskattstjóri getur lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn þeim ákvæðum sem tilgreind eru í 1. mgr. 46. gr. pþl. og 1. mgr. 30. gr. þfl. Stjórnvaldssektir á hendur aðilum sem falla undir i–u-liði 1. mgr. 2. gr. pþl., geta numið frá 500.000 krónum til 500.000.000 króna, sbr. 5. mgr. 46. gr. pþl. og 5. mgr. 30. gr. þfl. Við ákvörðun um tegund og umfang viðurlaga samkvæmt XII. kafla pþl., þ.m.t. fjárhæð stjórnvaldssekta, skal taka tillit til sjónarmiða sem fram koma í a–i-liðum 1. mgr. 44. gr. a pþl., sbr. einnig 2. mgr. 30 gr. þfl.
Við ákvörðun sektarfjárhæðar leit ríkisskattstjóri til fyrri brota félagsins og þess að félagið hafði ekki framkvæmt fullnægjandi úrbætur í samræmi við úrbótakröfu embættisins, sem var ófrávíkjanlegur viðauki með sáttargerð við félagið vegna fyrri brota þess. Þá var litið til þess að ákvörðunin tók bæði til þeirra brota félagsins sem fjallað hafði verið um í sáttargerð ríkisskattstjóra og félagsins og hins vegar til þeirra brota sem embættið varð áskynja um við athugun á framkvæmd áreiðanleikakannana af hálfu félagsins vegna úttektar á úrbótakröfu félagsins. Jafnframt var litið til þess að þrátt fyrir að félaginu hefði verið veittur rúmur frestur til að verða við úrbótakröfu ríkisskattstjóra, þ.e. til 1. janúar 2024, hafði félagið ekki innleitt viðunandi úrbætur þegar úttekt á úrbótakröfunni fór fram þann 16. mars 2026. Ríkisskattstjóri hefur auk þess litið til þess að félagið hefur sýnt samstarfsvilja og veitt ríkisskattstjóra greiðan aðgang að öllum umbeðnum gögnum og upplýsingum. Auk framangreinds leit ríkisskattstjóri til fjárhagsstöðu félagsins eins og hún birtist í ársreikningum félagsins fyrir árin 2023 og 2024. Að lokum leit ríkisskattstjóri til fyrri framkvæmdar embættisins í málum sem varða aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, bæði hjá aðilum á bifreiðamarkaði sem og heildarframkvæmdar í málaflokknum. Nam fjárhæð sektar alls 3.200.000 kr. en sekt að fjárhæð 1.500.000 kr. sem félagið hafði þegar greitt á grundvelli sáttar, sbr. ákvörðun ríkisskattstjóra nr. 5/2023 kom til frádráttar framangreindri stjórnvaldssekt.
Með ákvörðun ríkisskattstjóra var sáttargerð ríkisskattstjóra og Bílasölu Akureyrar ehf., dags. 31. maí 2023, sbr. ákvörðun embættisins nr. 5/2023, felld úr gildi og félaginu gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 1.700.000 kr.
Samkvæmt 53. gr. pþl., 36. gr. þfl. og reglum ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög sem ákveðin eru í samræmi við 46.–47. og 50.–51. gr. pþl. og 30. og 31. gr. þfl.
