Framtalsleiðbeiningar 2021

Leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals einstaklinga eru nær eingöngu sóttar á netið. Hægt er að fá leiðbeiningarnar á pappír með því að sækja þær í næstu starfsstöð Skattsins, en þær eru ekki bornar út. Þegar talið er fram á vefnum eru framtalsleiðbeiningar alltaf við höndina.

Leiðbeiningar á vefnum

Á skatturinn.is er hægt að opna leiðbeiningarnar á rafrænu formi og er kaflaskiptingin eins og í pappírsútgáfunni.

Leiðbeiningar á pappír

Hægt er að sækja leiðbeiningarnar í pdf-útgáfu hér, eða sækja þær á pappír í afgreiðslu Skattsins.

RSK 8.01 Skattframtal einstaklinga 2021

 

 

 

 

Einfaldar leiðbeiningar

Mynd af forsíðu bæklings um einföld framtalsskilÍ leiðbeiningunum er stiklað á stóru yfir það helsta sem einstaklingar þurfa að huga að til að skila skattframtali.

Opna leiðbeiningar

Þessar leiðbeiningar eru einnig fáanlegar á fjórum erlendum tungumálum: 
English 
Polski 
Español 
Lietuviškai

 

Leiðbeiningar með vefframtali

Á vefnum eru leiðbeiningarnar settar þannig fram að á framtalinu og fylgiskjölum þess er að finna hvítt spurningarmerki á bláum grunni. Ef smellt er á það opnast leiðbeiningar á skjánum, í þeim kafla sem á við um þann framtalslið eða fylgiskjal sem framteljandi er með á skjánum þegar hann smellir.

 


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum