Framtalsleiðbeiningar 2025
Leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals einstaklinga eru nær eingöngu sóttar á netið. Hægt er að fá leiðbeiningarnar á pappír með því að sækja þær í næstu starfsstöð Skattsins.
Framtalsfrestur 2025 er til 14. mars.
Leiðbeiningar á vefnum
Á skatturinn.is er hægt að opna leiðbeiningarnar á rafrænu formi og er kaflaskiptingin eins og í pappírsútgáfunni.
Leiðbeiningabæklingur
Hægt er að sækja leiðbeiningarnar í pdf-útgáfu hér, eða sækja þær á pappír í afgreiðslur Skattsins.
RSK 8.01 | Skattframtal einstaklinga 2025 |
Einfaldar leiðbeiningar
Í leiðbeiningunum er stiklað á stóru yfir það helsta sem einstaklingar þurfa að huga að til að skila skattframtali.
Þessar leiðbeiningar eru einnig fáanlegar á sex erlendum tungumálum:
English
Polski
Español
Lietuviškai
عربي (arabíska)
українська(úkraínska)
Leiðbeiningar með vefframtali
Á vefnum eru leiðbeiningarnar settar þannig fram að á framtalinu og fylgiskjölum þess er að finna hvítt spurningarmerki á bláum grunni. Ef smellt er á það opnast leiðbeiningar á skjánum, í þeim kafla sem á við um þann framtalslið eða fylgiskjal sem framteljandi er með á skjánum þegar hann smellir.
Leiðbeiningar vegna hlutabréfa 2024
Sala hlutabréfa – almennar leiðbeiningar
Kaup hlutabréfa – almennar leiðbeiningar
Sala hlutabréfa í Marel
Hluthafar sem áttu hlutabréf í Marel og samþykkttu valfrjálst yfirtökutilboð JBT þurfa að gera grein fyrir sölunni. Hér að neðan eru leiðbeiningar um hvernig salan er talin fram á framtali allt eftir því hvaða tilboði var tekið.
Tilboð 1: Hluthafar sem völdu að fá greitt með evrum
Tilboð 2: Hluthafar sem völdu að fá greitt með JBT bréfum og evrum
Tilboð 3: Hluthafar sem völdu að fá greitt með JBT bréfum (fengu greitt í JBT bréfum og evrum)