Vanskilakröfur

Gjöld sem ekki hafa verið greidd á gjalddaga eru vanskilakröfur (skuldir).

Innheimtumanni ríkissjóðs er skylt að innheimta allar kröfur. Það frestar ekki íþyngjandi vanskilaúrræðum þótt skattskýrslu hafi ekki verið skilað eða skattálagning verið kærð.

Til að koma í veg fyrir íþyngjandi innheimtuaðgerðir er bent á að hafa samband við innheimtumann ríkissjóðs og kanna möguleika á gerð greiðsluáætlunar.

Dráttarvextir reiknast samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu á gjaldfallna kröfu frá gjalddaga hafi ekki verið greitt á eindaga. Í lögboðnum tilvikum bætist við vanskilaálag sem reiknast af höfuðstól. Þar sem álagning dráttarvaxta og vanskilaálags er lögboðin er ekki hægt að lækka eða fella niður dráttarvexti og álag.

Það er hagur gjaldanda að greiða skattskuldir sínar sem fyrst til að koma í veg fyrir kostnað við innheimtuaðgerðir og dráttarvexti sem leggjast á kröfuna við vanskil. Bent er á að kostnaður vegna innheimtu er óafturkræfur, gjaldandi ber þann kostnað jafnvel þó um innheimtu áætlaðra skatta og gjalda sé að ræða.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Lög nr. 150/2019 um innheimtu opinberra skatta og gjalda

Nánari upplýsingar

Hvernig get ég greitt?
Upplýsingar um stöðu hjá innheimtumanni ríkissjóðs
Skattar og gjöld sem innheimtumenn ríkissjóðs innheimta

Eyðublöð

Umboð vegna upplýsinga og gagna hjá innheimtumanni ríkissjóðs
English version of the form - Power of Attorney - information request

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum