Staðgreiðsla 2005
Skatthlutfall í staðgreiðslu
Skatthlutfall í staðgreiðslu er 37,73%. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1990 eða síðar, er 6% af tekjum umfram frítekjumark barna sem er kr. 96.125.
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er kr. 339.846 á ári, eða kr. 28.321 á mánuði.
Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2005.
Einn mánuður | kr. | 28.321 |
Hálfur mánuður | kr. | 14.160 |
Fjórtán dagar | kr. | 13.035 |
Ein vika | kr. | 6.517 |
Ef launatímabil er annað en að ofan greinir skal ákvarða persónuafslátt þannig:
339.846 / 365 x dagafjöldi launatímabils
Hér er að finna reiknivél en skrá þarf launafjárhæð, iðgjald í lífeyrissjóð og hlutfall persónuafsláttar sem það skattkort sýnir sem nýtt er hjá launagreiðanda.
Sjómannaafsláttur
Sjómannaafsláttur á árinu 2005 er kr. 768 á dag.
Frádráttarbært iðgjald í lífeyrissjóð
Lífeyrisiðgjald sem halda má utan staðgreiðslu er 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Heimilt er að auki að færa til frádráttar allt að 4% vegna iðgjalda samkvæmt samningi um viðbótartryggingavernd, enda séu iðgjöld greidd reglulega til aðila sem falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Tryggingagjald
Tryggingagjald er óbreytt frá fyrra ári og er 5,73% og er þá meðtalið markaðsgjald og gjald í ábyrgðarsjóð launa. Sama gjaldstig er fyrir allar atvinnugreinar.
Hjá útgerðum fiskiskipa vegna launa sjómanna bætast við 0,65% vegna slysatryggingar og er gjald þeirra alls 6,38%.
Orðsendingar
Orðsendingar um skatthlutfall og skattmat í staðgreiðslu eru gefnar út í byrjun janúar en þar koma fram ítarlegar upplýsingar um þessi atriði. Grunnupplýsingar um staðgreiðslu er að finna í orðsendingu nr. 1 á hverju ári.