Tollskrárlyklar með gildistöku 1. september 2026
Breytingar á tollskrá, viðmiðunartöflu úrvinnslugjalda og fleira
1. Uppfærsla á viðmiðunartöflu vegna þyngdar sölu- og flutningsumbúða
Um er að ræða leiðréttingar til samræmis við viðauka XVIII við lög um úrvinnslugjald nr. 162/2002 með síðari breytingum.
2. Skatthlutfall virðisaukaskatts hækkar úr 11% í 24% á eldsneyti í tollskrárnúmerum 2710.1221, 2710.1229, 2710.1930, 2710.2021 og 3826.0000 í samræmi við: 1147/157 lög í heild: virðisaukaskattur og samkeppnislög | Þingtíðindi | Alþingi
3. Gjöld á nokkrum tollskrárnúmerum lagfærð til samræmis við lög
4. Gjöld breytast á 2 tollskrárnúmerum í samræmi við EE viðauka búvörulaga
EE. Þrátt fyrir 65. gr. A skulu eftirtaldar vörur
sem falla undir viðauka IVA, IVB og V við tollalög bera toll skv. 3. mgr. 12. gr. tollalaga,
nr. 88/2005, á þeim tímabilum sem kveðið er á um í eftirfarandi upptalningu
árin 2022, 2023, 2024, 2025 og 2026
1. Vörur
með tollskrárnúmerinu 0709.4000 frá 1. janúar til 31. desember.
2. Vörur með tollskrárnúmerunum 0704.1010,
0704.1021 og 0704.1029 frá 1. janúar til 15. ágúst og 1. október til 31.
desember.
3. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9003 frá 1.
janúar til 15. ágúst og 15. nóvember til 31. desember.
4. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9001 frá 1.
janúar til 15. september og 15. desember til 31. desember.
5. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9002 frá 1.
janúar til 31. ágúst og 15. desember til 31. desember.
6. Vörur með tollskrárnúmerinu 0706.1000 frá 1.
apríl til 31. ágúst.
7. Vörur með tollskrárnúmerinu 0701.9009 frá 1.
júní til 30. júní.
Skrár með tollskrárlyklum eru tiltækar á https://www.skatturinn.is/tollskrarlyklar
Viðmiðunartöfluna á EXCEL og JSON formi er jafnframt hægt að sækja neðst á tollskrárlykla síðunni undir úrvinnslugjöld .
