Breytt viðmiðunartafla vegna áætlaðrar þyngdar á sölu- og flutningsumbúðum og magntollar á mjólkurvörum
1. Viðmiðunartafla vegna þyngdar sölu- og flutningsumbúða breytist 1. mars 2026
Viðmiðunartafla vegna áætlaðrar þyngdar á sölu- og flutningsumbúðum, sbr. viðauka XVIII við lög um úrvinnslugjald nr. 162/2002 með síðari breytingum:
Gildir frá 01.03.2026:
Json útgáfa gildisdagsetning er 01.03.2026
Excel útgáfa gildisdagsetning er 01.03.2026 <- skjalið var gallað en hefur verið uppfært.
Nánari upplýsingar: Breytingar á úrvinnslugjaldi á umbúðum 1. mars 2026 - leiðbeiningar til innflytjenda - Úrvinnslusjóður
Líklegustu söluumbúðir:
Excel skjal frá Úrvinnslusjóði með upplýsingum um líklegustu söluumbúðir eftir tollskrárnúmeri gildisdagsetning er: 01.03.2026 - 31.12.2027
Í lögum nr. 107/2025 kemur m.a. fram að innflytjanda sé heimilt fram til 1. janúar 2028 að ákvarða flokkun til álagningarstofns út frá líklegustu tegund söluumbúða í viðkomandi tollskrárnúmeri samkvæmt þessari töflu geti hann ekki tilgreint meginsöluumbúðirnar.
2. Magntollar mjólk, rjómi og ostar
A-tollur (magntollur kr./kg.) í tollskrárnúmerunum 0402.1010–0402.9900 (Mjólk, rjómi) og 0406.2000–0406.9000 (Ostar) breytist, sbr. ákvæði 4. mgr. 5. gr. tollalaga nr. 88/2005.
Gefnir hafa verið út nýir tollskrárlyklar vegna innflutnings.
Hægt er að sækja tollskrárlykla skrár og skjöl vegna Úrvinnslugjalda á síðunni: https://www.skatturinn.is/tollskrarlyklar
