Innleiðing nýrrar tegundar tollskýrslu á Íslandi – staða innleiðingar
Til stóð að hætta móttöku eldri innflutningsskýrslu (E1) með
EDI samskiptum þann 1. október 2021 og taka eingöngu við SAD skýrslum (E2) frá
sama tíma.
Uppfærslu og innleiðingu á kerfum innflytjenda er ekki lokið og mun því verða tekið við báðum tegundum af skýrslum lengur en til stóð. Tilkynnt verður um nýja dagsetningu fljótlega.
- Nýtt tollakerfi skattsins getur nú þegar tekið á móti og afgreitt flestar tegundir af tollskýrslum á SAD formi.
- Framleiðendur og seljendur hugbúnaðar sem sendir tollskýrslur rafrænt til skattsins með EDI skeytum munu uppfæra hugbúnað sem þeir þjónusta og selja í samráði við viðskiptavini sína.
- Í þeim fáu tilfellum sem tollskýrslu er skilað á pappír skal skila þeim á SAD formi (E2). Leiðréttingum á eldri E1 skýrslum skal þó skila á pappír eins og áður og á E1 eyðublaði.
- Notendur veftollafgreiðslukerfis Skattsins senda nú þegar SAD skýrslur og þurfa því ekkert að gera.
Hægt er að sækja pdf útgáfu af eyðublöðunum á slóðinni: https://www.skatturinn.is/atvinnurekstur/tollamal/eydublod_tollgaeslustjora/
Nánari upplýsingar:
Á undanförnum árum hefur verið unnið að smíði og innleiðingu nýs tollakerfis. Kerfið er nú þegar í rekstri en innleiðing þess er gerð í áföngum. Hlutar eldra tollakerfis verða reknir samhliða þar til innleiðingu þeirra í nýtt kerfi verður að fullu lokið.
Nýja skýrslan er sama form tollskýrslu og notað er á EES svæðinu og víðar og nefnist SAD eða Single Administrative Document.
- Árið 2019 var nýtt veftollafgreiðslukerfi fyrir smærri innflytjendur opnað en allar innflutnings tollskýrslur úr því eru á þessu nýja SAD formi.
- Nýtt tollalínukerfi sem veitir inn- og útflytjendum aðgang að gögnum sínum í tollkerfum Skattsins var jafnframt gangsett á árinu 2019.
- Árið 2020 var í gangi tilraunaverkefni með einu hugbúnaðarhúsi og einum tollmiðlara sem sendir nú allar innflutningsskýrslur á SAD formi með EDI samskiptum. Síðan hafa bæst við fleiri tollmiðlarar.
- Á árinu 2021 var tekið við fyrstu SAD skýrslunni beint úr viðskiptakerfi innflytjanda og sendir sá aðili nú allar skýrslur á því formi. Síðan hafa bæst við fleiri innflytjendur.
- Flest hugbúnaðarhús hafa lokið eða eru langt komin í uppfærslu á sínum kerfum.
- Stefnt er að því að innleiðingu SAD skýrslu með EDI samskiptum ljúki á þessu ári. Fyrst innflutningur og síðan útflutningur.
Uppfærð kerfi hafa ýmsa kosti m.a.:
- Leiðrétting skýrslu (Afgreiðsla 2) verður rafræn.
- Bráðabirgðaafgreiðslur verða rafrænar.
- Hægt er að senda fylgiskjöl rafrænt. Skjölin vistast sem viðhengi viðkomandi tollskýrslu.