Tilkynningar til hugbúnaðarhúsa


Tilkynningar til hugbúnaðarhúsa

Tilkynning til hugbúnaðarhúsa vegna breytinga sem taka gildi 1. maí 2009

Tekur gildi 1. maí 2009, en einnig afturvirkar breytingar frá 1. janúar 2009

7.4.2009

Skv. breytingu á tollalögum, http://www.althingi.is/altext/136/s/0757.html, hafa tekið gildi breytingar á reglum um hvernig aðflutningsgjöld eru skuldfærð við tollafgreiðslu; breytingar á gjalddögum. Þessar breytingar eru tímabundnar ráðstafanir; gilda fyrir árið 2009, þ.e. um aðflutningsgjöld, sem skuldfærð hafa verið og verða við tollafgreiðslu innfluttra vara á árinu. Gera þarf breytingar á hugbúnaði sem notaður er við EDI/SMT-tollafgreiðslu innfluttra vara hjá innflytjendum og tollmiðlurum. Lagt er til að breytingarnar verði þannig útfærðar að gert sé ráð fyrir að fyrra fyrirkomulag um skuldfærslu aðflutningsgjalda geti tekið aftur gildi. Breytingunum á skuldfærslu gjalda er er lýst hér að neðan og áhrif þeirra á EDI/SMT-tollafgreiðsluna. Breytingarnar gilda um neðangreind tilvik. Önnur tilvik skuldfærslu gjalda eru óbreytt.

Þegar EDI/SMT-aðflutningsskýrsla fær tollafgreiðslu hjá Tollstjóra, er sent EDI-skeyti til innflytjanda eða e.a. tollmiðlara, nefnt skuldfærslutilkynning, sem lesið er inn í hugbúnað hans. Þetta skeyti heitir CUSTAR. Í skeytinu eru m.a. upplýsingar um álögð og skuldfærð gjöld, sundurliðuð niður á hvert tollskrárnúmer/línu í skýrslunni. Fyrir hvert gjald á tollskrárnúmeri eru upplýsingar um hvernig gjald er skuldfært; skuldfærslukódi, S2, S4 o.fl. kódar. Í hugbúnaði innflytjanda/tollmiðlara eru síðan töflur sem túlka þessa kóda miðað við tollafgreiðsludag í CUSTAR skeytinu. Hver skuldfærslukódi segir til um uppgjörstímabil og eindaga gjalda sem skuldfærð eru á uppgjörstímabili skv. reglu kódans. Þetta getur síðan haft áhrif á birtingu upplýsinga á skjá og útprentunum í hugbúnaði.

Breytingarnar varða þessa kóda, sem hafa verið í gildi:

S2 kódi, almenna skuldfærslureglan:

Uppgjörstímabil er tveir mánuðir, janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv.

Eindagi gjalds sem skuldfært er skv. þessari reglu er 15. næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

Dæmi: Eindagi jan-feb 2009 tímabils er 15. mars 2009

S4 kódi, skuldfærsla vörugjalds aðila, sem skráðir eru hjá skattstjóra sem vörugjaldsskyldir (tiltölulega fá fyrirtæki nota þessa skuldfærslureglu)

Uppgjörstímabil eru tveir mánuðir, janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv.

Eindagi vörugjalds er þá 28. annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

Dæmi: Eindagi jan-feb 2009 tímabils er 28. apríl 2009

Frá og með 1. maí 2009 verða neðangreindir skuldfærslu kódar í CUSTAR skeytum í stað S2 og S4 kóda:

S8 (kemur í stað S2) kódi, almenna skuldfærslureglan:

Uppgjörstímabil er tveir mánuðir, janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv.

Eindagar gjalds sem skuldfært er skv. þessari reglu eru þrír; 1/3 upphæðar gjalds gjaldfellur á hverjum eindaga:

Fyrsti eindagi er 15. næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils

Annar eindagi er 15. annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils

Þriðji eindagi er 5. þriðja mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

Dæmi: Eindagar maí-júní 2009 tímabils eru: 15. júlí 2009, 15. ágúst 2009 og 5. september 2009

S9 (kemur í stað S4) kódi, skuldfærsla vörugjalds aðila á vörugjaldi, sem skráðir eru hjá skattstjóra (tiltölulega fá fyrirtæki nota þessa skuldfærslureglu)

Uppgjörstímabil eru tveir mánuðir, janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv.

Eindagar vörugjalds sem skuldfært er skv. þessari reglu eru tveir; 1/2 upphæð gjalds gjaldfellur á hverjum eindaga:

Fyrsti eindagi er 28. annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

Annar eindagi er 28. þriðja mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

Dæmi: Eindagar maí-júní 2009 tímabils eru 28. ágúst 2009 og 28. september 2009

Varðandi það þegar skipta þarf upphæðum niður á þrjá eindaga; afgangur

Notuð er eftirfarandi regla. Beita skal þessari reglu á samtals gjöld með sömu skuldfærslureglu í skýrslu, en ekki á hverja línu tollskrárnúmers fyrir sig í skýrslu. Ef ekki er unnt að skipta jafnt niður á eindaganna tvo/þrjá fer upphæð/afgangur á fyrsta eindagann. Upphæð gjalda á eindögum eftir fyrsta eindaga er því alltaf sú sama.

2 kr. er skipt niður þannig: 2 kr. á fyrsta eindaga, 0 kr. á annan og þriðja eindaga

4 kr. er skipt niður þannig: 2 kr. á fyrsta eindaga, 1 kr. á annan og þriðja eindaga

100 kr. er skipt niður þannig: 34 kr. á fyrsta eindaga, 33 kr. á annan og þriðja eindaga

Alltaf þarf að passa upp á að samtals skuldfærð gjöld á öllum línum/tollskrárnúmerum í CUSTAR skeyti stemmi við samtalsupphæðina sem kemur í CUSTAR skeytinu.

Afturvirkni vegna 1. janúar til 30. apríl 2009

Lagabreytingin gildir einnig um eindaga aðflutningsgjalda sem skuldfærð hafa verið/verða á tímabilinu 1. janúar 2009 til 30. apríl 2009. Á þessu tímabili hafa innflytjendur og tollmiðlarar í EDI/SMT-tollafgreiðslu fengið S2 og S4 kóda í CUSTAR skeytum. Engu að síður eru eindagar vegna gjalda sem skuldfærð voru á framangreindu tímabili skv. S2 og S4 kódum, þeir eindagar sem greint er frá hér að ofan á S8 og S9 kódum. Tollreikningar á pappír sem innflytjendur/tollmiðlarar hafa fengið hjá gjaldkerum Tollstjóra eða af vef VEF-tollafgreiðslu hafa ekki verið réttir hvað varðar eindaganna, en það breytist frá og með 1. maí 2009.

Nánari upplýsingar fást hjá TTU-deild, tölvukerfi tollafgreiðslu og upplýsingavinnsla, hjá Tollstjóra:

ttu@tollur.is eða símanúmer TTU þjónustvaktar: 560 0505

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum