Tilkynningar til hugbúnaðarhúsa

Tollskrárlyklar með gildistöku 1. maí 2026 og breytt tollframkvæmd vegna úrvinnslugjalda MSA/MSR

30.4.2026


1. Skatthlutfall virðisaukaskatts lækkar tímabundið úr 24% í 11% á eldsneyti í tollskrárnúmerum 2710.1221, 2710.1229, 2710.1930, 2710.2021 og 3826.0000 í samræmi við: 1147/157 lög í heild: virðisaukaskattur og samkeppnislög | Þingtíðindi | Alþingi

2. Breytingar á skráningu MSR kóða á tollskýrslur (MSA er óbreytt)

a. Í samráði við úrvinnslusjóð hafa verið hafa verið gerðar á villumeðhöndlun í tollakerfi

b. Ekki er lengur tenging við viðmiðunartöflu þegar MSR er notað að öðru leiti en að tollskrárnúmer þarf að vera til í viðmiðunartöflunni.

c. Þegar MSR er notað gerir innflytjandi grein fyrir raunverulegum sölu- og flutningsumbúðum og þyngd þeirra og getur notað allar umbúðategundir sem í boði eru (sjá leiðbeiningar)

d. Ef kerfi innflytjenda takmarkar skráningu MSR við umbúðategundir sem skráðar eru í viðmiðunartöflu þarf að gera breytingar á kerfinu.

e. Eftirtaldar villur í tollakerfi eru ekki lengur virkar:
200317 MSR magntölukódi valinn. Tilgreina verður allar umbúðategundir, sem tollskrárnúmerið getur borið skv. valinni færslu í viðmiðunartöflu.

200319 MSR magntölukódi valinn en megin umbúðir ekki til staðar í viðmiðunartöflu.

Ný útgáfa af tollskrárlyklum hefur verið birt á vef skattsins.

https://www.skatturinn.is/tollskrarlyklar tollskrá útflutnings breytist ekki

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum