Tollskrárlyklar með gildistöku 1. október 2026
Tveir nýir fríverslunarsamningar og breytingar vegna EE viðauka búvörulaga
1. Tollar á þremur tollskrárnúmer breytast í samræmi við EE viðauka búvörulaga
EE. Þrátt fyrir 65. gr. A skulu eftirtaldar vörur sem falla undir viðauka IVA, IVB og V við tollalög bera toll skv. 3. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, á þeim tímabilum sem kveðið er á um í eftirfarandi upptalningu árin 2022, 2023, 2024, 2025 og 2026
1. Vörur með tollskrárnúmerinu 0709.4000 frá 1.
janúar til 31. desember.
2. Vörur með tollskrárnúmerunum 0704.1010,
0704.1021 og 0704.1029 frá 1. janúar til 15. ágúst og 1. október til 31. desember.
3. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9003 frá 1.
janúar til 15. ágúst og 15. nóvember til 31. desember.
4. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9001 frá 1.
janúar til 15. september og 15. desember til 31. desember.
5. Vörur með tollskrárnúmerinu 0704.9002 frá 1.
janúar til 31. ágúst og 15. desember til 31. desember.
6. Vörur með tollskrárnúmerinu 0706.1000 frá 1.
apríl til 31. ágúst.
7. Vörur með tollskrárnúmerinu 0701.9009 frá 1.
júní til 30. júní.
2. Tveir nýir tollar vegna fríverslunarsamninga hafa tekið gildi í tollakerfi YY og YZ.
- Fríverslunarsamningur EFTA og Mercosur tekur gildi milli Íslands og Brasilíu 1. október 2026.
Fríverslunarsamningurinn tekur til viðskipta milli EFTA-ríkjanna og Mercosur (Argentína, Brasilía, Paragvæ og Úrúgvæ) vegna vara sem upprunnar eru í samningsríkjunum og fluttar eru beint milli samningsaðila og gildir þá lögmæt upprunayfirlýsing á vörureikningi eða upprunavottorð.
Samningurinn gildir aðeins milli þeirra ríkja sem hafa fullgilt hann. Til að byrja með er það einungis Brasilía.
Ný tegund tolls YZ hefur verið stofnuð í tollakerfi vegna samningsins
Nánari upplýsingar um samninginn er að finna á vef EFTA
- Fríverslunarsamningur milli EFTA og Kósóvó sem Ísland er aðili að tók gildi 1. september 2026:
Fríverslunarsamningurinn tekur til viðskipta milli EFTA-ríkjanna og Kósóvó vegna vara sem upprunnar eru í samningsríkjunum og fluttar eru beint milli samningsaðila og gildir þá lögmæt EUR-upprunayfirlýsing á vörureikningi eða EUR-skírteini.
Ný tegund tolls YY hefur verið stofnuð í tollakerfi vegna samningsins
Nánari upplýsingar um samninginn er að finna á vef EFTA
Sjá: https://www.skatturinn.is/fagadilar/tollamal/hugbunadarhus/tollskrarlyklar/
