Tilkynningar til hugbúnaðarhúsa

Breytingar á tollskrá, aðflutningsgjöldum og fleira sem tekur gildi 1. janúar 2026

Breytingar á aðflutningsgjöldum o.fl., vegna tollafgreiðslu

22.12.2025

Varðar m.a. innflytjendur, útflytjendur, tollmiðlara og hugbúnaðarhús, sem selja eða þjónusta hugbúnað til tollskýrslugerðar.

Almennt gildir að breytingarnar taka til allra vara sem ótollafgreiddar eru 1. janúar 2026 nema annað sé tekið fram.
Athygli er vakin á að tollakerfi Skattsins verða lokuð frá kl 16:00 á gamlársdag 2025 til kl 12:00 þann 2. janúar 2026.

1. Áfengisgjöld, VX, VY og VZ

Áfengisgjöld verða:
VX Áfengisgjald – Öl o.fl.: 156,45 kr./cl. af vínanda umfr. 2,25%
VY Áfengisgjald – Vín: 142,50 kr./cl. af vínanda umfr. 2,25%
VZ Áfengisgjald – Annað áfengi: 192,85 kr./cl. af vínanda umfr. 0%
Heimild: 2. gr. laga nr. 99/2025 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.

2. Tóbaksgjöld, innflutningur til einkanota, T1 og T2

Tóbaksgjöld verða:
T1 Tóbaksgjald – vindlingar: 806,70 kr.á hvern pakka; 20 vindlingar
T2 Tóbaksgjald – annað tóbak: 44,75 kr./gramm
Heimild: 4. gr. laga nr. 99/2025 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.

Gjöld á nikótínpúða og vökva:

Lögin miða við grömm (g) en gjöldin í tollakerfi miða við kíló (kg). Við gerð innflutningsskýrslu skal skrá magn í kg með þremur aukastöfum.

T3 Gjald á nikótínpúða - styrkur á bilinu 1 til og með 8 mg/g: 8,30 kr./g.
T4 Gjald á nikótínpúða – styrkur á bilinu 8,1 til og með 12 mg/g: 12,45 kr./g.
T5 Gjald á nikótínpúða – styrkur á bilinu 12,1 til og með 16 mg/g: 15,55 kr./g.
T6 Gjald á nikótínpúða – styrkur á bilinu 16,1 til og með 20 mg/g: 20,75 kr./g.
T7 Gjald á vökva í einnota rafrettur og vökva til áfyllingar fyrir rafrettur þar sem styrkur nikótíns er 12 mg/ml eða lægra: 41,50 kr./ml.
T8 Gjald á vökva í einnota rafrettur og vökva til áfyllingar fyrir rafrettur þar sem styrkur nikótíns er 12,1 mg/ml eða hærra: 62,20 kr./ml.

Heimild: 5. gr. laga nr. 99/2025 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.

3. Úrvinnslugjöld, B* gjöld

a. Ný viðmiðunartafla vegna áætlaðrar þyngdar á sölu- og flutningsumbúðum, sbr. viðauka XVIII við lög um úrvinnslugjald nr. 162/2002 tekur ekki gildi um áramót.

Ný útgáfa sem gildir frá 01.03.2026 verður birt vef Skattsins á nýju ári.

Hægt verður að nálgast skrárnar neðarlega á tollskrárlykla síðu á vef skattsins undir úrvinnslugjöld sem json og excel skjal.

b. Breytingar eru skv. 31. – 36. gr. laga nr. 99/2025 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026, breytingum á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002 sjá þingskjal: https://www.althingi.is/altext/157/s/0429.html

Viðauki IV uppfærður, Taxti BL gjalds er 88 kr./kg

Viðauki VI uppfærður, Taxti BK gjalds er 300 kr./kg

Viðauki X uppfærður, við bætast eftirfarandi tollskrárnúmer með BH gjald 208 kr./kg:

2404.1211, 2404.1212, 2404.1221, 2404.1222

Viðauki XI uppfærður, BA Taxti er kr./tæki., mismunandi eftir tollskrárnúmeri BC Taxti er kr./kg., mismunandi eftir tollskrárnúmeri

Við viðaukann bætast eftirfarandi tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds:
1. 8507.2091 4 kr./kg.
2. 8507.2092 6 kr./kg.
3. 8507.8020 10 kr./kg.

Viðauki XV uppfærður, við bætist tollskrárnúmerið 2903.5100 með BM gjald 2,5 kr./kg

Viðauki XIX uppfærður, BU Taxti er kr./kg., mismunandi eftir tollskrárnúmeri.

Í stað „11 kr./kg“ undir tollskrárnúmerinu 8543.9009 kemur: 24 kr./kg BU gjald.
Við bætast fjögur ný tollskrárnúmer og samsvarandi fjárhæð úrvinnslugjalds:
1. 8543.9003 24 kr./kg.
2. 8544.4209 24 kr./kg.
3. 8711.6012 11 kr./kg.
4. 8711.6015 11 kr./kg.

4. Skilagjöld á einnota drykkjarvöruumbúðir

Gjöldin verða sem hér segir:

Umbúðir Kóði Skilagjald 2026 Umsýsluþóknun Samtals
Stál GB 20,73 7,00 27,73
Ál GC 20,73 0,60 21,33
Gler stærra en 500 ml GD 20,73 15,00 35,73
Gler minna en 500 ml GE 20,73 12,00 32,73
Plast litað GF 20,73 5,50 26,23
Plast ólitað GG 20,73 3,00 23,73
Plast ólitað endurunnið GH 20,73 2,50 23,23

Heimild: skv. 38. gr. laga nr. 99/2025 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026, Breyting á lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, nr. 52/1989

5. Kolefnisgjöld á eldsneyti, K* gjöld

Nefnd kolefnisgjöld verða þessi:
K2 Kolefnisgjald. Gas- og díselolía: 28,30 kr./lítra
K3 Kolefnisgjald. Bensín: 24,25 kr./lítra
K5 Kolefnisgjald. Brennsluolía: 33,10 kr./kg.
K6 Kolefnisgjald. Jarðolíugas og annað loftkennt kolvatnsefni: 28,45 kr./kg.
Heimild: 29-30 gr. laga um kílómetragjald á ökutæki: 147/157 stjórnarfrumvarp: kílómetragjald á ökutæki | Þingtíðindi | Alþingi

6. Vörugjald af bensíni, LB gjald

Gjaldið fellur brott:
Heimild: 29-30 gr. laga um kílómetragjald á ökutæki: 147/157 stjórnarfrumvarp: kílómetragjald á ökutæki | Þingtíðindi | Alþingi

7. Sérstakt vörugjald af eldsneyti, C1 og C2 gjöld

Gjöldin falla brott:
Heimild: 29-30 gr. laga um kílómetragjald á ökutæki: 147/157 stjórnarfrumvarp: kílómetragjald á ökutæki | Þingtíðindi | Alþingi

8. Olíugjald, C3 gjald

Gjaldið fellur brott:Heimild: 29-30 gr. laga um kílómetragjald á ökutæki: 147/157 stjórnarfrumvarp: kílómetragjald á ökutæki | Þingtíðindi | Alþingi

9. Breyting á tollskrá

Breyting er skv. óbirtri auglýsingu með gildistöku 1. janúar 2026 um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, m.s.br. (A-deild Stjórnartíðinda).

10. Reglugerðir um tollkvóta

Reglugerð nr. 1246/2025 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi.
Birt 21 nóvember 2025.
Gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2026.

Reglugerð nr. 1247/2025 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.
Birt 21. nóvember 2025.
Gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2026.

Reglugerð nr. 1248/2025 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.
Birt 21. nóvember 2025.
Gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2026.

Reglugerð nr. 1249/2025 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi.
Birt 21. nóvember 2025.
Gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2026.

11. Lög um kílómetragjald á ökutæki

Lögin taka gildi 1. janúar 2026

Haldið er utan um komur og brottfarir ökutækja sem eru flutt til landsins í gegnum vefinn:

https://vehicles.tollur.is/

Farmflytjendur senda bókunarupplýsingar til skattsins sjá upplýsingar í tilkynningu hér að neðan sem birt var í júní sl.

Innflytjendur fá SMS og tölvupóst með leiðbeiningum en geta jafnframt skráð sig inn á vefinn með bókunarupplýsingum sínum.

Innflytjendur allra ökutækja með erlend skráningarnúmer sem flutt eru tímabundið til landsins þurfa að:

1. Fylla út E9 yfirlýsingu

2. Greiða akstursgjald við eða fyrir komu

3. Skrá kílómetrastöðu við komu

4. Skrá kílómetrastöðu við brottför og gera upp kílómetragjald

Nánari upplýsingar:

Breytingar á tollafgreiðslu ökutækja á erlendum skráningarnúmerum 1. júlí 2025

Lög um kílómetragjald á ökutæki

12. Undanþágur

Eftirtaldar undanþágur falla úr gildi um áramót:

LÖT15, LÖT20, LÖT23, LÖT24, LÖT26, LÖT29, L8704, L293C

Textar breytast á undanþágum LÖT28 og LÖT34

Nýjar undanþágur LÖT35, LÖT36 og LÖT37

Sjá: https://www.skatturinn.is/atvinnurekstur/tollamal/skilmalar/undanthagur/

13. Vörugjöld af ökutækjum

Yfirlit yfir breytingar á N og M gjöldum

Gjald Var Mælieining Verður Mælieining
N1 0,34 % 0,34 %
Co2 frádr 69 grömm 15 grömm
Hámarks taxti 60 % 70 %
N2 0,28 % 0,34 %
Co2 frádr 85 grömm 30 grömm
Hámarks taxti 60 % 70 %
N3 0,28 % 0,34 %
Co2 frádr 85 grömm 30 grömm
Hámarks taxti 60 % 70 %
N4 65 % 70 %
Co2 frádr Ekki skráður grömm Ekki skráður grömm
Hámarks taxti Ekki skráður % 70 %
MY 5 % 10 %
MO 30 % 40 %
MZ 30 % 40 %
MU 13 % 20 %

Heimild: Lög um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026 nr. 99/2025, II kafli sjá: https://www.althingi.is/altext/157/s/0596.html Breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993.

14. Lokun á sjálfvirkri EDI/VEF-tollafgreiðslu

Vegna breytinga á gjöldum og tölvuvinnslu verður lokað fyrir sjálfvirka EDI/VEF-tollafgreiðslu hjá Skattinum frá kl. 16:00 31. desember 2025 til kl. 12:00 2. janúar 2026.

15. Tollskrárlyklar til nota í tollskýrslugerðarhugbúnaði

Tollskrárlyklar (bæði vegna innflutnings og útflutnings), sem taka gildi 1. janúar 2026, verða aðgengilegir á vef skattsins https://www.skatturinn.is/tollskrarlyklar.

Ábendingar

Útflutningur - Í útflutningsskýrslu skal nota tollskrárnúmer, skilmála þess og tollafgreiðslugengi sem í gildi er tollafgreiðsludag útflutningsskýrslunnar, en þó skal aldrei miða við nýrri dag en brottfarardag vörusendingar frá Íslandi, sem útflutningsskýrslan tekur til. Sama gildir þegar leiðrétta eða breyta þarf útflutningsskýrslum eftir tollafgreiðslu.

Innflutningur - Þegar leiðrétta eða breyta þarf aðflutningsskýrslum vegna þegar tollafgreiddra innfluttra vörusendinga, t.d. vegna of- eða vangreiddra gjalda, þá bera þær leiðréttingar aðflutningsgjöld skv. tollskrá, lögum og reglugerðum sem í gildi voru tollafgreiðsludaginn eða e.a. bráðabirgðatollafgreiðsludaginn og nota skal tollafgreiðslugengi þess dags. Tollskrárnúmer, skilmálar þeirra, gjöld og tollafgreiðslugengi innfluttra hraðsendinga miðast við þann dag þegar tollgæsla veitti leyfi til að afhenda sendinguna innanlands (langoftast komudagur sendingar til landsins).

Á vef Skattsins má skoða annars vegar tegundir tolla og hins vegar önnur aðflutningsgjöld og taxta þeirra fyrir og eftir 1. janúar með því að velja viðeigandi viðmiðunardagsetningu. Ennfremur fást upplýsingar um tollskrárnúmer, tolla og gjöld á þeim o.fl. í tollskránni á vef Skattsins.

Komi í ljós mismunur á upplýsingum í þessari tilkynningu og lagatexta gilda lögin.

Tilkynningin var uppfærð 29.12 2025; bætt við undanþágum sem falla úr gildi og töflu sem sýnir breytingar á vörugjöldum ökutækja (N og M gjöld).

Nánari upplýsingar
Um tæknilega framkvæmd: Tæknisvið Skattsins - tollakerfi
ut[hja]skatturinn.is
Um tollamál og tollafgreiðslu: Þjónustuver tollgæslusviðs Skattsins
upplysingar[hja]skatturinn.is, sími 442 1092

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum