Kílómetragjald: Síðasti frestur til að skrá kílómetrastöðu 1. apríl

31.3.2026

Ef þú átt eftir að skrá kílómetrastöðuna á þínu ökutæki á þessu ári þá þarf að skrá stöðuna til að forðast vanskráningargjald. Þau sem hafa þegar skráð á þessu ári eða eiga skráningu á árinu 2025 þurfa ekkert að gera.

Skráning kílómetrastöðu

Samkvæmt lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025 þarf að skrá stöðu á akstursmæli ökutækja, óháð orkugjafa einu sinni á ári og greiða kílómetragjald fyrir hvern ekinn kílómetra. 

Þar kemur einnig fram að ef skráning kílómetrastöðu liggi ekki fyrir 1. apríl 2026:

  • þurfi að fara með ökutæki í álestur hjá faggiltri skoðunarstofu ökutækja. 
  • Er lagt á 20.000 kr. vanskráningargjald.

Vanskráningargjald fellt niður ef þú skráir fyrir 1. maí

Mikilvægt er að skrá aksturstöðu þeirra ökutækja í síðasta lagi 1. apríl 2026 sem ekki hafa skráð aksturstöðu á árinu 2025 og til dagsins í dag, svo komast megi hjá álagningu vanskráningargjalds. 

Eftir 1. apríl 2026 þarf að láta skrá akstursstöðu hjá faggiltri skoðunarstofu. Sé það gert fyrir 1. maí 2026 fellur gjaldið niður.

Skráning á stöðu akstursmælis fer fram á mínum síðum á Ísland.is eða hjá faggildri skoðunarstofu. Jafnframt er hægt að nota snjallforritin Ísland.is eða N1 til að skrá akstursstöðu.

Nánari upplýsingar um kílómetragjald

Fyrirspurnir um kílómetragjald má senda á km@skatturinn.is

Spurt og svarað

Ég skráði í janúar þarf ég að skrá aftur?

Nei, þú þarft ekki að skrá aftur fyrr en á næsta ári. En mátt samt skrá aftur núna ef þú vilt.

Bíllinn minn fór í skoðun í nóvember í fyrra, þarf ég að skrá?

Nei, við getum notað kílómetrastöðuna sem var skráð þá. En þú mátt skrá aftur núna ef þú vilt

Ég veit ekki hvort ég er búinn að skrá, get ég séð það?

Já, á Mínum síðum Ísland.is getur þú skoðað skráningarsögu kílómetrastöðu á þínu ökutæki


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum