Afgreiðslur RSK á höfuðborgarsvæðinu sameinaðar
Frá og með 1. janúar sl. hafa afgreiðslur ríkisskattstjóra á höfuðborgarsvæðinu verið sameinaðar í eina.
Öll almenn þjónusta sem og móttaka viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu verður því framvegis að Laugavegi 166 í Reykjavík.
Auk þess er boðið upp á sjálfsafgreiðslu á þjónustuvef ríkisskattstjóra, netspjall við þjónustufulltrúa og þjónustuver í síma 442-1000