Álagning 2017 - lækkun launaafdráttar
Álagningarseðlar vegna álagningar þing- og sveitarsjóðsgjalda eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra. Inneignir (vaxta- og barnabætur, ofgreidd staðgreiðsla) eru greiddar inn á bankareikninga 30. júní 2017.
Hér að neðan eru upplýsingar um hvernig hægt er að létta mánaðarlega greiðslubyrði með gerð greiðsluáætlunar hjá innheimtumönnum ríkissjóðs.
Lækkun launaafdráttar
Við álagningu þing- og sveitarsjóðsgjalda er launagreiðendum send krafa um að þeir haldi eftir hluta af launum starfsmanna sinna sem skulda skatta og skili inn til innheimtumanns ríkissjóðs. Ef launþegi sem skuldar skatta vill lækka þá fjárhæð sem haldið er eftir, hefur hann möguleika á að gera greiðsluáætlun hjá Tollstjóra (eða þeim innheimtumanni ríkissjóðs sem innheimtir kröfuna) til að lækka launaafdráttinn. Skatturinn er þá greiddur upp á lengri tíma sem hefur í för með sér aukinn vaxtakostnað en lægri mánaðarlega greiðslubyrði. Launaafdrætti er eingöngu beitt vegna þing- og sveitarsjóðsgjalda.Launþegi þarf að fylgjast með því að tekið sé af launum í samræmi við álagningarseðil ríkisskattstjóra. Ef afdráttur af launum er ekki greiddur til innheimtumanns er sá möguleiki fyrir hendi að koma með launaseðilinn til Tollstjóra/viðeigandi innheimtumanns og sýna fram á greiðslu. Ef ekki er tekið af launum og enginn greiðsluseðill sendur er gjaldendum bent á að hafa samband við Tollstjóra (eða viðeigandi innheimtumann) og fá að millifæra greiðslu. Einnig er hægt að greiða hjá gjaldkera á 5. hæð Tollhússins, Tryggvagötu 19, og sýslumönnum utan Reykjavíkur.
Nánar um lækkun launaafdráttar.
Greiðsluerfiðleikar
Ef einstaklingur er ekki í vinnu eða starfar sjálfstætt fær hann sendan greiðsluseðil vegna vangoldinna skatta. Eigi hann í erfiðleikum með að greiða er hægt að láta gera greiðsluáætlun hjá innheimtumanni ríkissjóðs. Þá er greiðslunum dreift yfir lengra tímabil sem hefur í för með sér aukinn vaxtakostnað en léttari mánaðarlega greiðslubyrði.Áætlanir ríkisskattstjóra
Innheimtuaðgerðir eru þær sömu hvort sem skattur er lagður á samkvæmt framtali eða áætlaður. Ef um áætlun ríkisskattstjóra er að ræða er mikilvægt að skila inn framtölum til að fá álagningu skatta leiðrétta. Hafi það verið gert er hægt að miða innheimtu skatta við bráðabirgðaútreikning, en leggja þarf fram staðfestingu á því að framtali hafi verið skilað. Staðfesting á skilum á framtali getur verið móttökukvittun og bráðabirgðaútreikningur á álagningunni sem hægt er að prenta út þegar framtali er skilað í gegnum þjónustusíðu á vef ríkisskattstjóra. Einnig er hægt að fá staðfest afrit af framtalinu á skattstofunni eða með því að prenta það út af þjónustusíðu ríkisskattstjóra.Þar sem álagning skatta er aðskilin frá innheimtu þeirra, hafa Tollstjóri og aðrir innheimtumenn ríkissjóðs ekki upplýsingar um skattkærur og fyrirhugaðar leiðréttingar. Það er því áríðandi fyrir skattgreiðanda að láta Tollstjóra/viðeigandi innheimtumann ríkissjóð vita af slíku tilviki og ganga frá greiðsluáætlun. Geri hann það ekki hefjast innheimtuaðgerðir sem hafa í för með sér óafturkræfan kostnað og óþægindi.
Í öllum tilvikum borgar það sig að hafa samband við Tollstjóra/viðeigandi innheimtumann sem fyrst ef upp koma greiðsluerfiðleikar. Með álagningarseðlinum er sendur innheimtuseðill og á honum kemur fram hvaða innheimtumaður ríkissjóðs er með álagninguna til innheimtu.
Skuldajöfnuður
Innheimtumanni ríkissjóðs ber að skuldajafna inneignum við gjaldfallnar kröfur gjaldanda. Vakin er athygli á að skuldajöfnunarheimild á milli samskattaðra maka varðandi þing- og sveitarsjóðsgjöld. Barnabótum er ekki skuldajafnað nema upp í ofgreiddar barnabætur.Nánar um skuldajöfnuð.