Fréttir og tilkynningar


Álagning einstaklinga 2022 - lækkun launaafdráttar

23.5.2022

Álagning einstaklinga 2022, vegna tekna 2021, fer fram 31. maí nk. Við álagningu er launagreiðendum send krafa um að halda eftir hluta af launum starfsmanna sinna sem skulda skatta og skila inn til innheimtumanns ríkissjóðs.

Ef launþegi sem skuldar skatta vill lækka þá fjárhæð sem haldið er eftir hefur hann möguleika á að gera greiðsluáætlun hjá Skattinum (eða þeim innheimtumanni ríkissjóðs sem sér um innheimtu kröfunnar) til að lækka launaafdráttinn. Skatturinn er þá greiddur upp á lengri tíma sem hefur í för með sér aukinn vaxtakostnað en lægri mánaðarlega greiðslubyrði. Launaafdrætti er eingöngu beitt vegna þing- og sveitarsjóðsgjalda.

Umsókn um greiðsluáætlun

Mögulegt er að gera greiðsluáætlun um skatta og gjöld á Ísland.is.

Ákveðin skilyrði þurfa að vera uppfyllt svo heimilt sé að gera greiðsluáætlun í sjálfsafgreiðslu á Ísland.is, m.a.:

  • Gjaldendur verða að hafa staðið rétt skil á skattframtölum og skýrslum
  • Upphæð gjaldfallinnar skuldar sé ekki yfir 2 milljónum króna
  • Innheimtuaðgerðir séu ekki hafnar

Bent er á að áfram er hægt að samband við innheimtumenn ríkissjóðs og gera greiðsluáætlun hjá þeim eða fá aðstoð við sjálfsafgreiðslu á Ísland.is. 

Umsókn um greiðsluáætlun

Innheimtumenn

Skatturinn er innheimtumaður ríkissjóðs í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og í Kjósarhreppi. Annars staðar á landinu sjá sýslumenn um innheimtu opinberra gjalda.

Upplýsingar um innheimtumenn

Almennar fyrirspurnir um innheimtu opinberra gjalda má senda á netfangið skatturinn@skatturinn.is.

Launaafdráttur

Launþegi þarf að fylgjast með því að tekið sé af launum í samræmi við álagningarseðil. Ef afdráttur af launum er ekki greiddur til innheimtumanns er mögulegt að koma með launaseðilinn til Skattsins (eða þess innheimtumanns sem sér um innheimtu kröfunnar) og sýna fram á að tekið hafi verið af launum hans. 

Ef ekki er tekið af launum og enginn greiðsluseðill sendur er gjaldendum bent á að hafa samband við Skattinn í síma 442-1000, eða viðeigandi innheimtumann, og fá að millifæra greiðslu. 

Einnig er hægt að greiða hjá gjaldkera á 5. hæð Tollhússins, Tryggvagötu 19, og sýslumönnum utan höfuðborgarsvæðisins.

Sjálfstætt starfandi

Þau sem eru ekki í vinnu eða starfa sjálfstætt fá sendan greiðsluseðil vegna vangoldinna skatta. Eigi þau í erfiðleikum með að greiða er hægt að láta gera greiðsluáætlun hjá innheimtumanni ríkissjóðs. Þá er greiðslunum dreift yfir lengra tímabil sem hefur í för með sér aukinn vaxtakostnað en léttari mánaðarlega greiðslubyrði.

Áætlanir

Innheimtuaðgerðir eru þær sömu hvort sem skattur er lagður á samkvæmt framtali eða áætlaður. Ef um áætlun er að ræða er mikilvægt að skila inn framtölum til að fá álagningu skatta leiðrétta. Hafi það verið gert er hægt að miða innheimtu skatta við bráðabirgðaútreikning. Áríðandi er fyrir skattgreiðanda að ganga frá greiðsluáætlun í slíkum tilvikum því annars getur krafan farið í innheimtuferli sem hefur í för með sér kostnað og óþægindi.

Í öllum tilvikum borgar það sig að hafa samband við Skattinn eða viðeigandi innheimtumann sem fyrst ef upp koma greiðsluerfiðleikar. 

Skuldajöfnuður

Innheimtumanni ríkissjóðs ber að skuldajafna inneignum við gjaldfallnar kröfur gjaldanda. Vakin er athygli á heimild til skuldajöfnunar inneigna á milli hjóna og samskattaðs sambúðarfólks vegna þing- og sveitarsjóðsgjalda. Barnabótum er ekki skuldajafnað nema upp í ofgreiddar barnabætur og fyrirframgreiddar barnabætur.

Nánar um skuldajöfnuð

Þjónustufulltrúar

Hægt er að ganga frá flestum greiðsluáætlunum um lækkun launaafdráttar með umsókn á Ísland.is

Frekari ráðgjöf eða leiðbeiningar er má fá með því að senda tölvupóst á netfangið vanskil@skatturinn.is, í síma 442-1000 eða með því að hitta þjónustufulltrúa á skrifstofu okkar á 5. hæð í Tollhúsinu, Tryggvagötu 19 í Reykjavík.

Yfirleitt eru margir sem leita til þjónustufulltrúa í kjölfar álagningar opinberra gjalda og því getur biðtími eftir viðtali lengst. Það getur því sparað tíma og fyrirhöfn að ganga frá greiðsluáætlun á Ísland.is.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum