Fréttir og tilkynningar


Álagning opinberra gjalda á lögaðila 2020

30.10.2020

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda 2020 á lögaðila og liggja niðurstöður álagningarinnar nú fyrir.

Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu við lok álagningar 2020 var 64.219 en þar af voru 46.652 skattskyld félög og sameignarfélög og 17.567 lögaðilar sem undanþegnir eru tekjuskatti. Fyrir lok álagningar höfðu 40.019 framtöl borist eða 85,78% framtala. Í fyrra höfðu 81,77% framtala borist fyrir lok álagningar. Gjöld 6.549 lögaðila voru áætluð sem er 14,04% lögaðila á skattgrunnskrá. Fyrir ári voru gjöld 18,04% lögaðila á skattgrunnskrá áætluð, en hafa ber í huga að álagning lögaðila fer nú fram mánuði síðar en í fyrra.

Alls voru 189.742.412.703 kr. lagðar á lögaðila í opinber gjöld sem var 4.011.984.458 kr. eða 2,07% lægri fjárhæð en lagt var á í fyrra. Þá má geta þess að 4.361.377.721 kr. voru endurgreiddar nýsköpunarfyrirtækjum vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar sem var 1.392.214.764 kr. meira en var endurgreitt í fyrra. Auk þess gekk 824.206.441 kr. skattfrádráttur til nýsköpunarfyrirtækja upp í álagðan tekjuskatt þeirra (innifalið í fjárhæð tekjuskatts hér að neðan).

Skipting opinberra gjalda lögaðila 2020 er þannig:

Gjald Fjárhæð Breyting
Tryggingagjald 102.208.259.026 0,1%
Tekjuskattur 68.201.044.853 -5,8%
Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki 10.922.650.635 2,8%
Fjársýsluskattur 3.247.914.647 -0,9%
Sérstakur fjársýsluskattur 2.390.126.150 -14,0%
Fjármagnstekjuskattur 1.955.982.604 10,2%
Útvarpsgjald 768.930.300 4,7%
Jöfnunargjald alþjónustu 47.504.488 2,4%
Samtals 189.742.412.703 -2,1%
     
Endurgreiðsla vegna rannsóknarkostnaðar 4.361.377.721 46,9%

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum