Fréttir og tilkynningar


Álagning opinberra gjalda á lögaðila 2023

31.10.2023

Skatturinn hefur lokið álagningu opinberra gjalda 2023 á lögaðila og liggja niðurstöður álagningarinnar nú fyrir.

Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu við lok álagningar 2023 var 69.549 en þar af voru 52.059 skattskyld félög og sameignarfélög og 17.490 lögaðilar sem undanþegnir eru tekjuskatti. Fyrir lok álagningar höfðu 45.319 framtöl borist eða 87,05% framtala. Í fyrra höfðu 86,42% framtala borist fyrir lok álagningar. Gjöld 6.829 lögaðila voru áætluð sem er 13,12% lögaðila á skattgrunnskrá. Fyrir ári voru gjöld 14,31% lögaðila á skattgrunnskrá áætluð.

Alls voru 282.921.560.041 kr. lagðar á lögaðila í opinber gjöld sem er 64.627.416.061 kr. eða 29,61% hærri fjárhæð en lagt var á í fyrra. Þá má geta þess að 12.637.553.692 kr. voru endurgreiddar nýsköpunarfyrirtækjum vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar sem var 1.748.670.871 kr. meira en var endurgreitt í fyrra. Auk þess gekk 1.216.267.988 kr. skattfrádráttur til nýsköpunarfyrirtækja upp í álagðan tekjuskatt þeirra (innifalið í fjárhæð tekjuskatts hér að neðan).

Skipting opinberra gjalda lögaðila 2023 er þannig:

Gjald Fjárhæð Breyting
Tryggingagjald 121.992.257.994 19,26%
Tekjuskattur 141.856.876.907 41,43%
Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki 5.892.922.560 10,44%
Fjársýsluskattur 3.416.956.620 1,50%
Sérstakur fjársýsluskattur 6.106.016.690 52,10%
Fjármagnstekjuskattur 2.635.093.627 28,37%
Útvarpsgjald 983.598.600 11,73%
Jöfnunargjald alþjónustu * 37.837.043 -27,00%
Samtals 282.921.560.041 29,61%
Endurgreiðsla vegna rannsóknarkostnaðar 12.637.553.692 16,06%

* Jöfnunargjald alþjónustu er lagt á í síðasta sinn við álagninguna nú og er stofninn eingöngu velta af fjarskiptastarfsemi frá 1.1.2022 til 31.8.2022.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum