Fréttir og tilkynningar


Álagning opinberra gjalda á lögaðila 2024

31.10.2024

Skatturinn hefur lokið álagningu opinberra gjalda 2024 á lögaðila og liggja niðurstöður álagningarinnar nú fyrir.

Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu við lok álagningar 2024 var 72.266 en þar af voru 54.532 skattskyld félög og sameignarfélög og 17.734 lögaðilar sem undanþegnir eru tekjuskatti. 

Fyrir lok álagningar höfðu 47.138 framtöl borist eða 86,44% framtala. Í fyrra höfðu 87,05% framtala borist fyrir lok álagningar. Gjöld 7.422 lögaðila voru áætluð sem er 13,61% lögaðila á skattgrunnskrá. Fyrir ári voru gjöld 13,12% lögaðila á skattgrunnskrá áætluð.

Alls voru 308.221.550.971 kr. lagðar á lögaðila í opinber gjöld sem er 25.299.990.930 kr. eða 8,94% hærri fjárhæð en lagt var á í fyrra. Þá má geta þess að 15.289.944.630 kr. voru endurgreiddar nýsköpunarfyrirtækjum vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar sem var 2.652.390.938 kr. meira en var endurgreitt í fyrra. Auk þess gekk 689.904.176 kr. skattfrádráttur til nýsköpunarfyrirtækja upp í álagðan tekjuskatt þeirra (innifalið í fjárhæð tekjuskatts hér að neðan).

Skipting opinberra gjalda lögaðila 2024 er þannig:

Gjald Fjárhæð Breyting
Tryggingagjald 137.548.975.443 12,75%
Tekjuskattur 149.879.013.268 5,66%
Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki 6.216.881.409 5,50%
Fjársýsluskattur 3.750.105.521 9,75%
Sérstakur fjársýsluskattur 7.037.921.507 15,26%
Fjármagnstekjuskattur 2.729.358.223 3,58%
Útvarpsgjald 1.059.295.600 7,70%
Samtals 308.221.550.971 8,94%
Endurgreiðsla vegna rannsóknarkostnaðar 15.289.944.630 20,99%

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum