Álagning opinberra gjalda á lögaðila 2025
Skatturinn hefur lokið álagningu opinberra gjalda 2025 á lögaðila og liggja niðurstöður álagningarinnar nú fyrir.
Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu við lok álagningar 2025 var 74.091 en þar af voru 56.279 skattskyld félög og sameignarfélög og 17.812 lögaðilar sem undanþegnir eru tekjuskatti. Fyrir lok álagningar höfðu 49.408 framtöl borist eða 87,79% framtala. Í fyrra höfðu 86,44% framtala borist fyrir lok álagningar. Gjöld 6.878 lögaðila voru áætluð sem er 12,22% lögaðila á skattgrunnskrá. Fyrir ári voru gjöld 13,61% lögaðila á skattgrunnskrá áætluð.
Alls voru 321.262.625.641 kr. lagðar á lögaðila í opinber gjöld sem er 13.041.074.670 kr. eða 4,23% hærri fjárhæð en lagt var á í fyrra. Þá má geta þess að 12.130.649.291 kr. voru endurgreiddar nýsköpunarfyrirtækjum vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar sem var 3.159.295.339 kr. minna en var endurgreitt í fyrra. Auk þess gekk 491.212.220 kr. skattfrádráttur til nýsköpunarfyrirtækja upp í álagðan tekjuskatt þeirra (innifalið í fjárhæð tekjuskatts hér að neðan).
Skipting opinberra gjalda lögaðila 2025 er þannig:
| Gjald | Fjárhæð | Breyting |
|---|---|---|
| Tryggingagjald | 147.086.778.342 | 6,93% |
| Tekjuskattur | 152.290.242.003 | 1,61% |
| Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki | 6.671.512.414 | 7,31% |
| Fjársýsluskattur | 3.870.320.844 | 3,21% |
| Sérstakur fjársýsluskattur | 7.138.995.469 | 1,44% |
| Fjármagnstekjuskattur | 3.084.144.169 | 13,00% |
| Útvarpsgjald | 1.120.632.400 | 5,79% |
| Samtals | 321.262.625.641 | 4,23% |
| Endurgreiðsla vegna rannsóknarkostnaðar | 12.130.649.291 | -20,66% |
