Álagning opinberra gjalda á lögaðila 2026

30.10.2026

Skatturinn hefur lokið álagningu opinberra gjalda 2026 á lögaðila og liggja niðurstöður álagningarinnar nú fyrir.

Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu við lok álagningar 2026 var 76.098 en þar af voru 58.071 skattskyld félög og sameignarfélög og 18.027 lögaðilar sem undanþegnir eru tekjuskatti. Fyrir lok álagningar höfðu 51.358 framtöl borist eða 88,44% framtala. Í fyrra höfðu 87,79% framtala borist fyrir lok álagningar. Gjöld 6.868 lögaðila voru áætluð sem er 11,83% lögaðila á skattgrunnskrá. Fyrir ári voru gjöld 12,22% lögaðila á skattgrunnskrá áætluð.

Alls voru 371.986.834.572 kr. lagðar á lögaðila í opinber gjöld sem er 50.724.208.931 kr. eða 15,79% hærri fjárhæð en lagt var á í fyrra. Þá má geta þess að 8.129.530.748 kr. voru endurgreiddar nýsköpunarfyrirtækjum vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar sem var 4.001.118.543 kr. minna en var endurgreitt í fyrra. Auk þess gekk 236.708.683 kr. skattfrádráttur til nýsköpunarfyrirtækja upp í álagðan tekjuskatt þeirra (innifalið í fjárhæð tekjuskatts hér að neðan).

Skipting opinberra gjalda lögaðila 2026 er þannig:

Gjald Fjárhæð Breyting
Tryggingagjald 157.987.213.302 7,41%
Tekjuskattur 190.609.962.738 25,16%
Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki 7.249.803.544 8,67%
Fjársýsluskattur 4.136.217.022 6,87%
Sérstakur fjársýsluskattur 8.163.844.417 14,36%
Fjármagnstekjuskattur 2.642.480.949 -14,32%
Útvarpsgjald 1.197.312.600 6,84%
Samtals 371.986.834.572 15,79%
     
Endurgreiðsla vegna rannsóknarkostnaðar 8.129.530.748 -32,98%

 


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum