Fréttir og tilkynningar


Álagningarseðlar einstaklinga 2015

2.7.2015

Álagningarseðlar einstaklinga verða birtir á þjónustuvefnum skattur.is 24. júlí n.k. Þeir sem óskuðu eftir álagningarseðli á pappír fá hann sendan í pósti eftir 24. júlí.

Barnabætur, vaxtabætur og fyrirframgreiddar vaxtabætur verða greiddar út 31. júlí, auk annarra inneigna. Álagningarskrá mun liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra dagana 24. júlí til 7. ágúst. Kærufrestur vegna álagningar 2015 er til 24. ágúst.

Til að fá frekari upplýsingar um álagningu opinberra gjalda er hægt að hafa samband við ríkisskattstjóra með tölvupósti á rsk@rsk.is eða í síma 442 1000 milli kl. 9.30 og 15.30.

Upplýsingar um greiðslur inneigna og innheimtu skulda veita tollstjóri og sýslumenn.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum