Álagningarskrá einstaklinga vegna tekjuársins 2024 lögð fram
Álagningarskrá vegna álagningar á einstaklinga á árinu 2025 vegna tekjuársins 2024 er til sýnis frá 18. ágúst til 1. september að báðum dögum meðtöldum.
Skrá yfir álagða skatta á tekjur einstaklinga er til sýnis á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík að Katrínartúni 6.
Óheimilt er að eiga við skrána, taka afrit með rafrænum hætti eða ljós- eða hreyfimyndir.
