Álagningarskrá vegna álagningar lögaðila 2022 lögð fram
Álagning lögaðila 2022, vegna rekstrarársins 2021, verður lögð fram dagana 16. nóvember til 30. nóvember 2022 að báðum dögum meðtöldum.
Álagningarskrá verður aðgengileg á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík aðeins í Tollhúsinu Tryggvagötu 19.