Átak gegn ólöglegri starfsemi
Ríkisskattstjóri, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglan á Suðurnesjum, Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun eru nú með átak gegn ólöglegri atvinnustarfsemi.
Kannað er m.a. hvort atvinnurekendur séu að standa skil á lögbundnum sköttum og gjöldum sem og hvort einhverjir séu með starfsmenn í vinnu án tilskilinna leyfa.
Atvinnurekendur geta því átt von á því að fyrirtæki þeirra verði heimsótt af fulltrúum ofangreindra stofnana næstu daga.