Fréttir og tilkynningar


Breski og norski tollstjórinn í heimsókn

4.2.2019

Tollstjórar Bretlands og Noregs eru um þessar mundir staddir á Íslandi ásamt föruneyti. Þeir munu í dag og á morgun eiga fundi með Sigurði Skúla Bergsyni tollstjóra um málefni sem tengjast tollamálum, samvinnu og Brexit.

Einnig verða haldnir fundir með þátttöku Utanríkisráðuneytisins og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Fyrir Íslands hönd sátu fundinn Sigurður Skúli Bergsson, Sigfríður Gunnlaugsdóttir, Karen Bragadóttir og Steinþór Skúlason. Fulltrúar Norðmanna voru Pål Hellesylt og Øystein Børmer. Fulltrúar Bretlands voru William Williamson, Daniel Johns og Victor De-Vizio.

Tollstjórarnir Øystein Børmer, Sigurður Skúli Bergsson og William Williamson


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum