Breyting á gjalddögum greiðslufrests í tolli (tollkrít) og vörugjalds vegna tímabilsins janúar-febrúar 2011.
Alþingi samþykkti þann 14. mars 2011 lög um skiptingu á gjalddögum tollkrítar og vörugjalds vegna tímabilsins janúar-febrúar 2011.
Gjalddagar tollkrítar verða 15. mars og 15. apríl. Gjalddagar vörugjalds verða 28. apríl og 28. maí.
Samkvæmt upplýsingum frá fjársýslu ríkisins verða stofnaðar nýjar kröfur í heimabönkum gjaldenda. Hafi gjaldendur þegar greitt heildartollkrít vegna tímabilsins geta þeir farið fram á endurgreiðslu á helmingi hennar. Vinsamlegast sendið beiðnir um endurgreiðslu á netfangið: fyrirspurn@tollur.is