Breyting á reglum um smásendingar
Í dag tók gildi breyting á reglugerð 1100/2006 um vörslu og tollmeðferð vöru. Breytingin varðar smásendingar.
Tollverð smásendingar má nú ekki vera yfir 40.000 í stað 30.000 áður. Eftir sem áður teljast ekki til smásendinga vörur sem háðar eru innflutningstakmörkunum eða -banni og ekki mega vörurnar vera fluttar inn í atvinnuskyni. Þá er einnig gerð sú breyting að nóg er að viðtakandi staðfesti móttöku með undirritun en ekki er lengur gerð krafa um að sú undirritun sé á tollskýrslu.