Fréttir og tilkynningar


Breytingar á flutningsjöfnunargjaldi á olíuvörum

1.6.2010

Tollstjóri vekur athygli á auglýsingu Neytendastofu um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum.

Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Neytenda;stofa að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. júní 2010 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið.

bifreiðabensín0,57 kr. á lítra
gasolía0,91 kr. á lítra
aðrar olíur og blöndur til brennslu0,01 kr. á kg
flugvélabensín0,32 kr. á lítra
flugsteinolía (þotueldsneyti)0,01 kr. á lítra

Sjá nánar auglýsingu Nr. 461/2010 um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum í Stjórnartíðindum


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum