Fréttir og tilkynningar


Breytingar á skuldfærslu aðflutningsgjalda og gjalddögum vegna ársins 2017

12.12.2016

Breytingar á gjalddögum uppgjörstímabila vegna skuldfærslu aðflutningsgjalda við tollafgreiðslu; fyrirkomulag fært til fyrra horfs frá og með 1. janúar 2017

Á árinu 2016 hafa verið í gildi tímabundið lengri greiðslufrestir (fleiri gjalddagar) á aðflutningsgjöldum, sbr. ákvæði til bráðabirgða nr. XIV við Tollalög nr. 88/2005. Þær reglur falla úr gildi þann 31. desember 2016.

Frá og með 1. janúar 2017 taka fyrri reglur um uppgjörstímabil og gjalddaga aðflutningsgjalda gildi.

Þeir innflytjendur og tollmiðlarar sem stunda SMT/EDI tollafgreiðslu þurfa sérstaklega að skoða þessar breytingar m.t.t. þess að hugbúnaður þeirra til rafrænnar tollafgreiðslu virki rétt, þ.e. móttaka CUSTAR skeyta og úrvinnsla upplýsinga í þeim. CUSTAR skeytin eru tilkynningar frá Tollstjóra um tollafgreiðslu vörusendingar og skuldfærslu aðflutningsgjalda.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum