Breytingar á virðisaukaskattsþrepi nokkurra tollskrárnúmera og breytingar á fastnúmerakröfu golfbifreiða

30.7.2015

Varðar m.a. innflytjendur, tollmiðlara og hugbúnaðarhús, sem selja eða þjónusta hugbúnað til tollskýrslugerðar.

1. Breytingar sem varða virðisaukaskatt af innfluttum vörum.

2. Krafa um fastnúmer golfbifreiða felld niður

Tollskrárlyklar til nota í tollskýrslugerðarhugbúnaði

Tollskrárlyklar, sem taka gildi 1. ágúst 2015, eru aðgengilegir hér á vef Tollstjóra. Aðeins tollskrárlyklar vegna innflutnings taka breytingum.

 

 

Ábendingar

Þegar leiðrétta eða breyta þarf aðflutningsskýrslum vegna þegar tollafgreiddra innfluttra vörusendinga, t.d. vegna of- eða vangreiddra gjalda, þá bera þær leiðréttingar aðflutningsgjöld skv. tollskrá, lögum og reglugerðum sem í gildi voru/eru tollafgreiðsludaginn eða e.a. bráðabirgðatollafgreiðsludaginn og nota skal tollafgreiðslugengi þess dags. Tollskrárnúmer, skilmálar þeirra, gjöld og tollafgreiðslugengi innfluttra hraðsendinga miðast við þann dag þegar tollgæsla veitti leyfi til að afhenda sendinguna innanlands (langoftast komudagur sendingar til landsins).

 

Á vef Tollstjóra má skoða upplýsingar um tollskrárnúmer, tolla og gjöld á þeim o.fl. í tollskránni á vef Tollstjóra, t.d. fyrir og eftir 1. ágúst 2015, með því að velja viðeigandi viðmiðunardagsetningu.