Breytingar gerðar á álagningu hjá afmörkuðum hópi með greiðslur frá TR

21.5.2026

Við yfirferð framtala kom í ljós villa í gögnum frá Tryggingastofnun hjá afmörkuðum hópi einstaklinga. Vegna þessa reynist nauðsynlegt að gera breytingar á álagningu 1.031 einstaklings, eins og hún birtist á álagningarseðli viðkomandi.

Álagning stærsta hluta þeirra einstaklinga sem um ræðir hefur þegar verið leiðrétt og þeim send tilkynning þess efnis í stafrænt pósthólf á Ísland.is. Rétt staða skulda eða inneigna er aðgengileg á Mínum síðum Ísland.is undir Fjármál.

Í tilvikum 153 einstaklinga hefur ekki verið unnt að ljúka leiðréttingu en það verður gert um leið og rétt gögn berast frá Tryggingastofnun.

Sérstakri tilkynningu hefur verið bætt við á álagningarseðil þeirra sem villan hefur áhrif á þar sem fram kemur með skýrum hætti að þetta eigi við um þau. Þá hefur verið send tilkynning til þeirra í stafrænt pósthólf á Ísland.is þess efnis að leiðréttingu sé lokið eða að hún muni verða gerð.

Ég er með greiðslur frá TR, á þetta við um mig?

Villan kom aðeins upp hjá afmörkuðum hópi einstaklinga. Ef álagningarseðill þinn á þjónustuvef Skattsins er með sérstakri tilkynningu þá á þetta við um þig. Ef ekki er sérstök tilkynning efst á álagningarseðli þínum þá á þetta ekki við um þig.

Ég fékk tilkynningu, þarf ég að gera eitthvað?

Nei, við sendum þér leiðrétta niðurstöðu um leið og hún liggur fyrir.

Skulda ég eða fæ ég endurgreitt?

Fólk sem villan hefur áhrif á mun ýmist skulda meira eða fá inneign, allt eftir aðstæðum hvers og eins. Rétt staða mun liggja fyrir á mínum síðum Ísland.is um leið og þú hefur fengið tilkynningu um breytingu.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum