Captain America leikfang með amfetamíni sent á 11 ára barn
Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu í síðasta mánuði UPS sendingu frá Filippseyjum sem innihélt þrjá plastpoka af amfetamíni.
Búið hafði verið um pakkann, sem stílaður var á 11 ára gamalt barn, eins og um afmælisgjöf væri að ræða. Í honum var leikfang, Captain America plastdúkka og í maga hennar fundu tollverðir pokana þrjá, sem innihéldu samtals 12 grömm af amfetamíni.
Lögreglan á Suðurnesjum annaðist rannsókn málsins og er henni lokið.
Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Einnig má koma ábendingum um smygl inn á símsvara 5528030 hjá embætti Tollstjóra.