Fréttir og tilkynningar


Fíkniefni í gúmmíhanska

2.10.2014

Hann hafði ekki erindi sem erfiði erlendi ferðamaðurinn sem ætlaði nýverið að koma með fíkniefni inn í landið í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 

Efnin hafði hann falið í gúmmíhanska í farangri sínum. Tollverðir stöðvuðu hann í grænu hliði og fundu efnin við hefðbundna leit.

Maðurinn, sem fæddur er 1985, var að koma frá Berlín, þegar för hans var stöðvuð.

Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum