Fréttir og tilkynningar


Fjarfundir Nordic Smart Government & Business um stafræna umbreytingu á Norðurlöndum

4.10.2024

Nú gefst einstakt tækifæri til að hlýða á og ræða við sérfræðinga Nordic Smart Government & Business í stafrænni umbreytingu fyrirtækja og stofnana.

Fjarfundir verða haldnir í október 2024. Á fundunum, alls fimm talsins, verður meðal annars fjallað um bætt aðgengi að upplýsingum úr skrám hins opinbera og um tækifærin sem notkun rafrænna viðskiptaskjala opna til að bæta skilvirkni og árangur í rekstri og miðlun upplýsinga á milli fyrirtækja, stofnana og eftirlitsaðila.

Dagskráin er sem hér segir:

  • 8. október kl. 11:00-12:00
    Að auðvelda líf norrænna fyrirtækja
  • 9. október kl. 11:00-12:30
    Í þágu viðskiptatrausts - Bætt aðgengi að upplýsingum úr skrám hins opinbera
  • 10. október kl. 9:30-10:15
    Rafræn viðskiptaskjöl - Auðveldari, öruggari og skilvirkari viðskipti yfir landamæri
  • 11. október kl. 8:00-8:45
    Niðurstöður tilraunaverkefna um stafræn skil á upplýsingum um virðisaukaskattsskyld viðskipti til skattyfirvalda
  • 22. október kl. 8:00-8:45
    Leiðbeiningar um virðisaukaskatt og endurgreiðslur - Undirbúningur fyrir framtíðina

Fundirnir fara fram á ensku. Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig. 

Nánari upplýsingar og skráning á vef fyrirtækjaskrár í Svíþjóð  


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum