Framlagning álagningarskrár einstaklinga 2019
Álagningarskrá einstaklinga 2019 er lögð fram dagana 19. ágúst til 2. september 2019 að báðum dögum meðtöldum. Skráin í heild liggur frammi á öllum starfsstöðvum ríkisskattstjóra nema hjá innheimtusviði í Tollhúsinu.
Álagningarskráin sýnir
stöðu álagningar á einstaka skattaðila miðað við álagningardag, 31. maí sl., sbr,.
auglýsingu um lok álagningar á einstaklinga sem birt var í Lögbirtingablaðinu
þann sama dag. Fjárhæðir einstakra skatta eða gjalda kunna að taka breytingum
síðar, s.s. vegna skattkæra eða leiðréttinga af öðrum tilefnum.
Kærufrestur rennur út mánudaginn 2. september 2019.